Austurglugginn - 06.05.2005, Page 1
„Það þýðir ekkert
að væla endalaust
Katla Steinsson fram-
kvæmdastjóri Markaðs-
stofunnar í viðtali.
Sjá bls. 6
Austurglugginn
gerir úttekt á
jafnrétti hjá
sveitar-
félögunum
Sjá bls. 7
Tónleikasumarið
eystra:
Valgeir Guðjóns
heimsækir
Austurland
Sjá bls. 8
Neisti
stefnir
á sigur í
boltanum
Sjá bls. 11
Austur*glu.ggmn
17. tbl. - 4. árg. -2005 - Föstudagur 6. maí
Verð í lausasölu kr. 350 Áskriftarverð kr. 1.140 á mánuði (kr. 285 eintakið) ISSN 1670-3561
Sjummöi
ámæðradaginn
OpiðU-16
Blómabúðin Laufskálinn
Norðfirði Simi 477 1212
Austur«gluggirm
LUKK'ðpOTTINN
Hægt er að gerast áskrifandi
í símum
477 1571
477 1750
og á
www.austurglugginn.is
1962-2002
Austfjarðaleið
477 1713
Landflutningar - Samskip
Kaupvangi 25
700 Egilsstaóir
Sími 471 3080
Fax 471 3081
Opnunartími:
Mánudaga til föstudaga
frá kl. 08:00-16:00
íþróttahús á Reyðarfirði:
Umdeild framkvæmd
Mikil andstaða er á Reyðarfirði við byggingu knatt-
spyrnuhallar í bænum. Margir vilja frekar sjá hefðbundið
hús rísa. Bæjarfulltrúi segir húsið opna nýja möguleika í
fjórðungnum.
Jón Grétar Margeirsson sem sit-
ur í hverfaráði á Reyðarfirði segir
tímasetningu framkvæmdarinnar
vera ranga. „ Það þarf fyrst að gera
bæinn byggilegan, t.d. hér á Reyð-
arfirði þar sem er verið að byggja
um allan bæ og ekkert klárað enn.
Síðan geta menn farið að byggja
svona leikföng ef menn vilja og
eiga peninga.” Jón Grétar sér ekki
nauðsyn þess að byggja svona hús.
„Við erum að tala annarsvegar um
íþróttahús og hinsvegar tvínota
hús. Þeir segjast vera að byggja
íjölnota hús sem ég sé ekki að
gagnist öðrum en gamalmennum á
göngutúrum og strákum í fótbolta.”
Hann spyr hvers vegna ekki sé
byggt hefðbundið hús með aðstöðu
til félagsstarfsemi og líkamsræktar.
„Ég hef ekkert á móti ffamkvæmd-
um en tímasetningin er röng og það
er verið að byggja alltof stórt yfir
litla starfsemi.” Jón Grétar gerir
líka athugasemdir við kostnaðinn.
„Það mun kosta 55 milljónir á ári
að reka húsið, þeir eru að taka 250
-300 milljónir að láni og við getum
reiknað með að afborganir og
rekstur verði um 80 milljónir á
ári.”
Eiður Ragnarsson bæjarfúlltrúi
segir að lokið verði við flestar
framkvæmdir á vegum bæjarins í
sumar og því eigi gagnrýni um
ranga forgangsröðun ekki við rök
að styðjast. „Það er líka alrangt að
húsið muni ekki nýtast nema fáum
því dæmin annarsstaðar af landinu
sýna að þetta nýtist meira en fyrir
fótbolta, t.d. frjálsar iþróttir. Þetta
nýtist sem sýningarhús fyrir fjórð-
unginn en önnur hús hér eru of lít-
il fyrir þær. Við munum líka fá í
fjórðunginn knattspyrnumót allan
ársins hring en það höfum við ekki
séð áður. Það hlýtur að skilja eitt-
hvað eftir sig.” Um þá gagnrýni að
skynsamlegra væri að byggja hefð-
bundið hús, segir Eiður að alltaf
megi gagnrýna þá forgangsröðun
en bendir á að allir bæjarfulltrúar
séu sammála um þessa fram-
kvæmd. Becthel leggur um 80
milljónir króna til verksins og því
er þrýstingur á Fjarðabyggð að
Ijúka þvi sem fyrst. „Menn gera
sér alveg grein fyrir því að þetta
verður dýrt í rekstri, það er ekkert
leyndarmálsagði Eiður.
bvg@agl.is
í lendingu
Fátt er skemmtilegra en að svífa um loftin blá og virða fyrir sér landslagið; jökla, fjöll, ár og dali. Þessi
flugvél sem hér sést lenda á Egilsstaðaflugvelli, var að koma frá Reykjavík hlaðin farþegum og varningi.
Eflaust hafa einhverjir andað léttar þegar fast land var undir fótum, þvi þótt flestir hafi gaman af
þessum ferðamáta, eru þeir til sem líða vítiskvalir uppi í háloftunum.
Góðar viðtökur
Ellefú aðilar skráðu sig fyrir
íbúðum á kynningarfundi sem
haldinn var nýverið á Reyðarfirði
um fyrirhugað fjölbýlishús fyrir
eldri borgara. Til stendur að næsta
blokk sem reist verður á Reyðar-
firði, verði innréttuð með þarfir
eldra fólks í huga en alls verða 28
íbúðir í húsinu. Þeir sem að þessu
standa, segja viðtökur hafa verið
framar vonum en fjölmenni var á
fundinum og búist er við fleiri
skráningum á næstunni.
65.000 tonn frá
áramótum
Tekið hefur verið á móti 65 þús-
und tonnum af hráefni ffá áramót-
um hjá fiskimjölsverksmiðju
Loðnuvinnslunnar á Fáskrúðs-
firði. Þar af hefur verið tekið á
móti 42.000 tonnum af loðnu og
23.000 tonnum af kolmunna.
Þessum áfanga var náð í síðustu
viku og héldu starfsmenn verk-
smiðjunnar upp á hann með tertu-
veislu fyrir gesti og gangandi.
Minnkandi
atvinnuleysi
Atvinnuleysi á Austurlandi var
með minna móti sl. þriðjudag en
þá voru 105 skráðir án atvinnu hjá
Vinnumálastofnun. Að vanda
voru fleiri konur en karlar án at-
vinnu en þær voru 70 á móti 35
körlum. Alls voru 3.894 skráðir
atvinnulausir á landinu þennan
dag, 1.648 karlar og 2.246 konur.
Sjáumst í Bénus
á E?ilsstöðum
Ódýrastir um allt land!
Afgreiðslutími í Bénus é Egilsstöðum 4>
™ 1 * LU
>
Mánudag til fimmtudags <
12.00 til 18.30
íéiíiœut] ffi
IbriiðlI Hj
Föstudag 10.00 til 19.30
Laugardag 10.00 til 18.00
Sunnudag 12.00 til 18.00