Morgunblaðið - Sunnudagur - 24.04.2022, Page 32

Morgunblaðið - Sunnudagur - 24.04.2022, Page 32
SUNNUDAGUR 24. APRÍL 2022 Suðurlandsbraut 24 108 Reykjavík Sími 554 6969 lur@lur.is • lur.is LÁTTU ÞÉR LÍÐA VEL GÆÐI Í GEGN MADE INDENMARK Lama er dönsk gæði og dýnurnar okkar stuðla að góðum nætursvefni. 7 svæði með sérsniðnum stuðningi sem tryggir þér hámarksþægindi á höfði, öxlum, mjóbaki og mjöðmum - alla nóttina. Með Lama, þriggja seríunni, hefur þú möguleika á að fá rúm sem passar við þarfir þínar. Hægt er að fá þau með eða án stillanlegum botni. Í boði eru fjórir litir á áklæði og margar tegundir fóta og rúmgafla. Veldu rúm sem faðmar líkama þinn og veitir þér einstakan stuðning og þægindi. Örbók ljóða, sem Charlotte Bronte orti þegar hún var 13 ára, er nú komin fram og var sýnd í New York. Bókin sást síðast í nóvember 1916 þegar hún var seld á uppboði í sömu borg fyrir 520 dollara. Nú er hún á sölu á al- þjóðlegu fornbókahátíðinni í New York og eru settar á hana 1,25 milljónir dollara. Brotið á bókarhandritinu er minna en spilastokkur. Handritið er 15 síður, ber ártalið 1829 og hefur að geyma safn tíu óbirtra ljóða. Á titilsíðu stendur að hér sé á ferð „Rímnakver eftir Charlotte Bronte, selt af engum og prentað af henni sjálfri“. Vitað var af bókinni og er hún nefnd í ævisögu Eliza- beth Gaskell um Bronte frá árinu 1857. Bronte ólst upp í miklu fáfengi í heiðaþorpinu Haworth í Jórvíkurskíri á Englandi. Hún og yngri systur hennar Emily og Anne styttu sér stundir með því að semja flóknar sögur, sem gerðust í ímyndaðri veröld. Allar þrjár urðu þær þekktir rithöfundar. AFP/Timothy A. Clary Örkver Bronte til sölu Komið er fram örkver eftir Charlotte Bronte sem hefur ekki sést í rúma öld. „Ég vil alveg hiklaust selja brim- ið hér á Eyrarbakka og hreinlega markaðssetja það,“ var haft eft- ir Ása Markúsi Þórðarsyni í Morgunblaðinu 28. apríl 1992. „Brimið er eins og Gullfoss, þettar er náttúrufyrirbæri, sí- breytilegt og aldrei eins og það kemur ekki svo útlendingur hér að hann fari ekki niður á sjógarð að horfa á brimið.“ Rifjaði Ási Markús upp í viðtal- inu að hann hefði fengið enskan mann í heimsókn, sem hefði þanið út brjóstkassann á móti hafgolunni í fjörunni fyrir neðan Eyarbakka og sagt við konu sína: „Þetta er sko á við skoskt viskí.“ Vildi Ási Markús markaðs- setja brimið með því að gera upptöku með Björk og Syk- urmolunum þar sem brimið væri undirtónn og birta auglýs- ingu í Times þannig að þegar blaðið væri opnað blasti við mynd af briminu og brimhljóð kæmi úr litlum örgjörva í aug- lýsingunni. Brimið á Eyrarbakka er vissu- lega tilkomumikið og ljóst að straumur ferðamanna þar hefur snaraukist frá því fréttin birtist. Brimið er þó ekki enn farið að skáka Gullfossi. GAMLA FRÉTTIN „Brimið er eins og Gullfoss“ Voldugt brim skammt frá Eyrarbakka. Er brimið eins og Gullfoss? Morgunblaðið/Ómar Óskarsson ÞRÍFARAR VIKUNNAR Gollrir Skuggavera Vladimír Pútín Forseti Rússlands Dobbi Húsálfur

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.