Austurglugginn - 01.07.2004, Side 10
10 AUSTUR • GLUGGINN
Fimmtudagur 1. júlí
MENNING \ LISTIR
Umsjón: jonknutur@agl.is
Humarhátíð í 11. sinn
Humarhátíð á Hornafirði
hefst í kvöld kl.20:00 með
tónleikum i Nýheimum og svo
er bara stanslaust ijör fram á
sunnudagskvöld. Jón Krist-
jánsson, heilbrigðisráðherra
setur hátíðina formlega kl.
20:00 á föstudagskvöld en allt
of langt mál yrði að telja upp
hér hvað er í boði en hægt er
að fullyrða að allir finna eitt-
hvað við sitt hæfi.
Römm er sú taug...
...nefnast skáldakvöld á
Vopnafirði sem verða haldin
miðvikudagskvöldið 7. júlí og
fimmtudagskvöldið 15. júlí
næstkomandi í Kaupvangi.
Fyrra kvöldið er tileinkað
þeim Jónasi og Jóni Múla
Arnasonum og Kristjáni Jóns-
syni fjallaskáldi. Djasskvartett
með Ragnheiði Gröndal inn-
anborðs leikur og syngur en
meðlimir hans eru allir nýút-
skrifaðir úr djassdeild FÍH sem
Jónas átti einmitt þátt í að
stofna. Ragnheiður Asta Pét-
ursdóttir segir frá, Halldóra M.
Pétursdóttir og Unnar G. Unn-
arsson leiklesa úr handrimm
Kristjáns fjallaskálds og leika
þátt úr síðasta leikriti Jónasar
sem sett var á fjalirnar.
Seinna skáldakvöldið verð-
ur til nánari umfjöllunar í
næsta Austurglugga.
Sól á rauðum kjól
Myndverkamaðurinn
„gjess” eða Guðjón Sigvalda-
son, betur þekktur sem leik-
stjóri sýnir myndverk sín í
Pakkhúsinu á Höfn á Humar-
hátíð um helgina og stendur
sýningin „Sól í rauðum kjól”
uppi fram til 25. júlí. Guðjón
er Hornfirðingum að góðu
kunnur, hefúr leikstýrt þeim
mörgum og m.a. farið fyrir
götuleikhúsi staðarins. Hann
nam myndlist við Myndlistar-
skóla Reykjavikur á sínum
yngri árum en verk hans að
þessu sinni eru öll unnin í ol-
íupastel á dagblaðapappír sem
gulnar og stökknar með tíman-
um og eru þessi verk því í
stöðugri þróun án frekari af-
skipta listamannsins.
Lúta og fleira óvenju-
legt í Nýheimum
í kvöld kl. 20:30 flytja
sænskir tónlistarmenn tónlist
frá endurreisnartimanum i
Nýheimum, Höfn í Horna-
firði. Þessi tegund tónlistar
heyrist ekki ofit á Austurlandi
en þau Annette Taranto,
messosópran, Sven Aberg sem
spilar á lútu og vihuela og
Björg Ollén sem spilar á þver-
flautu spila fyrir austfirðinga
af lífi og sál en reynt er að
hafa hljóðfærin sem líkust
uppruna sínum og tekur því
tónlistin mið af því og verður
mun persónulegri en ella.
Súellen á Southfork á ný
Söguleg ferð er að heljast hjá
þeim félögum í hljómsveitinni
Súellen frá Neskaupstað, sem
vonandi verður ekki ferð án enda
eins og nýjasta plata þeirra heitir.
Meðlimir hljómsveitarinnar þeir;
Guðmundur R. Gíslason, Steinar
Gunnarsson, Jóhann Geir Árna-
son, Bjami Halldór Kristjánsson
og Jón Hilmar Kárason ætla að
heimsækja borgina Dallas i
Texasíylki í Bandaríkjunum og
fara út á þjóðhátíðardaginn sjálf-
an 4. júlí. Með í for verða makar
þeirra sem og myndatökumaður
sem ætlar að skrá ferðina frá upp-
hafi til enda og úr því efni verð-
ur til heimildamynd sem sýnd
verður á Skjá einum í haust. Að
sögn Guðmundar verður farið að
Southfork „heimili” gömlu
Dallas-þáttanna og til stendur
jafnvel að hitta Lindu Gray sem
lék Sue Ellen í þáttunum, en við-
ræður standa nú yfir við umboðs-
mann hennar. Einnig spila þeir
sem gestahljómsveit á „einhverj-
um stórtónleikum” þann 10. júlí.
„Þetta verður svona skemmti- og
tónlistarferð” segir Guðmundur
aðspurður um væntingar þeirra til
fararinnar. „Við förum í stúdíó og
tökum upp tvö lög með upptöku-
stjóra sem hefur unnið með
heimsfrægum nöfnum, meðal
annarra hljómsveitinni King Di-
amond, gítarleikara Guns’N’
Roses ofl.” Segist Guðmundur
Eins og sést á þessari mynd tóku
þeir félagar upp ameríska háttu
um 1990 en þá haettu þeir að
nota hamar og sigð i nafninu
sínu. Jón Hilmar Kárason var ekki
kominn í sveitina þarna en fyrir-
rennari hans sem komst því mið-
ur ekki með þeim til Dallas heitir
Ingvar Lundberg. Talið frá
vinstri: Bjarni Halldór, Guðmund-
ur, Ingvar, Jóhann og Steinar.
vonast til að lögin verði þar af
leiðandi með amerísku rokksándi
frekar en íslensku poppsándi eins
og svo algengt er þessa dagana.
Við ákváðum að trufla ekki leng-
ur þar sem allt er á fullu við æf-
ingar á tónlist og samningu sjón-
varpshandrits en komum því að
að lokum að leit stendur yfir að
kostunaraðilum vegna sjónvarps-
þáttarins en þeir Qármagna ferð-
ina annars alfarið sjálfir.
Suðræn sveifla á Djasshátíð
Djasshátíð Egilsstaða fór vel
fram að venju en mæting nú var
mun meiri en í fýrra. Að sögn
Garðars Harðarsonar, blúsara á
Stöðvarfirði sem tók virkan þátt í
hátíðinni, voru skemmtikraftarnir
ánægðir með austfirska áhorfend-
ur. „Þetta gekk bara vel upp í alla
staði og mér sýndist áhorfendur
hafa skemmt sér konunglega líka.
Það er alveg klárt mál að það verð-
ur hátíð að ári,” sagði hann.
Austurglugginn var viðstaddur
tónleika Tómasar R. Einarssonar
og hljómsveitarinnar Havana og
leyndi sér ekki að suðræn sveifla
fer vel ofan í Austfirðinga. Þessi
sjö manna hljómsveit tók lög af
síðustu tveimur skífum Tómasar,
Kúbanska og Havana, í lok tón-
leikanna misstu áhorfendur stjórn
á sér og dönsuðu af miklum krafti
enda spilagleðin smitandi.
Tryggvi Ólafsson
á spjöld sögunnar
Helgi Guðmundsson er um
þessar mundir að skrifa ævisögu
Tryggva Olafssonar listmálara og
lífskúnstners frá Norðfirði. Við
hringdum í Helga og forvitnuð-
umst um hvemig gengi. „Já, ég er
búinn með handritið og það er í
prentvinnslu en stefnt er að því að
gefa bókina út þann 18. september
næstkomandi” segir Helgi og lætur
vel af samvinnu þeirra Tryggva
enda þekkjast þeir úr uppvextinum
á Norðfirði sem er einmitt grunn-
ur bókarinnar að mörgu leyti, en í
henni eru minningar Tryggva úr
bernsku stór hluti. Farið er aðeins
út í líf foreldra Tryggva og þeirra
aðstæður, aðdraganda þess að
Tryggvi gerist listmálari í Kaup-
mannahöfn og margt fleira sem
allt of langt mál yrði að rekja hér.
Helgi segist oft fá spurninguna
„hvernig bók er þetta?” og besta
svarið við því sé einfaldlega að
hún sé „þjóðlegur fróðleikur þegar
allt kemur til alls”. Bókin verður
hátt á þriðja hundrað síður, þar af
Mikil innlifun á sviðinu og stutt var i rommflöskuna hjá þessum.
Þessi mynd kom frá Vilhjálmi á Brekku og hefur það framyfir margar aðrar
myndir hjá okkur að líklega er búið að nafngreina einn á myndinni en það
er Karl Long sem stendur lengst til hægri. Ekkert er þó öruggt í þessum
málum og biðjum við alla þá sem geta lagt okkur lið að hafa samband við
Dfsu hjá Héraðsskjalasafni Austurlands í síma 471-1417 eða okkur hjá
Austurglugganum í síma 477-1750.
Einnig mættu nokkrir suður-evr-
ópskir verkamenn frá Kárahnjúk-
um á tónleikana og fór ekki milli
mála að heimþráin kviknaði í
hjörtum þeirra þegar þeir hlustuðu
á tónlistina.
Árni isleifs, guðfaðir djassins á Austur-
landi.
um 140 ljósmyndir og um 30 lit-
myndir af verkum Tryggva frá
upphafsárum hans sem listamanns
en gaman er að geta þess að í ár á
hann 50 ára starfsafmæli sem list-
málari ef miðað er við elstu mynd-
ina í Tryggvasafni í Neskaupstað
sem er frá fermingarárinu hans.
Þeim sem vilja kaupa bókina í for-
sölu og þar með láta skrá sig á
spjöld hennar er bent á að hafa
samband við Mál og Menningu
sem gefur bókina út.