Austurglugginn


Austurglugginn - 06.06.2002, Page 6

Austurglugginn - 06.06.2002, Page 6
6 - AUSTUR • GLUGGINN Fimmtudagur 6. júní Aðalfundur Rauda krossins á Egilsstödum: Nýr formadur kiörinn Frá aðalfundinum í Valaskjá/f Aðalfundur Rauða kross íslands var haldinn á Egilsstöðum í lok síðustu viku og sátu fundinn á annað hundruð fidltrúar frá 42 deildum. Helst bar til tíðinda á fundinum að Akureyringurinn Ulfar Hauks- son var kjörinn nýr formaður Rauða krossins en hann tekur við af Önnu Þrúði Þorkelsdóttur, sem hverfur úr stjóm eftir 30 ára starf sem sjálfboðaliði Rauða krossins. Úlfar var kjörinn með dynjandi lófataki á aðalfundi þar sem einnig voru samþykktar stefnuyfirlýsing- ar í þremur málaflokkum, um skyndihjálp, málefni útlendinga og málsvarastarf. Fundurinn þótti vel heppnaður í alla staði og vöktu „opin hús“ sem haldin vom í húsnæði Mennta- skólans á Egilsstöðum á laugar- daginn talsverða athygli. Þar kynntu margar deildir og fulltrúar aðalskrifstofu ýmis verkefni. Bjöm Hafþór Guðmundsson, bæjarstjór Austur-Héraðs flutti ávarp á setnignarathöfninni í Valaskjálf. „Við erum stolt af löndum okkar sem láta ekki sitt eftir liggja og lina þjáningu bræðra og systra sinna,“ sagði Bjöm Hafþór um sjálfboðaliða RKÍ. Bæjarstjórinn talaði um hreppa- ríg sem enn reyndist Austfirðing- um því miður fjötur um fót og væri í raun ekkert annað en for- dómar eftir búsetu. „Við emm stolt af því að hafa ykkur sem gesti okkar“, sagði Bjöm að lokinni ræðu sinni. Nemendur og kennarar í Tón- listarskólanum á Austur-Héraði fluttu vandaða tónlist á milli atriðanna við ágætar undirtökur viðstaddra. Einn liður í setningarathöfn aðalfundarins var veiting viður- kenninga til sjálfboðaliða og deilda. Viðurkenningar vom veittar fyrir ýmiss störf innan Rauða krossins svo sem ungliðastarf, stuttmyndagerð, vinalínuverkefni, ökuvinaverkefni og ýmislegt annað. Fáskrúðsfirðingurinn Sigríður Jónsdóttir var meðal þeirra sem hlaut verðlaun fyrir gott starf. Hún var formaður Rauða krossdeildar Fáskrúðsfjarðar í áratug og hélt meðal annars fundi félagsins á heimili sínu til langs tíma. Austurglugginn spurði Önnu hvað stæði upp úr eftir áralangt starf með Rauða krossinum. „Þetta var bara svo rosalega skemmtilegt að vera með fólkinu og fmna hversu þakklátir allir vom fyrir það sem maður var að gera,“ sagði Anna. Með minnisstæðustu atburðum á löngum starfsferli sínu segir Anna vera starf með eldri borgumm. „Við vomm með opið hús fyrir eldra fólkið og það var mjög skemmtilegt. Við fómm einnig með böm í eina viku í Staðaborg og þá datt okkur í hug að fara með eldra fólkið í svipaða ferð sem var alveg ótrúlega skemmtileg. Fólkið sem í ferðina fór var kallað Staðarborgargengið eftir á. Það var spilað bingó á hverju kvöldi og farið í Heydala- kirkju þar sem var messað fyrir okkur. Seinasta daginn var haldið ball í félagsheimilinu fyrir eldra fólk á Fáskrúðsfirði, Stöðvarfirði og Breiðdalsvík sem var alveg meiri háttar skemmtilegt og alls konar uppákomur, grín og glens,“ sagði Anna. ko Úlfar Hauksson nýkjörinn for- maður Rauða kross Islands. „Nú ætla éq að gera það sem ég vil" Anna Þrúður Þorkelsdóttir flytur hér áhrifamikið setningarávarp á aðal- fundinum. Á hana hlýða aðrir mælendur setningarathafnarinnar, frá vinstri: Gunnlaugur Dan Ólafsson varaformaður RKI sem einnig /ætur af störfum, Júlía Siglaugsdóttir formaður Héraós- og Borgarfjarðardeildar RKÍ, og Björn Hafþór Guðmundsson bœjarstjóri Austur-Héraðs. Anna Þrúður fráfarandi formaður samtakanna hyggur nú á sjálf- boðaliðastarf til Suður-Afríku. Hún fæddist í Fljótsdal árið 1936 og á litríkan og baráttuglaðan feril að baki. Hún er fúll af smitandi lífsgleði og hefúr alltaf talið sig Austfirðing í húð og hár. Austurglugginn greip Önnu Þrúði glóðvolga á milli atriða á setningarathöfn fundarins og spurði hana örfárra spuminga. Austurglugginn (agl): Hvemig stendur á því að þú hafnaðir í starfi formanns Rauða kross íslands? Anna: Ég hef alltaf verið mikil hugsjónamanneskja og er alin upp við austfirska gestrisni og greiða- semi sem hafði árhrif á mig. Agl: Finnst þér þú vera að koma heim þegar þú kemur hingað austur? Anna: Já. Þrátt fyrir að ég hafi bara verið fjögurra ára þegar ég flutti héðan á ég enn mjög sterkar rætur hér og á hér skyldmenni. Foreldrar mínir vom bæði Jökul- dælingar og hétu Þorkell Bjöms- son sem var kenndur við Hnefils- dal og Anna Eiríksdóttir frá Skjöldólfsstöðum. Mér finnst yndislegt að koma hingað og þetta er fallegast hluti landsins - að sjálfsögðu. Ég er ofboðslega stolt af því að vera Austfirðingur því þeir eru bæði stoltir en taka sig heldur ekki of hátíðlega. Agl: Nú ert þú að fara til Suður-Afríku til að sinna hjálpar- starfi, hvemig kom það til? Anna: Ég er alltaf til í allt. Flestar konur á mínum aldri em settar í mggustól og þeim sagt að bíða í 30 ár eftir að þær deyi en ég ætla ekki að gera það. Agl: Hvað ætlarðu að gera þegar þú hefúr lokið hjálpar- starfinu? Anna: Það veit ég nú ekki. Þetta verður ekki minna en ár sem ég dvelst úti. Kannski flyt ég bara hingað á Austurland þegar því er lokið. Hér er nóg af eyðijörðum og ég kem þá kannski með eitthvað af bömum frá Afríku með mér og sest hér að. Agl: Jæja best að sleppa þér. Gangi þér vel og farðu varlega í Afríku. Anna: Ég er búin að fara svo varlega allt mitt líf að nú ætla ég bara að gefa skít í þetta og gera það sem ég vil (hlær hátt). KO Sigríður Jónsdóttir heldur hér á gullnælu merkta Rauða krossinum og viðurkenningarskjali fyrir störf sín í Fáskrúósfjarðardeild Rauða krossins. Eiginmaður hennar, Kári Jónsson, stendur fyrir aftan hana.

x

Austurglugginn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Austurglugginn
https://timarit.is/publication/1687

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.