Morgunblaðið - 05.07.2022, Blaðsíða 25
DÆGRADVÖL 25
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 5. JÚLÍ 2022
Nýmalað, engin hylki.
Suðurlandsbraut 20 · 108 Reykjavík
Sími: +354 5880200 · www.eirvik.is
Z10 fyrir heita og kalda kaffidrykki.
Ný kvörn, Product Recognising Grinder (P.R.G.), breytir sjálfkrafa
grófleika mölunar á milli mismunandi kaffidrykkja. Þetta gerir það
að verkum að í fyrsta skipti er hægt að hella upp á bæði heita og
kalda drykki með espresso aðferð. Upplifðu algerlega nýja leið til
þess að njóta kaffidrykkja. JURA – If you love coffee.
ÞÖKK SÉ SKÝJALAUSNUM GÁTU ÞEIR
UNNIÐ Í SAMA SKJALINU Á SAMA TÍMA. „LITLA, MIÐLUNGS EÐA STÓRA? ÞAÐ ER
KANNSKI ÓÞARFI AÐ SPYRJA?“
Ferdinand
Hrólfur hræðilegi
Grettir
... góði gaurinn minn.
Í klípu eftir Mike Baldwin eftir Jim UngerHermann
VARIST
MÖMMU
HUNDSINS
LEIKIÐ NÚ FALLEGA
SAMAN. ER ÞAÐ SKILIÐ?
JÁ,
MAMMA
JÁ, FRÚ
MÍN GÓÐ!
TAKTU ÞETTA!SLEPPTU
ÞESSU! TAKTU ÞETTA!
ÞETTA ER NÝI
SÉRFRÆÐ-
INGURINN
HANS HRÓLFS
UM RÁNSFENG!
HANN ER MATSMAÐUR HJÁ VEÐLÁNARA!
TAKTU ÞETTA!
stoða neytendur við ákvarðanir
tengdar fjármálum. Skráðir notendur
fyrirtækisins eru á milli tíu og fimm-
tán þúsund en InfoCapital sér fram á
að fjárfesta enn frekar í fyrirtækinu.
„Við erum að byrja með þetta hér-
lendis en lítum svo á að þetta geti
orðið næsta CreditInfo-ævintýrið er-
lendis.“
Hákon hefur verið stjórnar-
formaður LÍN, Sjúkratrygginga Ís-
lands og er núverandi stjórnar-
formaður Matís ohf. Þá hefur hann
setið í stjórnum fjölmargra félaga á
Íslandi, þar á meðal Nýsköpunar-
sjóðs atvinnulífsins, og erlendis, það
er í Georgíu, Lettlandi, Eistlandi og
Jamaíka.
Helstu áhugamál Hákons eru lax-
veiði, bridge, útivist og ferðalög. Há-
kon ætlar að verja afmælisvikunni í
veiðiferð í góðra vina hóp með vinum
og fjölskyldu í Stóru-Laxá.
Fjölskylda
Hákon á börnin Önnu Elísabetu, f.
6.1. 2003, og Stefán Orra, f. 19.7.
2005, með fyrrverandi eiginkonu
sinni Maríu Stefánsdóttur, f. 3.8.
1970. Stjúpdóttir þeirra og dóttir
Maríu úr fyrra sambandi er Fanney,
f. 26.11. 1992, verkfræðingur. Sam-
býlismaður hennar er Hreinn Bergs,
f. 24.6. 1991, viðskiptafræðingur. Þau
eiga dótturina Jóhönnu, f. 1.12. 2020.
Núverandi sambýliskona Hákons er
Ása Fríða Kjartansdóttir, f. 20.7.
1972, hjúkrunarfræðingur. Þau búa í
Kórahverfinu í Kópavogi. Bræður
Hákons eru Ásgeir Guðjón, f. 12.12.
1958. gæðaeftirlitsmaður í Kópavogi,
Stefán Örn, f. 16.8. 1960, framleiðslu-
stjóri í Reykjavík, og Friðfinnur Orri,
f. 1.6. 1969, sölu- og verslunarstjóri í
Kópavogi.
Foreldrar Hákons eru Stefán
Jónsson, f. 8.5. 1934, d. 24.12. 2021,
gjaldkeri, og Ingibjörg Ásgeirsdóttir,
f. 3.9. 1938, kennari og verslunar-
maður. Þau bjuggu lengst af á Dalvík
en fluttu í Kópavoginn þar sem Ingi-
björg býr í dag.
Hákon
Stefánsson
Guðrún Friðfinnsdóttir
húsfreyja á Böggvisstöðum á Dalvík
Loftur Baldvinsson
útvegsbóndi á
Böggvisstöðum á Dalvík
Þórgunnur Loftsdóttir
húsfreyja á Dalvík
Ásgeir Pétur Sigjónsson
kennari á Dalvík
Ingibjörg Ásgeirsdóttir
kennari og verslunarmaður
á Dalvík
Ingibjörg Gísladóttir
húsfreyja á Fornustekkum í Hornafirði
Sigjón Pétursson
bóndi á Fornustekkum í Hornafirði
Filippía Sigurjónsdóttir
húsfreyja í Gröf í Svarfaðardal
Stefán Arngrímsson
bóndi í Gröf í Svarfaðardal
AnnaArnfríður Stefánsdóttir
húsfreyja á Dalvík
Jón Jónsson
skólastjóri á Dalvík
Guðrún Jóhanna Sigurjónsdóttir
vinnukona á Völlum í Svarfaðardal
Jón Sigtryggur Jónsson
bóndi á Upsaströnd við Dalvík
Ætt Hákons Stefánssonar
Stefán Jónsson
gjaldkeri á Dalvík
Ingólfur Ómar laumaði að mér
einni sumarvísu svona í tilefni 1.
dags júlímánaðar.
Gáski ræður gjarnan för
gleðin tekur völdin.
Nú er lundin létt og ör
og ljósbjört sumarkvöldin.
Landsmót hestamanna verður á
Hellu 3. til 10. júlí. Enn kveður Ing-
ólfur Ómar og nú á Boðnarmiði:
Þar sem fögur fákareið
fangar gleði sanna,
þangað mun ég leggja leið
á landsmót hestamanna.
Jón Gissurarson svaraði: „Ég hef
ekki farið á hestamannamót í ein-
hverja áratugi, en fór á allmörg á
yngri árum og hafði gaman af.“
Gjarna fannst mér gæfu stig
gleðina að kanna,
Lukkan meðan leiddi mig
á landsmót hestamanna.
Sigurlín Hermannsdóttir segir,
að sumarið sé ekki bara sól og sæla:
Enn koma upp kórónusmit,
kolbrúnt er birkið á lit,
vaxtamál alls ekkert vit,
og virðist nú mikið um bit.
Sigurlín hætti störfum á Alþingi
nú um mánaðamótin. Ólafur Stef-
ánsson sendi henni góðar óskir:
Á Alþingi er ærsl og grín,
enginn neitt að skammast sín.
Gekk þar um svo glæst og fín,
góða konan Sigurlín.
Úr heimi þessum hverfa má,
hissa lítur sviðið á.
Fer í bústað, forðast krá,
fetar nýja slóð hér frá.
Sigurlín svaraði:
Vistaskipti skapast fín,
skálda má ég upp á grín.
Góð er óskin, þessi þín
og þakkar konan, Sigurlín.
Guðmundur Arnfinnsson yrkir 1.
júlí kl. 10.06 og kallar Sumardag:
Svartþrösturinn syngur brag,
sjást ei ljón á vegi.
Bý ég nú við besta hag
á björtum júlídegi.
„Oft var þörf“ segir Hallmundur
Kristinsson:
Það er ljóst að þörf er brýn.
Í þjóri náum metinu.
Nauðsynlegt að veita vín
og versla það á netinu.
Þetta kallar Ármann Þor-
grímsson „Lúxus líf“:
Ellin hún er yndisleg
úr öllum liðum brjóskið fer
þó rambi oftast réttan veg
rásmark löngu horfið er.
Halldór Blöndal
halldorblondal@simnet.is
Vísnahorn
Ljósbjört sumarkvöld
og fákareið