Fréttabréf Stómasamtakanna - 01.02.1997, Page 4

Fréttabréf Stómasamtakanna - 01.02.1997, Page 4
Nýjung í þjónustu Stómavörur í Lyfju Þegar lyfjaverslunin Lylja hóf starfsemi sina 11. apríl 1996 að frumkvæði tveggja lyfjafræðinga var ákveðið að hafa m.a. vörur fyrir stómaþega á boðstólum. Guðríður Þorsteinsdóttir hjúkrunar- fræðingur var ráðinn til fyrirtækisins fyrst og frentst til að annast þjónustu við stómaþega. Hún hefiir góða þekkingu á stómavörum og þörfum stómaþega því hún vann í 25 ár á Borgarspítalanum (Sjúkralnisi Reykjavíkur) m. a. við aðhlynningu stómaþega. Guðríður er fyrsti hjúkrunarfræðingurinn hér á landi sem ráðinn er til starfa í lyfjaverslun. I Lyfju eru eingöngu stómavörur ffá breska fyrirtækinu ConvaTec en meginlduti stómaþega notar vörur frá því. Kosturinn við Lyfju er sá að þar er opið alla daga vikunnar frá kl. 9 á morgnana til kl. 10 á kvöldin. Þar er því hægðarleikur einn að nálgast þessar vörur utan hefðbundins vinnutíma. Guðríður er við alla virka daga kl. 9-18, nema á þriðjudögum kl. 12-18. Utan þess tíma sér annað starfsfólk um afgreiðslu á stómavörum. Tíðindamaður Fréttabréfsins leit við hjá Guðriði á dögunum og spurði hana hverjir hefðu notfært sér þennan þátt í þjónustu Lyfju. Hún sagði að það væru aðallega nýútskrifaðir stómaþegar en einnig er eitthvað um að eldri stómaþegar kæmu. Þar fyrir utan væri alltaf eittlivað um heimsendingarþjónustu úti á land. Hún kvað ekkert óeðlilegt þótt eldri stómaþegar liéldu sig við Hjálpartækja- bankann því þeir sem væru góðu vanir þar vildu síður breyta til. Það er liins vegar ótvíræður kostur að afgreiðslutími Lyfju er langur en það er að sögn Guðríðar ekki nema sjálfsögð þjónusta að stóinaþegar geti nálgast þær vörur sem þeir þurfa á þeim tíma dagsins sem hentar þeim best. í Lyfju er einnig mjög góð aðstaða til að sinna stómaþegum. Starfssvið Guðríður er að sjálfsögðu ekki bundið við stómaþega. Hún veitir einnig ráðgjöf um hjúkrunarvörur almennt, m.a. þvagleka- og stoðvörur. Guðríður vann lengi á Borgar- spítalanum m.a. við að undirbúa sjúklinga undir stómaaðgerð og annast þá á eftir eins og þegar hefúr komið fram. Þar vann hún undir handleiðslu Elísabetar Ingólfsdóttur sem var fyrst allra hérlendis til að læra stómahjúkrun. „Það var ómetanlegu skóli að vinna með henni,“ sagði Guðríður að lokum. Rítstjóri: Sigurður Jón Ólafsson, Grettisgðtu 28B, 101 Reykjavík, sími 551 6366. Uppsetning, ljósritun og pökkun: Krabbameinsfélagið. INTERNATIONAL 0ST0MY ASSOCIATION Fréttabréf Stómasamtakanna Útgefandi: Stómasamtök íslands (ISILCO), Skógarhlíð 8, Reykjavík. Sími 562 1414. Pósthólf 5420, 125 Reykjavík.

x

Fréttabréf Stómasamtakanna

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttabréf Stómasamtakanna
https://timarit.is/publication/1686

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.