Morgunblaðið - Sunnudagur - 24.04.2022, Page 29
fjölmiðlum verið lokað og fjöldi
manns verið dæmdur og sektaður í
krafti laga, sem gera það að glæp
að „ófrægja“ rússneska herinn.
Sekt fyrir veggmynd
Ovtsjinnikov er einn af þeim. Grá-
skeggjaði eftirlaunaþeginn var
sektaður um 35 þúsund rúblur
(tæpar 60 þúsund krónur) eftir að
hann teiknaði litla stúlku í fánalit-
um Úkraínu með þrjár sprengjur
yfir höfði sér á byggingu í Borovsk.
Það var einnig málað yfir þá
mynd og Ovtsjinnikov málaði dúfu í
hennar stað.
Rúmlega 150 manns hafa gefið
honum peninga til að hjálpa honum
að borga sektina.
Ovtsjinnikov er þekktur fyrir list
sína í Borovsk og nágrenni. Ein af
teikningum hans er helguð frelsun
bæjarins frá nasistum 1942 og er á
vegg herkvaðningarstofnunarinnar
í bænum.
Ein af nýlegri veggmyndum hans
af tveimur konum sem haldast í
hendur og eru með borða með fána-
litum Rússlands og Úkraínu í
hárinu hefur enn sem komið er ver-
ið látin ósnert.
Eyðilögð vinátta
„Þessi vinátta hefur verið eyðilögð,
við getum bara fyllst fortíðarþrá,“
sagði hann og bætti við að myndin
væri eftirgerð af veggspjaldi frá
Sovéttímanum.
Það hefur lengi verið pólitískur
broddur í myndum hans. Árið 2003
rakst hann á bók með nöfnum fórn-
arlamba sovéskrar kúgunar í Ka-
luga-héraði þar sem Borovsk er að
finna. Þar voru þeir skráðir sem
annað hvort höfðu verið skotnir eða
sendir í gúlagið.
„Mér rann kalt vatn milli skinns
og hörunds,“ sagði hann.
Hann hóf herferð fyrir því að
mörg fórnarlömbanna hlytu upp-
reisn æru og yrðu lagalega sýknuð
af öllum glæpum að þeim látnum,
en var hafnað á öllum stigum.
Faðir í fangabúðum
Árin 2015 og 2016 málaði hann
portrett af fórnarlömbum kúgunnar
á veggi í Borovsk og ávallt voru
teikningarnar fjarlægðar eða eyði-
lagðar.
Sögur fórnarlambanna komu við
kviku Ovtsjinnikovs. Faðir hans,
Alexander, var dæmdur í 10 ára
vist í þrælkunarbúðum 1937 fyrir
að ýta undir hugmyndir „keisara-
sinna og trotskíista“. Hann var
sendur í hinar illræmdu fangabúðir
í Kolíma og sneri aftur til Borovsk
1956.
Ovtsjinnikov hefur áhyggjur af
að rússneskt samfélag liðist í sund-
ur vegna nýs „klofnings“ og óttast
að landið gæti verið á leið í „mjög
slæma átt“. Hann muni halda
áfram og trúi á mátt listarinnar til
að stuðla að friði.
„Ég teikna til að sýna hvernig ég
skil hlutina […] og kannski hafa
áhrif á aðra,“ sagði hann. „Þetta er
fyrir þá sem hafa ekki áhuga á póli-
tík […] sem vita ekkert og sitja
bara fyrir framan sjónvarpið.“
AFP
24.4. 2022 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 29
Sindrastóll
Hönnuður: Ásgeir Einarsson (1927-2001)
Sindrastóllinn er bólstraður
með íslenskri lambagæru.
Verð frá: 229.000 kr.
Sólóhúsgögn ehf. Gylfaf löt 16-18 112 Reykjavík 553-5200 solohusgogn. is
SJÓNVARP Þættirnir American
Song Contest eða Bandaríska
söngvakeppnin, sem eru svar Banda-
ríkjamanna við Eurovision og eru
sýndir á NBC, eiga erfitt uppdráttar
hjá bandarískum sjónvarpsáhorfend-
um. Tæplega þrjár milljónir manna
fylgdust með fyrstu útsendingunni,
en aðeins 1,5 milljónir með fimmta
þættinum á mánudag þegar riðla-
keppni lauk. Næstum fjórum sinnum
fleiri, eða 5,6 milljónir, horfðu á
hæfileikakeppnina American Idol á
sama tíma á stöðinni ABC.
USAvisjón nær ekki flugi
Kelly Clarkson og Snoop Dogg
kynna þættina.
AFP/Rodin Eckenroth
BÓKSALA 13.-19. APRÍL
Listinn er tekinn saman af Eymundsson
1
Natríumklóríð
Jussi Adler-Olsen
2
Kvöld eitt á eyju
Josie Silver
3
Drag plóg þinn yfir bein
hinna dauðu
Olga Tokarczuk
4
Helkuldi
Viveca Sten
5
Upplausn
Sara Blædel/Mads Peder
Nordbo
6
Líf og fjör í Ólátagarði
Astrid Lindgren
7
Kuggur 17 – kátt er í Köben
Sigrún Eldjárn
8
Systirin í storminum
Lucinda Riley
9
Kuggur 18 – skordýra-
þjónusta Málfríðar
Sigrún Eldjárn
10
Alls konar íslenska
Eiríkur Rögnvaldsson
1
Vetrarfrí
Hildur Knútsdóttir
2
PAX 5 Draugurinn
Åsa Larsson/Ingella Korsell/
Henrik Jonsson
3
Verum ástfangin af lífinu
Þorgrímur Þráinsson
4
Akam, ég og Annika
Þórunn Rakel Gylfadóttir
5
SKAM 2
Julie Andem
6
Dóttir hafsins
Kristín Björg Sigurvinsdóttir
7
Eldurinn
Hjalti Halldórsson
8
Sterk
Margrét Tryggvadóttir
9
Ég á þig
Hrönn Reynisdóttir
10
Ljósberi
Ólafur G. Guðlaugsson
Allar bækur
Ungmennabækur
Bókin Tíu dagar (í helvíti), fyrsta skáldsaga
Magnúsar Lyngdal Magnússonar, er komin út
hjá bókaforlaginu Bjarti. Á kápu segir að hér sé
komin „fyndin og um leið áleitin saga um sjálfs-
skoðun og krísu, en jafnframt þá glímu sem
sérhver nútímamaður þarf að heyja við sjálfan
sig“.
Sagan fjallar um miðaldra endurskoðanda,
sem vaknar upp við vondan draum í fangaklefa
á þriðjudagsmorgni. Hann veit ekki hvernig
hann lenti þarna inni, hvað hann gerði, hvort
hann hefur framið glæp eða jafnvel drepið ein-
hvern, svo enn sé vitnað í káputexta.
Kjörbúðarkonan eftir japanska rithöfundinn
Syaka Murata er komin út hjá Angústúru í þýð-
ingu Elísu Bjargar Þorsteinsdóttur. „Þegar
Keiko Furukura fær hlutastarf með námi í kjör-
búðinni Smile Mart finnur hún tilgang í lífinu.
Þar skilur hún reglurnar – þær eru skráðar í
handbók búðarinnar – og á auðvelt með að falla
inn í starfsmannahópinn. En nú er hún orðin 36
ára og fólki finnst tími til kominn að hún taki
næstu skref: finni sér maka og merkilegra starf.
Keiko tekur málin í sínar hendur með ófyrir-
sjáanlegum afleiðingum,“ segir á bókarkápu.
Murata hefur hlotið fjölda verðlauna og fyrir Kjörbúðarkonuna
hlaut hún Akutagawa-verðlaunin. Sjálf vann hún í hlutastarfi í kjör-
búð í 18 ár. Bókin hefur verið þýdd á 37 tungumál.
Hjá Angústúru er einnig komin út bókin
Júlían er hafmeyja eftir Jessicu Love. „Allt
breytist daginn sem Júlían sér þrjár töfrandi
konur í lestinni sem virðast vera hafmeyjur.
Það eina sem kemst að í huga hans er að
verða sjálfur hafmeyja. En hvað mun ömmu
finnast um það?“ segir á bókarkápu. Hér er á
ferð myndasaga og er þetta fyrsta bók höf-
undar. Bókin hlaut góðar viðtökur þegar hún kom út á ensku og
sagði í dómi í The New York Times að hún væri heillandi, hugljúf og
fyndin.
Bókin Bíbí í Berlín er komin út hjá Háskóla-
útgáfunni. Hér er um að ræða sjálfsævisögu
Bjargeyjar Kristjánsdóttur og gekk Guðrún
Valgerður Stefánsdóttir frá útgáfunni og skrif-
ar inngang. „Sjálfsævisaga Bíbíar veitir næsta
sjaldgæfa innsýn í hugarheim og reynslu fatl-
aðrar manneskju sem var hornreka í íslensku
samfélagi á 20. öld, hugarheim sem flestum er
hulinn,“ skrifar Guðrún Valgerður þar. Bíbí
eða Bjargey Kristjánsdóttir var uppi frá 1927
til 1999. Hún var kennd við kotbæ foreldra sinna, Berlín, sem var
rétt utan við Hofsós, segir á bókarkápu.
NÝJAR BÆKUR