Fréttabréf Stómasamtakanna - 01.11.2013, Side 4

Fréttabréf Stómasamtakanna - 01.11.2013, Side 4
Matstæki fyrir stómabega Hvaða stómavörur henta? í byrjun þessa árs kom Geirþrúður Pálsdóttir, hjúkrunarfræðingur hjá Icepharma, á fúnd hjá Stómasamtökunum til að kynna nýtt matstæki fyrir stómaþega, ,3ody Check“ frá Coloplast. Tilgangurinn með þessu er sá að stómaþegar geta kannað, með því að svara nokkrum einföldum spumingum, hvaða stómavörar frá Coloplast henta þeim best. Þetta er gert með því að fara inn á heimasíðu Coloplast, sem er colopIast.dk, smella á linkinn stomi og velja BodyCheck. Þar er svarað átta spumingum um líkamslögun, húðina, staðsetningu og lögun stóma. Ef danskan skyldi eitthvað vefjast fyrir fólki er hægt að skoða skýringamyndir áður en merkt er við rétt svar. I lokin kemur svo svarið hvaða stómavörur henta hverjum fyrir sig best - eða jafnvel að verið sé að nota réttu vörumar. Vel hefur verið vandað við gerð matstækisins því um 300 stómahjúkrunar- fræðingar víðs vegar að úr heiminum hafa komið að þessu matstæki. Við slógum á þráðinn til Geirþrúðar og spurðum hana hvort ekki stæði til að þýða þetta mat yfir á íslensku. „Það er á áætlun að þýða matstækið á íslensku í samvinnu við stómahjúkmnar- fræðinga og stómaþega. Það er mikið verk því það em 650 mismunandi ráðlegg- ingar í gagnagmnninum. Afar mikilvægt er í þessu sambandi að velja rétt orð yfir þau íslensku hugtök sem notuð em, svo að allir tali sama mál. Reynslan hefur nefnilega sýnt að þetta nýtist ekki einungis stómaþegum til einkanota heldur einnig sem samskiptatæki milli hjúkmnarfræðinga annars vegar og hjúkmnarfræðinga og þeirra stómaþega sem eiga um langan veg að fara til að sækja sér aðstoð. Þá er ekki síður mikilvægt að hugtökin séu skýr til að koma í veg fýrir misskilning. Ég geri mér vonir um að þýðingin geti hafist í febrúar eða mars á næsta ári,“ segir Geirþrúður. Stómasamtök íslands. Stofnuð 16. október 1980. Formaður: Jón Þorkelsson, símar 565 2434 og 696 4395, jon@hyggir.is Aðrir í stjórn: Sigurður Jón Olafsson ritari, Eva Bergmann, Inger Rós Jónsdóttir fulltrúi ungliða og Kristján Freyr Helgason gjaldkeri. Sími samtakanna er 847 0694. Vefsíða: www.stoma.is Netfang: stoma@stoma.is Stómasamtök Islands eiga aðild að Krabbameinsfélagi Islands og Öryrkjabandalaginu. Fréttabréf Stómasamtakanna. Ritstjóri: Sigurður Jón Ólafsson, sími 551 6366, sjo@centrum.is Brot og pökkun: Asta Lilja Kristjánsdóttir

x

Fréttabréf Stómasamtakanna

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttabréf Stómasamtakanna
https://timarit.is/publication/1686

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.