Morgunblaðið - Sunnudagur - 24.04.2022, Page 24

Morgunblaðið - Sunnudagur - 24.04.2022, Page 24
24 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 24.4. 2022 HÖNNUN Töfrar eldamennskunnar byrja með Eirvík Eldhúsið er ekki bara herbergi, heldur upplifun Eirvík Suðurlandsbraut 20, Reykjavík, sími 588 0200, eirvik.is. Opnunartími mánudaga - föstudaga 10-18, laugardaga 11-15 S ennilega hefði aldrei hvarflað að undirrituðum að ráðast í húsgagnasmíði að eigin frumkvæði, hvað þá að byrja alger- lega frá grunni. Þegar hugmyndin kom upp var hins vegar slegið til og úr varð sérlega skemmtilegur eftirmiðdagur. Kveikjan var úr smiðju ítalska hönnuðarins Enzo Mari, sem á sín- um tíma gerði handbók um hvernig smíða mætti húsgögn með því að nota aðeins nagla og staðalstærðir af timbri, engin þörf væri fyrir flókna smíðavinnu og fínan hönn- un. Mari var ekki síður þekktur fyr- ir yfirlýsingar sínar um stöðu hönnunar í heiminum, sem hann taldi að miklu leyti óþarfa og sóun á vinnu og efni, en fyrir sína hönn- un. Mari var fjölhæfur hönnuður og var í hópi sem lét mikið að sér kveða á uppgangsárum ítalsks iðn- aðar og hönnunar eftir seinna stríð og vildi að hönnun væri fyrir al- menning, en ekki bara útvalda. Hann var þekktur fyrir dagatal, sem nota má ár eftir ár, og bakka úr stálbita. Hann hannaði fyrir fyrirtæki á borð við Danese, Oli- vetti, Alessi og Artemide og kenndi hönnun í Mílanó, heima- borg sinni, á sjöunda áratugnum. Mari hannaði ýmis húsgögn sem einfalt er að smíða. Þar má nefna nokkrar gerðir af stólum, bekki, rúm, skápa og hillur. Fyrir valinu varð stóll sem hefur þann kost að aðeins þarf eina stærð af timbri til að smíða hann, borð sem eru fimm cm á breidd og 2,5 cm á þykkt, í allt í kringum 11 metra á lengd. Borðin sem við fundum í spýtna- hrúgunni reyndust vera gamalt mótatimbur, en vel með farið og heilt. Viðurinn hins vegar nokkuð grófur þannig að það gæti verið hætta á flísum fyrir berleggjaða ef þeir eru mikið á iði. Í upphafi voru borðin söguð nið- ur eftir málunum sem gefin eru upp í teikningunni. Síðan voru ein- ingarnar settar saman, fyrst setan og bakið og síðan fæturnir. Í teikn- ingunni eru ekki gefin nákvæm mál fyrir utan breidd og hæð baks og setu. Þessi skortur á nákvæm- um málum og upplýsingum um horn og halla veldur ákveðnu óör- yggi í fyrstu, sérstaklega fyrir þá sem eru vanir nákvæmum leiðbein- ingum lið fyrir lið með ósamsettum mublum frá Ikea, en verður síðan frelsandi. Við ákváðum því að stilla halla á baki, setu og fótum eftir auganu. Fyrir vikið er ef til vill ívið meiri halli á aftari fótunum á stólnum en ella, en það kemur ekki að sök þegar sest er í hann. Samsetningin á stólnum var dá- lítið púsluspil og eins að ákveða í hvaða röð ætti að setja hann sam- an. Til dæmis kom í ljós á loka- metrunum að ætti að festa skástíf- ur undir setunni eins og gert er ráð fyrir á teikningu var ekki hægt að koma að hamri þannig að við festum þær framan á en ekki aftan á. Greinilega hefði verið betra að festa þær fyrr í smíðinni til að koma í veg fyrir þetta vandamál. Þessi breyting frá teikningunni – sú eina – skipti hins vegar engu máli upp á stöðugleika stólsins eða útlit. Fyrir tvo var verkið einfalt og fljótlegt, en hægur vandi væri fyrir einn að smíða stólinn. Autoprogettazione nefndi Mari leiðarvísi sinn að því að smíða ein- föld húsgögn og mætti leggja út með orðunum að hanna sjálfur. Jafnvel má líta á hvert húsgagn sem æfingu. Hver og einn getur síðan haldið áfram með hugmyndir Maris og þróað þær. Um leið gefa þær möguleika á að átta sig á hvernig iðnhönnun virkar. Enzo Mari lést 19. október 2020 á sjúkrahúsi í Mílanó af óbeinum völdum kórónuveirunnar eins og það er orðað. Hann var 88 ára gamall. Kona hans, Lea Vergine, lést daginn eftir, einnig af völdum veirunnar. Hún var 82 ára. Aðeins tveimur dögum eftir and- lát Maris var sýning með verkum hans opnuð í Triennale-safninu í Mílanó. Á sýningunni voru 250 hlutir sem Mari hannaði. Alls hannaði hann um 1.500 hluti, sem hann ánafnaði Mílanóborg með því skilyrði að þeir yrðu ekki sýndir í 40 ár. Í sýningarskránni er viðtal við Mari: „Ég er þess fullviss, eins og frekar bjartsýnt barn, að það mun taka 40 ár áður en kemur ný kynslóð sem er ekki spillt eins og kynslóð okkar daga,“ sagði Mari í viðtalinu. „Ég er ákaflega vongóð- ur um að í náinni framtíð komi kynslóð ungs fóks sem mun bregð- ast við og taka til baka stjórnina á dýpri merkingu hlutanna.“ Stuðst við andlátsfrétt um Enzo Mari í The New York Times. Leiðbeiningar Enzos Maris að stólnum eru ekki flóknar. Stóllinn fullgerður, einfaldur og traustur. Með hjálp teikn- inga Enzos Maris mætti hæg- lega mubblera sumarbústað- inn á skömmum tíma. Ljósmynd/Þorgeir K. Blöndal Tvær fjalir og 100 naglar Húsgagnasmíði hljómar ekki eins og áhlaupaverk, hvað þá eitthvað sem hægt er að klára á einum eftirmiðdegi. Og þó. Í spýtnahrúgu fannst gamalt mótatimbur og í kassa slatti af nöglum. Og þremur og hálfum tíma síðar með aðeins hamar og sög að vopni var kominn stóll. Karl Blöndal kbl@mbl.is

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.