Austurglugginn - 06.06.2002, Side 11
Fimmtudagur 6. júní
AUSTUR • GLUGGINN - 11
Á afmæli konu minnar
Jóhanna Sigurðardóttir, drottning
að Mánabergi. Til hamingju með
að hafa haldið andlegri og Hkam-
legri reisn öll þau 46 ár sem þú
hefur eytt með undirrituðum eigin-
rnanni. Með ást og virðingu,
Guðjón Sveinsson.
Þessi orð voru rituð á fyrstu síðu í
sérinnbundnu eintaki af ljóðabók-
inni A afmæli konu minnar, eftir
Breiðdælinginn Guðjón Sveins-
son. Ekki var aðeins um ljóðabók
að ræða heldur fylgdi geisladiskur
með þar sem hljóma lög og textar
sem Guðjón hefur samið í hinum
margvíslegustu útgáfum, ásamt
lögum og ljóðum annarra skálda.
Guðjón kann ekki á hljóðfæri og
þegar hann semur tónlist sína er
það einfaldlega með því að „raula“
lögin inn á einfalt upptökutæki.
Ekki er vitað um annan lagahöf-
und hér á landi sem fer svipaðar
leiðir í lagasmíðum sínum og
Guðjón enda viðurkennir hann
fuslega að vera langt frá því að
vera eins og fólk er flest. Hinn
glaðlegi rithöfundur bauð Austur-
glugganum að kíkja í heimsókn til
sín á dögunum og ræða um ljóðin,
lögin, lífið og tilveruna.
Guðjón er ákaflega innilegur
maður, hann hefur sterkan málróm
og hlær með öllum líkamanum.
Aðspurður um hvemig standi á því
að nú sé hann farin að gefa út
tónlist og hvað sé á þessum
geisladiski segir Guðjón, „það
mætti kalla þetta viðhafnarútgáfu
og ég tók upp á þessu í tilefni af
sjötugsafmæli konu minnar. Jó-
hanna er afskaplega hlédræg og
ekki gefln fyrir veisluhöld. Það var
því reynt að fara með allan undir-
búning eins og mannsmorð og hún
mátti ekkert frétta af þessu, hún
var nú samt búin að komast að því
að ég væri eitthvað að bralla,“
segir Guðjón glettnislega.
Afmæli Jóhönnu var haldið á
Seltjamamesi þann 18. maí síðast-
liðinn og var það í fyrsta sinn sem
fimrn böm hjónanna og 18 bama-
böm þeirra vom öll samankomin
og því ríkti mikil gleði. Viðbrögð
Jóhönnu við afmælisgjöf eigin-
manns síns vom að vonum mikil.
„Mér er sagt að hún hafi bæði
hlegið og grátið samtímis, og þá
var nú tilganginum náð,“ segir
Guðjón einlægur.
Guðjón Sveinsson hefur gefið
út yfir 30 bækur á lífsleiðinni og
er eini maðurinn á Austurlandi
sem er á rithöfundalaunum frá
hinu opinbera í dag. „Eg hef
skrifað mikið fyrir böm og
fullorðna og smásögur og svo er
ég náttúrulega alltaf að yrkja,“
segir hann. Þá er ekki úr vegi að
spyrja hvar tónlistin kemur inn í
alla þessa sköpun? „Eg held að
þetta sé bara framlenging á
ljóðunum. Eg held að það fylgi
flestum ljóðum lag og þetta sé
bara spuming um hvort að það sé
einhver viðstaddur til þess að taka
á móti því. Þetta kemur allt í einu
yfir mig og ef fyrsta lína lagsins
passar ekki við ljóðið þá hætti ég
við. Það hefur komið fyrir að ég
hendist upp á nóttunni til þess að
raula eitthvað lag, kannski syngur
einhver í gegnum mig eins og
dmkkið er í gegnum sumt fólk,“
segir Guðjón hugsi og heldur
áfram „það er nefnilega meiri
skyldleiki með ljóðlist, tónlist og
málaralist, heldur en með til
dæmis ljóðlist og texta. Þegar ég
sé málverk heyri ég tónlist en ég
get samt ekkert málað sjálfur.
Tónlistin hefur blundað í mér frá
því að ég var krakki. Eg hafði
afskaplega gaman af söng og lá
jafnt yfir ljóðasöng og dægurlaga-
tónlist. Eg hef sjálfsagt eitthvað
verið að raula frá eigin brjósti
þegar ég var að koma með kýmar
á kvöldin sem strákur því það var
yfirleitt glott á fólki þegar heim
kom sem ég skildi ekkert i. Mér
var seinna sagt að ég hafi sveiflað
höndum og gengið upp og niður á
milli þess sem ég hneigði mig fyrir
ímynduðum áheyrendum," segir
Guðjón og skellihlær.
Meðal laga á geisladiskinum
sem fylgdi bókinni er fallegt lag
eftir Atla Heimi Sveinsson sem
Guðjón var beðinn um að semja
texta við í tilefni 70 ára afmælis
Skógræktarfélags íslands. Kvæðið
var síðan flutt þann 27. júní árið
2000 af Hamrahlíðakómum undir
stjóm Þorgerðar Ingólfsdóttir í
Stekkjargjá á Þingvöllum. Guðjón
langaði til þess að hafa þetta lag á
disknum og hafði því sambandi
við Þorgerði og Atla Heimi, en var
ekki vongóður um að þau myndu
taka vel í bón hans. „Ég hringdi í
Þorgerði og var afskaplega kvíð-
inn þegar ég bar upp erindi mitt en
hún sagði bara si svona, ‘það er
alveg sjálfsagt mál’ og mér var svo
létt að ég mun lifa á þessu það sem
eftir er“. Guðjón segir að ekki hafi
reynst erfiðara að sannfæra Atla
Heimi, „ég útskýrði fyrir honum
að þetta væri vegna afmæli konu
minnar og hann sagði einfaldlega
‘minn er heiðurinn’. Ég sagði
honum að heiðurinn væri minn,
‘nei minn’ sagði hann og við
þrættum um það hvor okkar ætti
heiðurinn og sættumst á það að
lokum að við væram báðir
ánægðir með þetta. Atli Heimir er
bráðskemmtilegur og ljúfúr maður
og það er margt afskaplega gott
fólk sem hefur komið inn í þetta
sem ég get ekki þakkað nægilega“.
Fjölskylda Guðjóns leikur stórt
hlutverk á diskinum og syngja
dóttir hans, tengdadóttir, og
bróðurdóttir eiginkonu hans ein-
Guðjón aó störfum á skrífstofu sinni
söng á disknum, sem er mjög fjöl-
breytilegur. „Ég reyndi að nota
ijölskylduna eins og mögulegt
var,“ segir Guðjón. Um uppsetn-
ingu og útlitshönnun bókarinnar sá
dóttursonur og nafni skáldsins,
Guðjón Bragi Stefánsson og er
framsetningin ákaflega smekkleg
og vel heppnuð.
En hver er aðdragandi þess að
skáld gefur út tónlistargeisladisk?
„Einhvem veginn hittist það á að
einhver gaf mér diktafón til að lesa
inn hugmyndir og ég fer að raula
inná þetta við þessi ljóð mín,“
segir Guðjón sem síðan leitaði til
Torvald Gjerde sem er organisti af
norskum ættum sem býr á Breið-
dal. „Ég hringi í Torvald og spyr
hvort hann geti komið við hjá mér
vegna þess að ég verði hreinlega
að fá þetta út úr heiminum áður en
ég bilast. Hann kemur með strikuð
blöð fyrir nótur og ég set diktafón-
inn á stað. Eftir að ég hafði spilað
fyrir hann nokkur lög stoppa ég
tækið og lít á Torvald en hann
hreyfist ekki heldur stárir bara
fram á borðið. Ég var að því
kominn að stökkva út þegar hann
skyndilega vaknaði til lífsins og
sagði ‘það er eitthvað þama’.
Seinna stakk Torvald upp á að ég
gæfi út disk, og þar sem ég hafði
áður gefið út ljóðabók sem hét í
garði konu minnar, stakk hann
upp á að þessi héti A afmæli konu
minnar. Torvald á mjög mikið í
þessum disk og setti út og
stjómaði mörgum laganna," segir
Guðjón en meðal flytjenda era
stöðfirskur bamakór og karlakvart-
ett af Austur-Héraði.
Óperasöngkonan Elín Ósk
Óskarsdóttir syngur, ásamt eigin-
manni sínum Kjartani Ólafssyni,
Einsemd við ljóð og lag Guðjóns á
geisladiskinum. „Hún Elín Ósk er
í miklu uppáhaldi hjá mér og
þegar ég samdi lagið var ég með
hana í huga og var búinn að
ákveða að reyna að fá hana til þess
að syngja það. Hún var ákaflega
hrifin af laginu og þegar hún hafði
æft það söng hún það fyrir mig í
símann, og hún gerði það akkúrat
eins og ég vildi að hún myndi
syngja það,“ segir Guðjón með
ánægjuglampa í auga.
Æfi Guðjóns hefur ekki verið
laus við áföll og árið 1982 gekkst
hann undir erfiða höfuðaðgerð í
kjölfar þess að hann fékk æxli við
heiladingulinn. „Ég hélt ég mundi
ekki skrifa meira. Skammtíma-
minnið fór alveg hjá mér og ég
fékk mikinn verkkvíða og þarf að
taka lyf enn þann dag í dag til þess
að halda mér gangandi“. En þrátt
fyrir að útlitið væri ekki bjart tókst
honum að komast á réttan kjöl og
hefur sjálfur séð um að gefa út
verk sín undanfarin ár.
A sumardaginn fyrsta síðastlið-
inn hlaut Guðjón viðurkenninguna
Vorvindar fyrir framlag sitt til
bamamenningar. Viðurkenninguna
veitir Islandsdeild IBBY sam-
takanna sem era alþjóðleg samtök
áhugamanna um bamabækur.
Anna Heiða Pálsdóttir doktor í
bókmenntafræðum er formaður
Islandsdeildar samtakanna og
hafði hún þetta að segja um
Guðjón. „Við voram að verðlauna
hann um daginn fyrir 35 ára
ævistarf í þágu bamamenningar.
Ég hef til dæmis lesið eftir hann
Ort rennur æskublóð sem er í raun
hans meistarastykki og er ofboðs-
lega góð bók. Bókin er homsteinn
í bamabókmenntum síns tíma og
er góð þroskasaga drengs sem fer
til útlanda og vísar til íslenskrar
sjómennsku. Guðjón skrifar mikið
um sjómennsku og íslenskt
sveitalíf og hefur kynnt
sjómannslífið mjög mikið með
verkum sínum.“
Austfirðingar hafa tækifæri til
þess að kynnast A afmæli konu
minnar af eigin raun þann 29. júní
næstkomandi er haldin verður
hátíð á Staðarborg og munu þar
fjölmargir sem koma fram á
geisladiskinum syngja og
skemmta. Þegar Guðjón er spurður
út í hátíðina segir hann brosandi,
„ég veit ekki nákvæmlega hvemig
þetta verður og skipti mér ekki
meira af þessu. Tilefhi þessarar
útgáfu er sjötíu ára afmæli konu
minnar og þetta er ekki gert til
þess að græða heldur til gamans
og það var aldrei meiningin að
mikið yrði úr þessu“.
Austurglugginn þakkar hinum
kraftmikla listamanni fyrir spjallið
og lokar á eftir sér dyrunum að
fallegu rauðu húsi á Breiðdalsvík í
fullvissu um að þar muni ástin og
sköpunargleðin áfram þrífast um
ókomin ár.
Verkmenntaskóli
Austurlands
Býður upp á nám á
eftirtöldum brautum:
^\ta®GríGfi] fjitastasKiiJft B ®d aa
líísiGrtFstbcrsjtiaíi
iMiGtatel&irsiífltMTC
♦ Félagsfræðabraut
♦ Náttúrufræðibraut
♦ Viðbótarnám við starfsnám við
stúdentsprófs
Q©drj- ®u @ÍSiní§GnJ.liGníJ©fefSi[y]íia5*s
♦ Byggingaiðnir
♦ Félagsliðabraut
♦ Grunnnám í upplýsinga- og
fjölmiðlagreinum
♦ Hársnyrtibraut
♦ Málmiðnbraut
♦ Rafiðnir
♦ Sjúkraliðabraut
♦ Sjávarútvegsbraut
♦ Vélstjórabraut 1. stigs
Aðstaða til verklegrar kennslu er nýleg og
mjög góð. Félagslíf nemenda er blómlegt.
Við skólann er glæsileg heimavist.
í Neskaupstað er íþróttaaðstaða mjög góð, nýuppgerð
sundlaug, nýbyggt íþróttahús og frábært skíðasvæði í
Oddsskarði. Öflugt tónlistarlíf er í Neskaupstað og góður
tónskóli.
Innritum í Verkmenntaskóla Austurlands ertil 12. júní.
Verið velkomin
Sími 477 1620
Veffang:va.is Netfang:va@va.is
Guðjón og Jóhanna eiginkona hans sem hann tileinkuói nýjustu bók sína.
Myndir: JKA