Austurglugginn


Austurglugginn - 06.06.2002, Blaðsíða 8

Austurglugginn - 06.06.2002, Blaðsíða 8
8 - AUSTUR • GLUGGINN Fimmtudagur 6. júní Katrín Guðmundsdóttir flytur ávarp við opnum Verkstœðis Kötu á Eskifirði siðastliðinn fóstudag. Verkstæði Kötu enduropnað Gunni og Felix á flakki Gunni og Felix í stuði að vanda. Vonandi verða þeir á hraðskreiðara farartœki en þeir sjást hér með þar sem þeir eiga eftir að heimsœkja mikið af kökkum um allt land. Bestu vinir bamanna undanfarin ár, þeir Gunni og Felix em öllum krökkum kunnugir fyrir vandað og skemmtilegt bamaefni. Félagam- ir, sem era kannski einna best þekktir fyrir umsjónina með Stundinni okkar í sjónvarpinu, hafa nú ákveðið að láta gamlan draum rætast og fara í Islandsför; skemmti- og skemmtunar-ferð hringinn í kringum landið. Austfirskir krakkar geta hitt kappana þann 12. júní klukkan 11.00 í útibúi Landsbankans á Eskifirði þar sem þeir munu kenna á bamavef bankans sem nefnist Aurapúkavefurinn. Bömin geta gripið tækifærið og lagt smáa upp- hæð inn í bankann og fá þá nýjan geisladisk með félögunum sem heitir Ykt púkó! Frá Eskifirði munu félagamir síðan brana til Egilsstaða þar sem kíkja einnig við í útíbúi Lands- bankann klukkan 14.00 og síðan verður þessi reisa kórónuð með ærlegri bamaskemmtun á hótel Valhöll klukkan 17.00. Gunni sagði í samtali við Austurgluggann að þeir væra búnir að æfa sér- staklega upp töfrabrögð til þess að sýna á skemmtuninni þeir munu að sjálfsögðu líka taka nokkur lög af nýja disknum. Verkstæði Kötu á Eskifirði var formlega enduropnað eftir miklar endurbætur síðastliðinn föstudag. Hjónin Katrín Guðmundsdóttir (Kata) og Kristján Ragnarsson eru eigendur verkstæðisins sem er að Strandgötu 29, og sagði Kata við opnunina að framkvæmdir við að koma húsnæðinu í stand hefðu verið mun viðameiri en þau gerðu sér grein fyrir í byrjun. Hún sagði að dyrakarmar hefðu verið smíðaðir ofan á þá sem fyrir vora og eins vora mörg lög af þröskuldum í húsinu. Úldið ullarteppi hafði einnig leynst undir fallegu trégólfi í anddyrinu. Kata þakkaði Bæjarstjóm Fjarðabyggðar og sínum ómetan- legu vinum og vandamönnum fyrir stuðning við verkefnið. Hún hófst einnig á loft af ákafri innlifun og gleði þegar hún nefndi þátttöku sína í svokallaðri Framkvöðla- smiðju á vegum Fjarðabyggðar og Þróunarstofu Austurlands og sagði hún að henni hefði aldrei tekist ætlunarverk sitt um að gera verkstæðið upp ef ekki hefði verið fyrir þátttökuna í verkefninu. „Ég hefði hreinlega aldrei farið út í þessar breytingar. Ég var bara búin að gefast upp og orðin þunglynd en eftir að ég fór í Fram- kvöðlasmiðjuna fór ég að læra svo margt að ég fékk sjálfstraustið aftur. Nú veit ég hvert ég á að leita Bíialeigan ehf. Draa{ahra«aí 4 laíaarfirlt • Síaai: 54$ 9911 Fl. A. 3,400 - kr. pr. sólarhring innifalið 100 km. og vsk. Allt frá Nissan Micra - Nissan Terrano. A flokkur Nissan Micra Afhent hvar sem er í Reykjavík. Bílaleigan ehf. fcwpkwn < bWM 'totUIM og að það era margir sem til era í að hjálpa. Það er alveg hreint ótrúlegt hvað við framkvöðlamir eram búin að fá út úr þessum nám- skeiðum,“ sagði Kata. Guðmundur Bjamason bæjar- stjóri Fjarðabyggðar var mættur á opnunina ásamt helstu foringjum flestra stjómmálaflokka bæjar- félagsins. Hann notaði tækifærið og lýsti því yfir að staðir á borð við Verkstæði Kötu væra mikil- vægir og skemmtilegir fyrir bæjarlífið. Kata hyggst halda alls kyns námskeið eins og hún er vön í hinum nýuppgerðu húsakynnum og þar sem nú er mun meira rými mun hún bjóða upp á námskeið fýrir heilu starfsmannafélögin þar sem vinnufélagar geta föndrað af list við langborð. Asamt skemmtilegum leir- og glermunum eftir Kötu era hjónin með hönnunarvemd á munum sem smíðaðir era úr hestaskeifum og hafa margir skemmtilegir karakt- erar úr lukkuskeifum litið dagsins ljós. Einnig era til sölu á verk- stæðinu verk eftir Helgu Hreins- dóttur frá Reyðarfirði. Um er að ræða fallegar útskomar trémyndir með máluðum myndum, en Helga skreytti einnig veggi og skápa á verkstæðinu af mikilli list. Verkstæðið er opið frá 13 til 18 alla virka daga og laugardaga frá 11 til 15 og er það vel þess virði að bregða sér í heimsókn á góðum degi. KO Glersala Beinn sími í glerdeild 470 1505 jAvstfjarMeiS s: 4771713 Gluggamyndin Gluggamyndin sem birtist í 16. tölublaði sýnir Lambatungnajökul i Lóni með Hoffelssvatni íforgrunni. Fjölmargir sendu okkur fleiri örnefni og eru þau flest sýnd á þessari mynd. Hoffellsdalurinn gengur inn úr Nesjunt í Hornafirði, milli Hoffells og Setbergs, en Lambatungnajökull endar í botni Skyndidals í Lóni. Alls bárust 18 rétt svör og hlaut Pétur Valdimar Jónsson, Vopnaftrði, vinninginn sem er mynd eftir Mats fVibe Lund. Eftirtaldir sendu inn rétt svar við getrauninni: Anna Bjömsdóttir, Neskaupstað Ari Bogason, Seyðisfirði Árni Páll Ragnarsson, Reyðarfirði Einar Friðbjömsson, Vopnafirði Guðmundur Hólm Guðmundsson, Egilsstöðum Guðný Gréta Eyþórsdóttir, Djúpavogi Helgi Leifsson, Eskifirði Hermann Eiríksson, Egilsstöðum Jóhannes H. Jóhannsson, Egilsstöðum Katrín Steindórsdóttir, Homafirði Páll Leifsson, Eskifirði Pétur Valdimar Jónsson, Vopnafirði Ríkharður Einarsson, Reyðarfirði Steindór Guðmundsson, Homafirði Teresa Bodio, Eskifirði Unnsteinn Steindórsson, Homafirði Þorleifur Olsen, Homafirði Þóroddur F. Þóroddson

x

Austurglugginn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Austurglugginn
https://timarit.is/publication/1687

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.