Morgunblaðið - Sunnudagur - 24.04.2022, Side 15
24.4. 2022 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 15
líklega til Noregs og verð á hátíð hér á Íslandi.
Ég er með eins manns atriði; blöndu af tónlist
og gríni, eða eiginlega gríntónlist. Mikið af því
sem ég sem í dag er þannig blanda.“
Hvaðan færðu hugmyndir að gríninu?
„Úr lífinu sjálfu. Ég geri ekki mikið grín að
Íslendingum, en kannski smá. Ég segi frá líf-
inu hér með augum útlendingsins. Ég geri að
sjálfsögðu grín að sjálfum mér, en oftast er ég
með eitthvert eitt þema. Ég vil að efnið sé
áhugavert, satt og fyndið. Ef ég næ þessu
þrennu er ég ánægður,“ segir Nick og segist
hafa þróað sinn eigin stíl í gegnum lífið sem
leikari, spunaleikari og talsetjari teikni-
mynda.
„Það er tækni í uppistandi alveg eins og
spuna, þótt tækni sé minna notuð í uppistandi
því það er persónulegra. Uppistand er snúið en
ég er aldrei með sviðsskrekk. Ég fæ kannski
smá fiðring rétt áður en ég stíg á svið en um
leið og ég er kominn á svið er ég ekkert stress-
aður,“ segir Nick og segist ekki oft hafa mis-
tekist með uppistand.
„Það er ekki góð tilfinning þegar enginn
hlær en maður lærir á því,“ segir hann og
brosir.
Hefurðu alltaf verið fyndinn?
„Ég held ég hafi alls ekki alltaf verið það.
Þegar ég byrjaði í spunahópum voru vinir mín-
ir frá unglingsárum hissa og sögðu: „Er Nick
kominn í grínið? Það getur ekki verið!“ Ég
held að margir hafi séð mig sem feimna tón-
listarmanninn.“
Svo koma dásamlegu sumrin
Fannst vinum og fjölskyldu ekkert skrítið að
þú skyldir allt í einu setjast hér að?
„Ísland er virt land og fólki finnst það kúl.
Fólk veit núna miklu meira um Ísland en áður.
Nú er það sveipað töfraljóma. Fólki fannst það
ekki skrítið en var kannski hissa. Það skildi ekki
að ég væri að fara úr leiklistinni í LA og til Ís-
lands. Ég held að flestir hafi dáðst að mér að
taka þetta skref, að elta drauma mína. Ég á í ást-
arsambandi við Ísland. Ég fann minn töfrastað,“
segir Nick og segist enn eiga eftir að sjá mikið af
landinu þótt hann hafi farið víða og spilað.
„Ég held ég verði hér út ævina, nema ef svo
færi að ég fengi risahlutverk í LA. Kuldinn hér
truflar mig ekki en myrkrið er aðeins farið að
segja til sín. En svo koma dásamlegu sumrin.
Það er óbærilega heitt í Los Angeles á sumr-
in,“ segir Nick og nefnir að vinir hans hér og
félagslífið skipti hann mestu máli.
„Mér var svo vel tekið hér í grín- og
tónlistarsenunni. Ég vil bara vinna mína vinnu
og hanga með vinum mínum, sem eru allir hér
innan seilingar, annað en í LA. Ég gerði mér
grein fyrir því eftir að ég flutti hingað að ég
þarfnast fólks. Til að halda geðheilsunni verð
ég að vera innan um fólk. Ég þarnast þess og
elska það og ég fann það hér.“
Þú fannst þinn töfrastað.
„Já, svo sannarlega. Ég fann minn töfra-
stað.“
„Ég held ég verði hér út ævina, nema ef
svo færi að ég fengi risahlutverk í LA.
Kuldinn hér truflar mig ekki en myrkrið er
aðeins farið að segja til sín. En svo koma
dásamlegu sumrin,“ segir leikarinn og grín-
istinn Nick sem er sestur að á Íslandi.
Morgunblaðið/Ásdís
Fátt finnst Nick skemmtilegra en að standa á sviði og spila tónlist.
Ljósmynd/Ásta Magg
Uppistand er ástríða hjá Nick en hann byrjaði í spuna.
Ljósmynd/Flappers Comedy Club
Þættirnir 24 nutu mikilla vinsælda á árunum 2005 til 2010. Nick lék þar Yuri Suvarov, forseta Rúss-
lands. Hér má sjá Nick sem Yuri ásamt leikaranum Gregory Itzin sem lék forseta Bandaríkjanna.