Morgunblaðið - Sunnudagur - 24.04.2022, Síða 22
22 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 24.4. 2022
LISTIR
Gestir virða fyrir sér verk þriggja samískra listamanna í norræna skálanum á tvíæringnum í Feneyjum sem að þessu sinni
hefur verið breytt í samíska skálann. Listamennirnir eru Pauliina Feodoroff, Maret Anne Sara og Anders Sunna.
AFP/Vincenzo Pinto
Gestir virða fyrir sér verkið Gervihnött, sem er hluti af sýningunni Fullveldi eftir bandaríska listamanninn Simone Leigh.
Hún er fyrsta svarta konan sem er fulltrúi Bandaríkjanna og breytti hún bandaríska skálanum í afrískt hús.
AFP/Vincenzo Pinto
Inngangurinn í brasilíska skálann hef-
ur vakið athygli í Feneyjum.
AFP/Vincenzo Pinto
Gestir virða fyrir sér Snúninginn eftir Yunchul Kim í kóreska skálanum á tvíær-
ingnum í Feneyjum. Tvíæringurinn stendur út nóvember.
AFP/Vincenzo Pinto
Listamaðurinn Latifa Echakhch sýnir verkið Tónleikarnir í svissneska skálanum
á Feneyjatvíæringnum. Áttatíu lönd eru með skála á tvíæringnum.
AFP/Vincenzo Pinto
Sögulegur
tvíæringur
Feneyjatvíæringurinn
hefst í dag, 23. apríl, ári
síðar en ætlað var út af
kórónuveirunni, og fer
nú fram 59. sinni. Árið
1995 var einn listamað-
ur af hverjum tíu kona,
en nú hefur það snúist
við og einn af hverjum
tíu er karl. Úkraína hef-
ur stolið senunni í Fen-
eyjum, en rússneski
skálinn er tómur.
Úkraínski listamaðurinn Pavlo Makov flúði undan innrás Rússa og sýningar-
stjóri hans, Maria Lanko, á eftir með listaverkið, Gosbrunn örmögnunar, fyrir
tvíæringinn í einkabíl. Á tvíæringnum er líka sérstakt Úkraínutorg.
AFP/Vincenzo PintoVeiðivefur
í samstarfi við