Fréttabréf Stómasamtakanna - 01.11.2013, Blaðsíða 3

Fréttabréf Stómasamtakanna - 01.11.2013, Blaðsíða 3
stjómsemi maka, sem meinar vel og vill tryggja velferð sjúklingsins, en gerir það óvart af mikilli stjómsemi og tekur ábyrgð af sjúklingnum, sem hann á ekki að gera. Þessir makar sýna með hegðun sinni í raun það viðhorf að sjúklingurinn sé ekki hæfúr til að sjá um sig sjálfur og að þeir treysti þeim ekki til þess. Einmitt þess vegna getur þetta valdið mikilli spennu á milli hjóna, því þetta á aðeins við þegar umönnunin er komin út fyrir það sem eðlilegt er og fram úr því sem sjúklingurinn sjálfúr vill.“ Geta langvarandi veikindi haft áhrif á andlega og líkamlega líðan maka og þá hvernig? „Já, langvarandi veikindi geta haft mjög mikil áhrif á andlega og líkamlega líðan maka. Aftur þá er það auðvitað mikil einföldun að taka þetta saman í stutt svar en flestir makar upplifa stór skil í lífi sínu alveg eins og sjúklingurinn þegar veikindin skella á. Þá er ákveðin sorg sem tekur yfir missi á getu og fæmi. Hlutverk breytast og framtíðardraumamir raskast, orkan verður minni og fólk breytist. Ymiss konar afleiðingar veikinda herja á en þær em misjafnar hjá hverjum og einum. Sjúklingar þurfa oft að syrgja það sem þeir vom eða gátu og taka á móti nýjum veruleika, en makinn þarf líka að syrgja það sem sjúklingurinn var eða gat og taka á móti nýjum veruleika þeirra beggja. Margir upplifa ákveðna reiði í þessu sambandi líka. Áhrif þessara breytinga og álagsins em víðtæk og ekki endilega minni á makann. Það er mjög algengt að makar þrói með sér streitu, depurð eða þunglyndi og kvíða enda erfiðar aðstæður sem fólk er í og því eðlilega erfitt að takast á við þær. í sambandi við líkamleg áhrif á makann þá gerast þau til dæmis þannig að þetta álag og oft erfíð andleg líðan breytir lífs- og lífsstílsmynstri fólks. Almenn virkni í daglegu lífi minnkar oft og fólk leitar í auðveldar lausnir til að létta sér lífið eins og aðkeyptan mat og auðsótta orku. Hreyfmg verður minni, því þreytan og orkuleysið er meira og minni tími aflögu. Margir lenda einnig í vanda með svefn. Þessir þættir era grunnstoðimar okkar sem við þurfum alltaf að reyna að hafa í lagi en sérstaklega þegar á reynir því við þurfúm þær til að halda jafnvægi, bæði líkamlegu og andlegu.“ Fræðslufundur 6. febrúar Stómasamtök íslands halda fræðslufúnd fimmtudaginn 6. febrúar 2014 kl. 20 í húsnæði Ráðgjafarþjónustu Krabbameinsfélagsins að Skógarhlíð 8, 1. hæð. Dagskrá auglýst síðar.

x

Fréttabréf Stómasamtakanna

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttabréf Stómasamtakanna
https://timarit.is/publication/1686

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.