Austurglugginn


Austurglugginn - 15.01.2004, Blaðsíða 2

Austurglugginn - 15.01.2004, Blaðsíða 2
2 AUSTUR • GLUGGINN Fimmtudagur 15. janúar r? stuttar FRÉTTIR Innbrot á Egilsstöðum Brotist var inn í fyrirtækið Bón og Púst á Egilsstöðum fyrir síðustu lielgí. Þaðan var stolið hljómflutningstækjum og fl. Innbrotið er í rannsókn hjá lögreglunni á Egilsstöðum. Innbrotið í Olís Fellabæ sem framið var 4. janúar síðastlið- inn er nú upplýst. Játning ligg- ur fyrir og er hluti þýfis kom- inn í leitimar. Lögregla vonar að innbrotið við Kárahnjúka um áramótin verði upplýst innan tíðar. Einn var tekinn grunaður um ölvun við akstur á Egils- stöðum um helgina. Byggðastofnun kaupir eignarhluti í 2 fyrirtækjum á Austurlandi Af 23 sprotafyrirtækjum sem Byggðastofnun kaupir hlut í eru tvö á Austurlandi. Saxa smiðjufélag ehf. Stöðvar- firði og Þvottatækni ehf. A Seyðisfirði. Hlutur Byggða- stofnunar verður 10 milljónir í hvoru fyrirtæki. Að sögn Að- alsteins Þorsteinssonar, for- stjóra Byggðastofnunar, hafa hlutafjárkaup í nokkrum fyrir- tækjum átaksins þegar verið afgreidd. Breytilegt er hversu mikinn eignarhlut Byggða- stofnun fær í þeim fyrirtækjum sem keypt verður í en miðað var við í reglum að eignarhlut- ur yrði aldrei yfir 30% af heildarhlutafé einstakra fyrir- tækja. Hníslar í hrein- kálfum Fram er komin áður óþekkt tegund sníkjudýra, svokallaðra hnísla, sem finnast í spörðum hreindýrakálfa hér eystra. Þetta er niðurstaða rannsóknar sem Berglind Guðmundsdótt- ir, líffræðinemi frá Þvottá í Álftafirði, hefur unnið að síð- ustu mánuði. Hún safnaði spörðum hreindýrskálfa á Austurlandi og greindi sníkju- dýr sem lifa í meltingarfærum dýranna. Rannsókn Berglindar hefur nú verið útnefnd til Ný- sköpunarverðlauna Forseta Is- lands, sem afhent verða á Bessastöðum 15. janúar næst- komandi. Rúv sagði frá Úrelda sláturhús Um 55 milljónir króna verða settar í úreldingu sláturhús- anna á Breiðdalsvík og við Fossvelli í Jökulsárhlíð, en landbúnaðarráðuneytið hefur alls varið um 170 milljónum í þennan málaflokk á landsvísu. Sigurjón Bjarnason, fram- kvæmdastjóri Sláturfélags Austurlands, segist vera sáttur við þessa úthlutun, þó vissu- lega sé ekki skemmtilegt að þurfa að leggja niður þessa tvo vinnustaði á Austurlandi. Pen- ingarnir verða notaðir til að borga upp skuldir við opinbera sjóði sem áttu veð í húseign- unum á Fossvöllum og Breið- dalsvík. RÚVsagðifrá FRÉTTIR Framkvæmdir hafnar við þriðju göngin niður í Fljótsdal Björgunarskipið Hafbjörg. Nýtt skip kemur von bráðar. Nýtt björgun- arskip austur Framkvæmdir við þriðju göngin sem liggja inn að stöðvarhúshvelf- ingu Kárahnjúkavirkjunar við Val- þjófstaði i Fljótsdal eru hafnar. Þetta eru frárennslisgöng stöðvar- hússins en áður hafði fyrirtækið hafið framkvæmdir við aðkomu- göng stöðvarhússins og kapal- göng. Það er verktakafyrirtækið Fosskraft sem vinnur verkið en fyrirtækið er að vinna við þrjú göng til stöðvarhússins á sama tíma en hver göng verða um einn kílómetri að lengd. Framkvæmdirnar ganga vel Aðkomugöngin eru komin lengst á veg eða rúma 300 metra og kapalgöngin eru orðin rúmir 250 metrar, frárennslisgöngin orð- in nálægt 30 metrum. Göngin eru mis víð að þvermáli: Kapalgöngin þrengst 4 metrar, síðan aðkomu- göngin 7,5 metrar, og ffárennslis- göngin 9 metrar í þvermál. Framkvæmdirnar við öll göngin þrjú ganga vel að sögn Jónasar Jónmundssonar sem er í staðar- stjórn Fosskrafts við Valþjófsstað. Bergið inni í íjallinu er heilllegt og hreint og vel gengur að sprengja göngin i það. Nokkur hávaði berst um Fljótsdalinn við þessar spreng- ingar að sögn bænda þar, sérstak- lega var þetta áberandi þegar verið var að byrja á göngunum og sprengja fyrir gangastöfnunum. Fólk á þessum slóðum jafnvel það sem býr næst vinnusvæðinu segir að þessi hávaði minnki mikið og hverfi nánast í fjallið eftir að göngin eru orðin 2-300 metra löng. Brýtur upp kyrrðina Að sögn bónda í nágrenninu brýtur þetta upp kyrrðina sem ríkt hefur í dalnum hingað til. „Það þýðir ekkert að vera að velta sér upp úr því. Hávaðinn og skjálft- arnir minnka eftir því sem innar kemur í fjallið og hverfur fljót- lega.” Nú er búið að reisa vinnubúðir fyrir um 120 manns á Hvamms- eyrinni við Valþjófsstað. Reiknað er með að vinnubúðirnar muni rúma 200-250 manns þegar þær verða kláraðar nú í mars. Nú eru að vinna á svæðinu 100-120 manns en verða rúmlega 200 þeg- ar flest verður. sigad@agl.is Búið er að ganga frá kaupum á nýju björgunarskipi austur en skipið mun leysa af björgunarskip- ið Hafbjörgu sem skipt hefur sköpum í öryggismálum sæfar- enda hér um slóðir allt frá því að hún kom árið 1996. Nýja skipið kostar um tíu milljónir króna og reiknað er með því að það verði komið til íslands i mars eða apríl. Öryggisnetið þétt Hafbjörg mun að öllum líkind- um fara á Vopnafjörð þegar nýja skipið verður haffært en það verð- ur staðsett á Norðfirði. Karl Jó- hann Birgisson, formaður Björg- unarbátasjóðs Austurlands, segir að þetta hafi gríðarlega þýðingu hvað varðar öryggismál sjófar- enda. „Koma þessa nýja báts þétt- ir öryggisnetið í kringum landið sem er markmið björgunarbáta- sjóðanna,” sagði hann. Aðbúnaður mun betri Nýja skipið er af gerðinni Arun og er breskt en svona bátar eru notaðir umhverfis Bretlandseyjar og hafa gefið góða raun. Að sögn Bjarna Guðmundssonar, um- sjónarmanns Hafbjargar, verður mikill munur að fá nýjan bát. „í fyrsta lagi gengur þetta skip mun meira. Hafbjörgin gengur tíu til ellefu milur en nýja skipið gengur fimmtán til sextán mílur. í öðru lagi er betra pláss fyrir mannskap og betri aðbúnaður að öllu leyti.” Nýja skipið er búið tveimur 435 hestafla vélum en til samanburðar eru vélarnar sem knýja Hafbjörg- ina áfram 280 hestöfl samanlagt. jonknutur@agl. is Valt á Vegagerðarhlaðinu Vörubíll með tengivagn og mal- arhlass valt, nánast á hlaði vega- gerðarinnar í Fellabæ fyrir helgina. Um þessar mundir er mikil hálka á vegum á Austurlandi og nokkuð um útafkeyrslur og smáárekstra af þeim sökum að sögn lögreglu í fjórðungnum. Vörubíll með gámavagn lenti þversum á veginum við Hallorms- stað og fólksbíll sem á eftir kom gat ekki stoppað og lenti á vagnin- um. Engin slys hafa orðið á fólki í þessum hálkukafla og skemmdir á ökutækjum tiltölulega litlar “þetta hefur mest verið smá nudd” að sögn lögreglu. Ökumaðurinn slapp ómeiddur Bíllinn sem valt við vegagerð- ina í Fellabæ var með tengivagn og var að flytja möl sem tekin er við Rangá hjá Flúðum í húsgrunn við Miðvang á Egilsstöðum þar sem á að fara að byggja blokk með 24 leiguibúðum. Loftpúði undir bíln- um sprakk við Urriðavatnsendann og ætlaði bílstjórinn að reyna að keyra bílinn yfir í Egilsstaði til að losa af honum hlassið svo hægara yrði um viðgerð. Við hús Vega- gerðarinnar fóru að hringja við- vörunarbjöllur vegna loftleysisins, bílstjóri bílsins stoppaði vegna þessa, en þá skipti engum togum að bíllinn rann viðstöðulaust út á hlið niður fyrir veginn og valt þar á hliðina. Ökumaðurinn sem enn var í bílnum slapp ómeiddur. Eins og fram hefur komið í frétt- um varð nánast neyðarástand vegna hálku á Héraði fyrir helgi sem tafði mjög umferð stórra bíla sem eru að vinna við ýmsar fram- kvæmdir á svæðinu og akstri upp í Kárahnjúka var hætt um tíma vegna hálkunnar. Vegfarendur verða að fara varlega Enn er töluverð hálka og slabb á vegum í fjórðungnum enda tíð um- hleypingasöm og svo sem ekkert í veðurkortunum sem bendir til ann- ars en að hálkan verði til staðar á vegunum enn um stund. Lögreglan biður vegfarendur að fara varlega og athuga að það er hált á svellun- um. sigad@agl.is Vörubill með malarflutningavagn valt við vegagerðina I Fellabæ. Vegfarendur ættu að athuga það að ætla má að nokkur hálka sé um allan fjórðung fyrst svo hált er i túnfæti Vegagerðarinnar i Fellabæ.

x

Austurglugginn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Austurglugginn
https://timarit.is/publication/1687

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.