Morgunblaðið - Sunnudagur - 24.04.2022, Page 16

Morgunblaðið - Sunnudagur - 24.04.2022, Page 16
16 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 24.4. 2022 Þ ingmenn eiga sífellt örðugra með að gera sig gildandi á sínum vinnustað. Það er auðvitað afleitt fyrir þá, og alls ekki eingöngu við þá sjálfa að sakast. Í draumaríki slíkra, þá ganga þing- menn óbeinna erinda þeirra sem kjósa þá. Frá fyrstu stigum heimastjórnar og vel fram eftir öldinni var persónulegt vald ráðherra og þing- manna miklu tilþrifameira en síðar varð. Þá var einnig mjög algengt að ráðherrar gengju beinna erinda fyrir kjósendur sína. Og það var svo sannarlega ekkert ljótt eða spillt við það. Og það var þó ekki splunkunýr veru- leiki með heimastjórn, fullveldi og loks lýðveldi. Okkar mesti maður, fyrr og síðar, Jón Sigurðsson forseti, var „eins og útspýtt hundskinn“ um kóngsins Kaupmannahöfn að sinna stóru og smáu fyrir landa sína, eins og bréfin til hans og frá bera með sér. Vandi núverandi löggjafarmanna er sá að þeir hafa misst frá sér löggjafarþáttinn að mestu leyti. Gengið hefur verið miklu lengra í þá átt en EES-samningur gekk út frá og sjálf frumforsenda hans, margkynnt og ítrekuð, neit- unarvald, raunverulegt en ekki plat, hefur ekki verið virt og hafa embættismenn sem að því snúa algjörlega brugðist sínu hlutverki. Gauragangurinn þegar átti að lauma landinu inn í ESB var notaður til að ganga miklu lengra en efni stóðu til og það ekki afturkallað þegar innleiðingin sprakk á limminu. Ríkisstjórnin sem tók við 2013 brást algjörlega verki sínu með sama hætti sem hún vanrækti að skrúfa 100 skattahækkanir til baka. Ritskoðunarmiðlar kenndir við samfélag Þeim sem lifa í ömurlegum og þó einkum fátæklegum heimi „samfélagsmiðla“, sem bréfritari þekkir þó ein- ungis af afspurn, fer óneitanlega fljótt aftur, þar sem, ef marka má lýsingar, að lægsti samnefnarinn í þeirri samveru, verður smám saman helgastur staður í þeim véum. Fyrir kemur að rekist er á menn, sem ástæða þótti áður til að taka alvarlega, en eru komnir á efri ár og eiga ekki lengur neina aðra viðmiðun en að fá það sem kallað er læk, og þá í stærstum stíl frá undirmálsliði, sem þeir sjálfir hefðu aldrei, í sinni betri tíð, gert neitt með hvort líkaði betur eða verr. Að vonum flýtur hratt undan raunverulegri tilveru fólks sem festist viljandi eða óviljandi í viðmiðunum sem ekki hafa gildi af neinu tagi. Tölvurisarnir sem liðið tengir sig við færa allt sem að fólkinu snýr til sinnar bókar og hún er ekkert smásmíði. Þeir þekkja smekk þess betur en það sjálft. Þeir beina að því efni sem tryggir einhæfan áhuga án þess að um sé beðið. Og fyrir fáeinum misserum tóku þeir sér rétt til að ritskoða, og ákvarða hvort fólk með aðrar skoðanir t.d. í stjórnmálum, eða fólk sem hafnaði furðukenningum eins og að kynjum hefði fjölgað um 20 eða svo, samkvæmt ákvörðun sérvirtinga í þeim „fræðum,“ gæti tjáð sig. Nú reynir athafnamaður að leggja fé í Twitter, sem er ritskoðunarapparat af verstu gerð, til þess að tryggja að slíkri ritskoðun verði hætt. Það glittir í skímu í myrkrinu. Fyrir fáum árum vottaði enn fyrir lýðræðislegu valdi Fyrsti ráðherrann var með „allt vald“ á sinni hendi. Að minnsta kosti hið pólitíska vald, sem var ekki langt gengið þá. En ráðherrann varð þó að gæta þess hvernig hann færi með það og þar kom til kasta þings. Nú leggjast þingmenn undantekningarlítið gegn því að nokkur maður með lýðræðislegt umboð fái að fara með vald! Þingmennirnir!!? Embættismannastéttin í ráðuneyti þess fyrsta var fámenn og landritarinn einn var næstur honum. Þar með komu fáeinir skrifstofu- menn. Þingmenn höfðu þann starfa sinn með öðru og sat þing skamma hríð hverju sinni. Launin tóku mið af því og voru lengst af óveruleg. Jafnt og þétt, allar götur síðar, hefur verið sneitt af völdum kjörinna ráð- herra, og hafa þeir margir tekið fullan þátt í því, og jafnvel þótt það flott. Umræðan í þjóðfélaginu hefur iðulega verið öfug- snúin um að með öllum slíkum skrefum hafi lýðræð- isþáturinn verið efldur á kostnað „valds ráðherra“. Enginn veit þó hvernig það gat hafa gerst. Umræðu- stjórarnir hafi færst inn í fjölmenna háskóla, þar sem alls konar gervivísindi eru talin fræði. Það verður til þess að ýmsir leyfa sér að líta svo á að sífellt fjölgi hálfmenntuðum á kostnað hinna, og örugglega fáum til gagns. Alls konar nefndir umboðslausra eru settar á fót og þar verður þróunin sú, að þótt það lið beri ekki minnstu ábyrgð á nokkurri afstöðu sem þeir taka, þá hafi hinir örfáu umboðsmenn almennings, sem eftir eru, samkvæmt óskiljanlegum galdrakver- um skyldu til að lúta vilja hinna umboðslausu, sem bú- ið er að raða saman eftir skrítnu regluverki sem kallar þá til valda! Vandinn er einnig að verða sá að dómstólar hafa nú orðið litla samúð með stjórnarskrá landsins, svo ekki sé talað um „óljósan“ anda hennar, sem er þó þúsund- falt betra hjálpræði en það sem hinir umboðslausu en valdasæknu seilast í. Og við aðstæður eins og þessar er auðvitað hætt við að þar ráði kannski þeir mestu sem verst kunna með að fara Vörslumenn íslensks öryggis bregðast Því var lætt inn að það skyldi ekki bannað að Ísland gæti ef það kysi haft hliðsjón af annarra niðurstöðum ef það í hverju falli hentaði þeim. Eftir þessum trygg- ingum létu menn sig hafa það að opna glufuna, enda tryggja fyrirvararnir að varanleg hætta er ekki á ferð. Þessi fyrirvari var gerður og til þess rík ástæða. Þannig stendur á að stjórnarskrá landsins heimilar ekki innleiðingu á bindandi reglu að þessu leyti. Þess vegna var sérstaka áréttað að að í slíku fælist ekki binding. Vaxandi er íhlutun Mannréttindadómstóls, sem íslenskir dómendur með minnimáttarkennd úr hófi ráða ekki við að hafi verið haft með sem sýnishorn en ekki úrskurðaratriði. Sérstaklega hefur legið fyrir að Ísland hafi undanþágu frá EES-reglum eftir því sem það kýs. (ESB má bregðast við hlutfallslega ef það kýs og ekkert á móti því.) En stjórnmálalegir ónytjungar sem verða sífellt meira ráðandi í íslensk- um stjórnmálum telja sér skylt að sinna hlutverki aft- anísossa ESB varðandi reglusetningu, þótt það gangi þvert gegn lögum og stjórnarskrá landsins. En þegar til stykkisins kemur ráða sífellt færri íslenskir lög- lærðir lengur við grundvallaratriði í sinni tilveru og sjónarmið lögfræðinga sem stúderað hafa í lögfræði- legum handverksskólum á vegum og á kostnað ESB, og hafa keypt þar endi allrar lögfræði af þeim toga, um að allar niðurstöður skuli helgast af því sem „sam- runaferillinn“ gerir kröfu til. Hinir kláru fyrirvarar, sem sífellt var vitnað til, þeg- ar leiðin til undirokunar var vörðuð, eru skyndilega orðnir aukaatriði sem óþarft sé að horfa til eða muna eftir. Seminaristarnir, sem smám saman eru taka yfir dómstólana, láta sér vel líka, og eru löngu komnir nið- ur fyrir þann manndóm að telja sig hafa eitthvað með það að gera að gæta sjónarmiða stjórnarskrárinnar. Stjórnarská er ekki höfð „til hliðsjónar“ heldur er hún varðan sem setur endimörk. Stangist ákvörðun eða athöfn þar á, verður því ekki breytt með loðmullu rök- leysunnar, eins og svo oft hefur verið reynt. Þjóð sem hefur þjáðst Ísland okkar daga er fámennt ríki. Öldum saman var það fátækt og reynslan virtist sýna að ekki mætti ganga út frá að þar mætti brauðfæða nema nokkra tugi þúsunda. Íslendingar höfðu hvergi nema í hjarta sínu rökin fyrir því að landið gæti orðið sjálfu sér nægt og jafnvel ekki þegar best léti, með frambærileg lifskjör við önnur og öflugri ríki. Fólksfjöldi, sem lagði grunn að herveldi, sjóveldi og landrými sem nýta mætti til fulls hafði auðvitað forskot á aðra og hlaut að Það er betra en ekki að þekkja óvininn ’ Seminaristarnir, sem smám saman eru taka yfir dómstólana, láta sér vel líka, og eru löngu komnir niður fyrir þann mann- dóm að telja sig hafa eitthvað með það að gera að gæta sjónarmiða stjórnarskrárinnar. Stjórnarská er ekki höfð „til hliðsjónar“ heldur er hún varðan sem setur endimörk. Reykjavíkurbréf22.04.22

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.