Austurglugginn - 06.06.2002, Page 1
Vel heppnaður sjómannadagur
Hátíðahöld í tilefni sjómanna-
dagsins voru glæsileg í ár að
vanda og má ætla að margir hafi
blotnað rækilega hvort heldur var
að innan eða utan.
A þessari skemmtilegu mynd
hér til hliðar, sem Aðalheiður
Borgþórsdóttir tók, etja Seyð-
firðingar kappi í koddaslag yfir
höfninni. Einnig fór fram limbó-
keppni frambjóðenda í nýafstöðn-
um bæjarstjómarkosningum og
reyndust frambjóðendumir mis-
sveigjanlegir.
Agætis veður var á flestum
stöðum á Austurlandi, þó heldur
bjartara eftir því sem sunnar dróg.
Fleiri svipmyndir frá hátíðar-
degi sjómanna á Austurlandi
birtast í miðopnu blaðsins að
þessu sinni.
Breytt landslag
Nú er orðið nokkuð ljóst hvemig
sveitarstjómir verða skipaðar hér
eystra á næsta kjörtímabili. I
flestum stærstu sveitarfélögunum
er búið að ganga frá myndun
meirihluta og ljóst er að hið
pólitíska landslag hefur breyst
talsvert. Ef skoðuð em kosninga-
úrslit í sveitarfélögum með yfir
400 íbúa, kemur í ljós að hvergi
verður sami meirihluti við völd og
á síðasta kjörtímabili. A þremur
þessara staða koma einnig nýir
menn í stöður sveitar- eða bæjar-
stjóra.
A Homafírði hafa D-listi og B-
listi myndað meirihluta og Albert
Eymundsson verður áfram bæjar-
stjóri. I Djúpavogshreppi hlaut N-
listi hreinan meirihluta og þar er
staða sveitarstjóra laus. í Búða-
hreppi hlaut B-listi hreinan
meirihluta og Steinþór Pétursson
verður sveitarstjóri áfram. I
Fjarðabyggð hafa L-listi og B-listi
myndað meirihluta og Guðmundur
Bjamason verður þar bæjarstjóri
áfram. A Seyðisfírði mynda B-listi
og T-listi meihluta og þar er staða
bæjarstjóra laus. A Austur-Héraði
hafa D-listi og L-listi myndað
meirihluta og þar er sömuleiðis
laus staða bæjarstjóra.
I Fellahreppi hafa B-listi og F-
listi gert drög að samstarfs-
samningi og þar verður Jens P.
Jensen áfram sveitarstjóri. A
Vopnafirði hlaut K-listinn hreinan
meirihluta og Þorsteinn Steinsson
verður sveitarstjóri áfram.
Samherji, Síldarvinnslan og SR Mjöl:
Hlutafjárkaup upp á þrjá milljarða
Eins og sagt var frá í síðasta tölu-
blaði Austurgluggans festu Síldar-
vinnslan hf. og Samherji hf. kaup
á stómm hlut í SR Mjöli í síðustu
viku.
Fyrir kaupin áttu fýrirtækin tvö
um fimm prósent hvort í SR Mjöli.
Samherji bætti við sig um átta
prósenta hlut en Síldarvinnslan
bætti við sig þrefalt meira, eða
tuttugu og ljögurra prósenta hlut.
Samtals eiga fyrirækin því 42%
hlut í SR Mjöli en talið er að
kaupin hafi kostað um tvo
milljarða króna.
Síldarvinnslan og Samherji
hafa haft náið samstarf sín á milli
til nokkurra ára, eiga meðal annars
saman fyrirtæki í fiskeldi og í
markaðs- og sölumálum. Þau hafa
einnig haft samstarf við SR Mjöl í
sölu á mjöl og lýsi.
Undanfama mánuði hefur
Samherji styrkt þetta samband sitt
við Síldarvinnsluna enn frekar
með beinum kaupum á hluta-
bréfum í fyrirtækinu. Fyrir átti
Samherji rúm 10% í Síldar-
vinnslunni með óbeinum hætti í
gegnum 55% eignarhlut í Snæfugli
sem aftur á tæplega 19% hlut í
Síldarvinnslunni. A tímabilinu frá
byrjun febrúar til loka maí keypti
Samherji beinan eignarhlut í
Síldarvinnslunni upp á rúm 16%
alls, fyrir um eirm milljarð króna.
Eftir þessi kaup á Samherji nærri
27% hlut í Síldarvinnslunni beint
eða óbeint, en stjómar í raun 35%
hlutaíjár vegna meirihlutaeignar
sinnar í Snæfugli.
Stærstu hluthafar Síldarvinnsl-
unnar eftir þessi síðustu kaup
Samherja em Snæfugl ehf. með
tæp 19%, Burðarás ehf. með rúm
18%, Samherji með rúm 16% og
Samvinnufélag Utgerðarmanna
(SÚN) með tæp 16%. Aðrir
hluthafar eiga mun minni hluti.
Burðarás er í eigu Eimskipafélag
íslands en þar á bæ hafa menn
gefið það út að þeir vilji selja hlut
sinn í ýmsum fyrirtækjum, þar á
meðal Síldarvinnslunni.
Samvinna og hagræding
I samtali við Austurgluggann
sagði Björgólfur Jóhannsson for-
stjóri Síldarvinnslunnar að til-
gangur með kaupum á hlutafé í SR
Mjöli væri meðal annars að
tryggja hag fyrirtækisins í þeirri
hagræðingu sem framundan væri í
vinnslu á uppsjávarfiski.
I viðtali við Austurgluggann
tók Finnbogi Jónsson, stjómarfor-
maður Samherja, í sama streng.
„Megin markmiðið er að auka
samstarf og að ná auknu hagræði,
bæði í veiðum og vinnslu,“ sagði
Finnbogi. Ástæður þess að
Samherji hefði keypt hlutafé í
Síldarvinnslunni sagði Finnbogi
fyrst og fremst vera þá að
„Síldarvinnslan er mjög gott og
áhugavert félag sem býr að öflugu
og góðu starfsfólki og ekki síður
stjómendum.“ En stendur til að
kaupa enn stærri hlut? „Við höfum
ekkert á móti því að eiga meira í
Síldarvinnslunni“, sagði Finnbogi.
Of margar verksmiðjur?
Fyrirtækin þrjú, Samherji, Síldar-
vinnslan og SR Mjöl, reka alls tíu
fískimjölsverksmiðjur á Islandi
með einum eða öðmm hætti.
Samherji á verksmiðju í Grindavík
og helmings hlut í annarri á
Þórshöfn á móti Hraðfrystihúsi
Þórshafnar. Síldarvinnslan á verk-
smiðju í Neskaupstað og 75% hlut
í Barðsnesi sem aftur rekur verk-
smiðju í Sandgerði. SR Mjöl á og
rekur verksmiðjur á Siglufirði,
Raufarhöfn, Seyðisfirði, Reyðar-
firði og Keflavík og helmings hlut
í verksmiðju á Homafirði á móti
Skinney-Þinganesi. Auk þess hefur
SR Mjöl verið að styrkja eignar-
hlut sinn í ýmsum útgerðum und-
anfarin ár til að tryggja aðgang að
hráefni.
Hagræðing í rekstri þessara
þriggja fyrirtækja yrði væntanlega
ekki síst með því formi að fækka
verksmiðjum. Af verksmiðjunum
tíu em þrjár á Suðumesjunum, ein
á Suðausturlandi, þrjár á Mið-
austurlandi, tvær á Norð-
austurlandi og ein á Norðurlandi.
Staðsetning, ásigkomulag og eign-
arhald verksmiðjanna myndi vænt-
anlega ráða mestu um hverjar yrðu
hugsanlega lagðar niður og hverjar
styrktar.
Að sögn Björgólfs Jóhanns-
sonar forstjóra Síldarvinnslunnar
hf. er með kaupunum „verið að
horfa til þess að vera í fararbroddi
í hagræðingu á vinnslu á upp-
sjávarfiski og þetta mun leiða til
fækkunar verksmiðja. En áhrifin
verða ekki mikil á Austurlandi."
BÞ
Dekurstofa Stebbu
S.477 1569 & 896 2058
» SPARISJÓÐURINN Alhliða verktakastarfsemi
-fyrirþigogþína Sparisjóður NorðQarðar Haki ehf. Neskaupstað
Fjarðabyggð s. 892 5855
Legsteinar
Minnisvarðar
iSfk
Sími: 472 9977
Fax: 472 9877
www.alfasteinn.is / alfasteinn@alfasteinn.is
>"ús
koncf.
■1»]
'M
❖
m
B4KARllÐ PSTAö
Opíð 7-17
s: 477 1306