Austurglugginn - 01.07.2004, Page 5
Fimmtudagur 1. júlí
AUSTUR • GLUGGINN
5
Bein lína
Afhverju geta flugur ekki bara flogið í
beinni línu á milli staða án þess að vera
alltaf með þetta vesen? Nú hljóta þær að
þreytast meira á þessu og eyða alveg ó-
takmörkuðu magni af orku I vitleysis-
gang. Einhverntímann var maður (sem að
ég man ekki alveg hvað hét, skiptir engu)
sem að sagði einn daginn eftir mikla um-
hugsun: "Stysta vegalengd milli tveggja
punkta er bein lína". Ég var nebblega að
spá hvort að mannfólkið hafi einhvern-
tímann verið eins og blessaðar flugurnar
eru núna, labbað bara hring eftir hring
og út og suður, þangað til að þessi snill-
ingur fattaði þetta með beinu línuna.
Kannski vantar bara einhverja mjög gáf-
aða flugu til að segja hinum flugunum
frá þessu.. Arnar Pétursson, a.k.a.
Arnar Dahmer Péturs.
http://www.dahmer.blogspot.com/
23. júní - 20:47
Og svoooona...
Lárus Guðmundsson hlýtur að vera leið-
inlegasti maður ( heimi.
Ég er að taka einhverja skítapest. Vildi
bara láta ykkur vita. Vaknaði í morgun
með þrútinn háls, fór til tannlæknis með
þurran háls og fór svo í vinnu eftir hádegi
með sáran háls. Núna er hálsinn frekar
þrútinn, nokkuð þurr og mjög sár. Haus-
verkur fylgir þessu og þó nokkrir bein-
verkir virðast vera að myndast. Svona er
þetta.
Forsetakosningar eru á laugardaginn og
er ég að spá í að taka þá stóru ákvörðun
að nýta ekki kosningarrétt minn og mæta
því ekki á kjörstað. Það er nokkuð langt
frá því að ég fari að kjósa heigulinn hann
Ólaf Ragnar og enn lengra frá því að ég
veiti Baldri eða Ástþóri atkvæði mitt. Ég
ætla reyndar ekki að gera eins og sumir,
að fara og skila auðu, vegna þess að það
er nálægt því að vera það asnalegasta
sem ég veit. Mér finnst það að mæta ekki
vera meiri fratyfirlýsing yfir framboðskosti
heldur en að bambast á kjörstað og
krossa ekki við neitt, eyða þar með ó-
þarfa pappír og bleki. Það er ekki gott.
Ólafur Björnsson, a.k.a. Óli Bjöss.
http.Hwww.simnet. is/jeremy/
ÉG KOMST
INN.
26. júní 2004 - 14:23
ÉG KOMST INN t MAI!!! :):):):) Ég er svo
ánægð!!!!!!! Það er ekki eðlilegt! Pabbi
hringdi á föstudaginn í MA og spurði
bara því það var ekki komin nein tilkynn-
ing eða neitt!!! En það kemur held ég á
mánudaginn eða þriðjudaginn! 11 En kon-
an sagði pabba bara að ég hefði komist
inn..! ég er svo ánægð!! I!
Og líka ógeðslega þreytt!!! Sko það voru
gestir hjá mér í gærkvöldi og langt fram
á nótt...Það voru Maggi Palli, Maggi og
Tommi! Við vorum að horfa á hryllings-
mynd!!! Og það var svo fyndið hvað
Maggarnir voru hræddir..;);) hehe en svo
ætlum við Agnes að horfa á margar
myndir í kvöld og borða mikið af nammi
til að fagna því að ég hafi komist inn í
MAMI! Hún er líka að reyna að fá mig í
sund núna en ég nenni ekki!!!! En alla-
vega þá ætla ég að fara á fætur...skrifa
meira seinna ef þið skrifið í gestabók-
ina...:)
Erna Valborg Björgvinsdóttir
h ttp://www. folk. is/gella88/
Herbergi óskast
FSN óskar eftir að leigja herbergi fyrir
ljósmóður þriðju hverja helgi.
Upplýsingar gefa
Regína rekstrarstjóri í síma 470 1444 eða
Guðrún hjúkrunarstjóri í síma 470 1451.
Hús Gunnars Gunnarssonar skálds Ceiltre of Clllture ■
Kulturzentrum ■
MAL - opnuð lau. 3. júlí og stendur til 25. júlí
Sýning um Gunnar Gunnarsson skáld og Svavar Guðnason listmálara,
Austfirðingana tvo sem sigruðu heiminn, hvor með sinni listsköpun.
Sýningin er samstarfsverkefni Gunnarsstofnunar og Menningarmiðstöðvar Hornafjarðar
og nýtur styrks frá Menningarráði Austurlands og Nýsköpunarsjóði námsmanna.
I skuggsjá fortíðar — valdir munir frá Þjóðminjasafninu
Merkir gripir úr austfirskum kirkjum, s.s. róðukross frá Klyppstað.
Petra Gimmi - sýnir í gallerí Klaustri 1.7. - 14.7.
Jón Hnefill Aðalsteinsson — „Táningur utan úr Tungu“ -
fyrirlestur um Hrafnkelssögu laugardaginn 3. júlí kl. 17.00
Fornleifauppgröftur klausturrústa á Kirkjutúni
Opið alla daga kl. 10-18
til kl. 22 mið. og lau. í júlí
Annars eftir samkomulagi
Aðgangseyrir kr. 500
Leiðsögn innifalin
Veitingastofan Klausturkaffi
• Hádegisverðarhlaðborð alla daga
• Kaffihlaðborð alla eftirmiðdaga
• Kvöldverðarhlaðborð mið. og lau. í júlí
Hópar geta pantað þjónustu utan hefð-
bundins opnunartima. Sími 471-2992.
Frítt fyrir 16 ára og yngri
------mi
GUNHARSSTOFNUN
www.skriduklaustur.is
Stofnun Gunnars Gunnarssonar
Sími 471 2990 • Fax 471 2991
Veitingastofa/Café 471 2992
klaustuK«)skriduklaustur.is
Sameinuð nú
stöndum vér!
Nú mun það vera fremur ljóst að
ekkert verður af sameiningu þeirra
ijögurra sveitarfélaga á Héraði, er
hugmyndir voru uppi um að sam-
eina í eitt sveitarfélag, það land-
mesta á Islandi öllu, og kosið var
um samhliða títtneíndum forseta-
kosningum er fram fóru s.l. laugar-
dag. Eitt af þessum ijórum sveitar-
félögum, nánar tiltekið Fljótsdals-
hreppur, hafnaði sameiningu við hin
þrjú, Austur-Hérað, Norður-Hérað,
og Fellahrepp.
Sumum kannski til einhverrar
gremju verður að þessu sinni ekki
hægt að draga Fellamenn til ábyrgð-
ar og kenna þeim um að sameining-
arhugmyndir þessar gengu ekki eft-
ir. Er mér enn í fersku minni, sú
angist og sá múgæsingur er skapað-
ist þegar Fellamenn felldu áform
þau, er hljóðuðu upp á sameiningu
Austur-Héraðs og Fellahrepps sam-
fara seinustu alþingiskosningum. í
kjölfar þeirra úrslita upphófst
dramatísk orrahríð, leidd áfram af
þröngum hópi fólks, sem átti það
sameiginlegt að vera biturt út í lífið
og sitt nánasta umhverfi einhverra
hluta vegna. Sýndist manni af við-
brögðum þessa fólks að hrepparíg-
urinn forni réði að stórum hluta
gjörðum þess og rændi það al-
mennri skynsemi og mannasiðum í
þokkabót. Þá læddist einnig að
manni sá grunur, að reiðin vegna
höfounar Fellamanna væri einungis
yfirskyn, og væri í raun áratuga
uppsafnaður biturleiki út í nágrann-
ana vestan fljóts, sem jafnvel hefði
gengið í erfðir mann fram af manni.
Fóru menn mikinn í yfirlýsingum
sínum og gengu svo langt að beina
hnjóðsyrðum sínum gegn börnum
og gamalmennum, sem síður en svo
varð mönnum til framdráttar.
Ymsar hugmyndir komu fram um
hvernig árangursríkast væri að
hefna fyrir forheimsku Fellamanna.
Ein þeirra hljóðaði meðal annars
upp á það að sprengja í loft upp
Lagarfljótsbrúna, svo útiloka mætti
Fellamenn frá þeirri þjónustu er þeir
að venju að einhverju leyti sækja
austur yfir fljót ásamt svo mörgum
fleirum allt frá Djúpavogi, norður
að Langanesi. Láðist mönnum þó að
taka það með í reikninginn að upp-
haf verslunar- og þjónustu í kaup-
stað þeim er Egilsstaðir heitir á ræt-
ur sínar að rekja yfir í Fellin. Hvern-
ig má það vera kunna einhverjir að
spyrja og er sjálfsagt að rekja það
hér til gamans í stuttu máli.
Maður að nafni Sigurður Jónsson
bóndi í Hrafnsgerði í umræddri
Fellasveit, hreppstjóri Fellamanna
frá 1899-1920, mun hafa verið upp-
hafsmaður þeirrar hugmyndar er
leiddi til þess að Kaupfélag Héraðs-
búa var stofnað þann 19. apríl 1909,
að Skeggjastöðum í Fellum. Arið
1945 hóf kaupfélagið síðan bygg-
ingu verslunarhúss í landi Egils-
staða, sem leiddi síðan eðlilega af
Austfjarðaleið
477 1713
sér þá þróun að þéttbýli tók að
myndast á því svæði sem í dag við
þekkjum öll sem Egilsstaðakauptún.
Ber mönnum því að nokkru leyti að
skammast sín og þakka Fellamann-
inum, Sigurði bónda Jónssyni í
Hrafnsgerði, fyrir hluta af þeirri
þjónustu er menn njóta góðs af í
dag. Langsótt, en satt engu að síður.
En nóg um það. Víkjum nú aðeins
að niðurstöðum kosninganna er
fram fóru á laugardaginn var. Eins
og fram kom hér að framan, voru
það Fljótsdælingar sem höfnuðu
sameiningunni með 36 atkvæðum á
móti 23. Málalok þau, voru glögg-
skyggnir menn sumir búnir að sjá
fyrir, í ljósi þess auðs er Fljótsdæl-
ingar fá í sinn hlut, í tengslum við
Kárahnjúkavirkjun. Hvort fégræðgi
hafi að einhverju leyti ráðið gjörð-
um þeirra á kjörstað, eða önnur há-
leitari sjónarmið skal ósagt látið, en
víst verðum við að trúa því að þeir
hafi kosið samkvæmt sinni bestu
sannfæringu. Verterþóaðþessir36
Fljótsdælingar hafi það hugfast í
framtíðinni, að margur verður jú, af
aurum api.
A Austur-Héraði voru tillögurnar
samþykktar með miklum meiri-
hluta, 892 sögðu já á móti 165, sem
sögðu nei. Afgerandi úrslit, en samt
leiðir maður hugann ósjálfrátt að
þessum 165 einstaklingum sem
voru á móti. Það voru fleiri Austur-
Héraðsmenn á móti sameiningu en
t.d. Fellamenn sem samþykktu til-
lögurnar með 151 atkvæði á móti
100. Var biturleikinn enn með helj-
artak á fólki síðan Fellamenn felldu
siðustu áform um sameiningu, eða
bjuggu aðrar hvatir að baki? Voru
þessir 100 Fellamenn sem höfnuðu
þessum hugmyndum of stoltir í
hjarta sínu til að samþykkja samein-
ingu, og eiga kannski á því von að
missa ffá sér þau fríðindi að fá ó-
keypis kaffi og kökur í boði hrepps-
ins á 17. júní. Fannst mönnum jafn-
vel eins og seinast, að undirbúning-
urinn væri ekki nægur og ekki lægi
það fullkomlega ljóst fyrir hvernig
ýmsum málum yrði lyktað við sam-
einingu þessa. Þá samþykktu Norð-
ur-Héraðsmenn með naumum
meirihluta tillögurnar, 97 sögðu já,
og 87 sögðu nei. Þar virtust menn
skiptast í nokkuð jafnar fylkingar og
erfitt að gera sér í hugarlund hvað
bjó þar að baki. Mörgum spurning í
þessu sambandi er ósvarað og seint
munu finnast svör við þeim.
En eitt liggur þó fyrir, að það er
nú í höndum sveitarstjórna Fella-
hrepps, Norður-Héraðs og bæjar-
stjórnar Austur-Héraðs að hefja við-
ræður um sameiningu þessara
þriggja sveitarfélaga er samþykktu
hugmyndir um sameiningu. Frá
mínum bæjardyrum séð er það án
nokkurs vafa stórkostlegt sóknar-
færi fyrir Fellamenn að sameinast
hinum tveim, og stækka með því
móti til muna stór-Fellasvæðið.
En hvað kemur hið nýja samein-
aða sveitarfélag, ef af verður til með
að heita í framtíðinni? Gera má ráð
fyrir því að seint verði sátt um það
eins og annað í máli þessu. Ekki er
t.d. hægt að kalla sveitarfélagið
Fljótsdalshérað, því Fljótsdælingar
eru utan við þessar þreifingar eins
og staðan er í dag og sá kostur er því
ekki inni í myndinni, þótt nafnið sé
æði gott. Ekki finnst mér heldur
vera stætt á því að hafa bæði Fljóts-
dalshrepp og Fljótsdalshérað á sama
svæði.
En ef horft er til landfræðilegrar
legu sveitarfélaganna þriggja liggur
það í raun ljóst fyrir hvaða naín
hentar best, og er eðlilegast af öllu.
Eg útskýri það í stuttu máli á eftir-
farandi hátt. Fellahreppur er mið-
svæði þessara þriggja sveitarfélaga,
og er mikilvægur hlekkur í því sam-
bandi að skapa heild þessa svæðis.
Því legg ég óhikað til að hið nýja
sveitarfélag, ef samningar nást um
sameiningu, eigi að heita Fella-Hér-
að. Hef ég á því fulla trú að það
þurfi ekki frekari útskýringa við.
Góðar stundir!
Eftir Huga Guttormsson,
Fellaskáld.
Auglýsing um starfsleyfistillögu
fyrir fiskimjölsverksmiðju Síldar-
vinnslunnar h.f., Neskaupstað.
í samræmi við 6. gr. í I. kafla laga nr. 7/1998 um hollustu-
hætti og mengunarvarnir, liggur starfsleyfistillaga fyrir
fiskimjölsverksmiðju Síldarvinnslunnar h.f., Hafnarbraut 6,
740 Neskaupstað, frammi til kynningar á afgreiðslutíma
í Bæjarskrifstofum Fjarðabyggðar, Egilsbraut 1, 740 Nes-
kaupstað, á tímabilinu frá 2. júlí til 27. ágúst 2004.
Skriflegar athugasemdir við starfsleyfistillögurnar skulu
hafa borist Umhverfisstofnun fyrir 27. ágúst 2004. Einnig
má nálgast starfsleyfistillögurnar á heimasíðu Umhverfis-
stofnunar, http://www.ust.is/
UST
Umhverfisstofnun
Umhverfisstofnun, stjómsýslusvið,
Suðurlandsbraut 24, 108 Reykjavík.