Austurglugginn - 06.06.2002, Síða 5
Fimmtudagur 6. júní
AUSTUR • GLUGGINN - 5
Með sól í hjarta og söng á vörum
Unnið að uppsetningu listaverks í Ljómatjarnargarðinum. Alis voru sett
upp níu iistaverk ígarðinum og verða þau þar fram á haust.
Hin efnilega hljómsveit Ritalin.
Uppskeruhátíð var haldin í Grunn-
skóla Egilsstaða og Eiða síðast-
liðinn föstudag og var margt um
dýrðir.
Börkur Vígþórsson skólastjóri
sagði að hátíðin hefði verið vel
heppnuð. „Við byrjuðum í skólan-
um og þar fluttu menn leikatriði
og tónlistaratriði. Síðan lá leiðin út
í Tjamargarð en þar em níu
listaverk sem unnin voru af 80
Listahátíðin „Á seyði“ verður
opnuð formlega í Skaftfelli,
menningarmiðstöð Seyðisfjarðar,
14. júní klukkan 17:00. Af því
tilefni verður opnuð myndlistar-
sýning á verkum Georgs Guðna og
Peter Frie. Fjölmargir viðburðir
em á dagskrá listahátíðar að þessu
sinni, ýmsar sýningar, Karlinn í
tunglinu - menningardagur bama
29. júní, Lunga 17. - 21. júlí,
Norskir dagar 13. - 17. júní og
margt fleira.
Bláa kirkjan
Einna hæst ber tónleikaröðin Bláa
kirkjan sem er hluti af lista-
hátíðinni fimmta árið í röð. Bláa
kirkjan em sumartónleikar og eru
þeir haldnir á hverju miðviku-
dagskvöldi frá 19. júní til 31.
ágúst.
Tónleikamir hafa vakið mikla
athygli fyrir metnaðarfulla dagskrá
en aðstandandi hljómleikanna frá
upphafi, Muff Worden, hefur lagt
sig fram við að fá fræga og
merkilega tónlistarmenn til að
koma fram. Orðstír Bláu kirkjunn-
ar er reyndar orðinn slíkur að
tónlistarmenn sækjast eftir því að
fá að koma fram. I hljómleika-
röðinni verður eitthvað við allra
hæfi, í fallegu umhverfi.
Muff Worden
Muff Worden, stjómandi Bláu
kirkjunnar, fæddist á austurströnd
Bandaríkjanna. Faðir hennar var
olíuverkfræðingur en móðirin
ópemsöngkona. Fjölskyldan bjó
víða vegna starfa föðursins, meðal
annars í Kína, Italíu og Skotlandi.
Sjálf talar hún mörg tungumál og
segist að auki geta búið til ekta
pasta og sósu eins og Italir gera
hana.
krökkum úr skólanum, en heildar-
ijöldi nemenda er 285 böm.
Sýningin var formlega opnuð og
við afhentum Bæjarstjóra verkin
til varðveislu í sumar og mun
bærinn sjá um viðhald á þeim,“
sagði Börkur.
Uppskemhátíðin fylgir í kjölfar
Þemadaga sem haldnir vom 27. til
31. maí. Þar var öllum krökkum
skólans frá 3.-9. bekk skipt upp í
Muff er menntuð í söng og
tónlistarsögu frá háskólanum í
Pensylvaniu. Hún bjó í Boston í
10 ár og vann fyrir sér með söng
og tónlistarkennslu en áhuginn var
víða og hún fór meðal annars til
Skotlands til að kynna sér ættfræði
sína ásamt skoskri tónlist, sögu og
menningu.
Fyrir nokkrum árum hafði
vinkona hennar sem bjó á Seyðis-
firði samband við hana og sagði
henni að hér vantaði tónlistar-
kennara í afleysingar. Muff kom
hingað og heillaðist algerlega af
10-12 manna hópa óháð aldri.
Síðan gátu þau valið hvort þau
vildu leggja stund á Ijölmiðla,
tónlist, leiktækjagerð, leiklist eða
listaverkagerð, sem langflestir
kusu.
Eftir að hafa afhent listaverkin
sem em geysilega skemmtileg og
prýða nú Tjamargarðinn fóru
krakkamir upp á íþróttavöll þar
sem þau kepptu í boðhlaupi og
síðan var teitinu slúttað með
grilluðum pylsum í skólanum.
„Þrátt fyrir ekki alveg nógu gott
veður emm við öll með sól í hjarta
eftir þessa daga,“ sagði Börkur.
Ákaflega góður andi virðist
ríkja í skólanum og leystu krakk-
arnir þau verkefni er þeim voru
falin á þemadögunum á virkilega
vandvirkan og skemmtilegan hátt.
Sérstaklega þótti blaðakonu
Austurgluggans mikið til hljóm-
sveitarinnar Ritalin koma en hún
er skipuð drengjum úr skólanum
sem kunna svo sannarlega að
rokka. Ekki er nokkur spurning á
að þeir sem þar að koma eiga eftir
að verða stjömur framtíðarinnar í
þungarokki ef þeir halda áfram á
sömu braut. ko
hrikalegu og mögnuðu landslagi,
hreina loftinu og kyrrðinni og
hefur verið á Seyðisfirði síðan.
Hún starfar nú sem söngkennari
við tónlistarskólann, söngkona,
atvinnutónlistarmaður og fram-
kvæmdastjóri Bláu kirkjunar. Auk
þess spilar hún í Ceilidh bandi á
Seyðisfirði. Hún heldur líka áfram
að rannsaka sögu og tónlist
Skotlands, Islands, Hjaltlands,
Orkneyja, Vestureyja, Færeyja og
Irlands.
KÞ
Vikuna 27.-31. maí var þemavika
hjá Egilsstaðaskóla. Þema vik-
unnar var Heimabyggðin og
hreyfing. Nemendum 3.-9. bekkjar
var blandað saman í fimm hópa og
þau unnu frá mánudegi til fimmtu-
dags. Á föstudeginum var svo
uppskeruhátíð þar sem krakkamir
nutu afraksturs vikunnar. Verkefn-
in sem hægt var að velja um vom:
Leiktæki, listaverk, leiklist,
tónlist og fjölmiðlar og fréttir. Auk
þess var hreyfivika sömu vikunna
og var hreyfmg á hverjum degi
nema föstudag. Boðið var uppá að
fara í sund, ratleik, þrautir, o.fl.
Leiktækjahópurinn gerði ýmis-
legt undir stjóm Hjalta Þorkells-
sonar.
Listaverkahópurinn gerði mörg
listaverk í Ljómatjamargarðinum
og verða verkin þar fram á haust.
Leiklistarhópurinn samdi leikrit
undir stjóm Elvu Clausen, Bimu
Bjömsdóttur, Eygló Hrannar
Ægisdóttur og Sigríði Friðnýju
Halldórsdóttur.
Tónlistarhópurinn var undir
stjóm Ástu Bryndísar Schram og
Michelle Lynn Mielnik og það var
stofnuð ein hljómsveit að nafni
KRK.
Fjölmiðla og fréttahópurinn
gerði blað og gaf út á þriðjudegi til
fimmtudags. Þau unnu einnig að
heimildarmyndbandi og tóku
myndir af hinu og þessu og allt
undir stjóm Laufeyjar Eiríksdóttur
og Vigdísar M. Sveinbjömsdóttur.
Eiðakrakkamir unnu þema um
fugla, umhverfi og útivist.
Steinar Pálmi Agústsson, fjölmiðlahópi.
9.bekk EGS.Skóla
Sláttur fyrir
eldri borgara
í sumar er eldri borgurum og öryrkjum í Fjarðabyggð
gefinn kostur á að fá lóðir sínar slegnar.
Þessi þjónusta er einungis hugsuð fyrir þá sem
nauðsynlega þurfa á aðstoð að halda við slátt á
lóðum sínum.
Þjónusta þessi stendur til boða þrisvar yfir sumarið
frá 10. júní til 9. ágúst og er gjald fyrir hvert skipti
2.500 kr.
Tekið verður á móti pöntunum á bæjarskrifstofunum
og í síma 470-9000.
Pantanir verða að berast fyrir 17. júní n.k.
Verktakar sem í sumar hyggjast bjóða upp á slátt
fyrir einstaklinga eru beðnir um að hafa samband við
undirritaðan sem fyrst.
Forstöðumaður umhverfismálasviðs Fjarðabyggðar
470 9000 & mummi@fjardabyggd.is
Listahátíðin „Á seyði":
Muff stjórnar Bláu kirkjunni
fimmta árið í röð
Muff Worden, söngkona og framkvœmdastjóri Bláu kirkjunnar.