Austurglugginn


Austurglugginn - 06.05.2005, Síða 2

Austurglugginn - 06.05.2005, Síða 2
2 AUSTUR • GLUGGINN Föstudagur 6. maí Helgi Seljan, útvarpsmaður. Færðu loksins að tala eins mikið og þig lystir? „Nei, þátturinn er bara þrír tímar." Helgi Seljan, fyrrum blaðamað- ur Austurgluggans og bæjar- fulltrúi í Fjarðabyggð, hófstörf hjá Talstöðinni í vikunni þar sem hann greinir þjóðfélags- málin ásamt Helgu Völu Helga- dóttur og Hallgrími Thorsteins- syni. Hann þótti tala mikið á bæjarstjórnarfundum... Mikil umsvif í höfnum Fjarðabyggðar Það er mikið um að vera í höfn- um Fjarðabyggðar það sem af er árinu. Alls hafa borist á land 191.000 lestir af fiski frá áramótum.Aflinn skiptist þannig: Bolfiskur 9200 tonn. Frystur fiskur 27.700 tonn. Kolmunni 30.200 tonn. Loðna 123.400 tonn. Frysti fiskurinn er að stærstum hluta loðna. Þá hafa komur ffagtskipa aukist mikið og frá áramótum eru þær komur orðnar 162. Bæði Eimskip og Samskip eru með fastar áætl- unarsiglingar til Fjarðabyggðar og miklir flutningar eru vegna álvers og virkjunarframkvæmda svo og með sjávarafurðir utan áætlunar- siglinganna. Frá þessu er sagt á vef Fjarðabyggðar. Sigurður Kári Jónsson kafari í Mjóafirði og ævin- týramaður var hress og kát- ur þegar Austurglugginn náði honum á línuna fyrr í vikunni. Hann var nýkom- inn úr kafi og var að fá sér kaffi og sígó þegar hann svaraði símanum. „Já, það er sko allt fínt að frétta héð- an úr Mjóafirði. Ég veit að Guðleifur vinnumaður Fúsa á Brekku var að fá sér nýja Lödu og svo er auðvitað sauðburður í fullunt gangi hérna eins og við er að búast. Af mínum persónulegu hög- um er kannski það helst að frétta að ég veit ekki hvert ég ætla í sumarfrí. Á maður að fara á Mont Blanc eða hvað? Þetta er svo sem ekki leiðin- legt vandamál. Niðurstaðan verður alltaf skemmtileg,” sagði Sigurður kafari. W FRETTIR Seyðisfjörður: Miklar skuldbindingar bæjarsjóðs Seyðisfjarðarbæ og Sveitarfé- laginu Hornafirði hefur verið gert að semja við eftirlitsnefnd með fjármálum sveitarfélaga um fjárhagslegar aðgerðir og eftirlit. Nefndin hefur það hlut- verk að fylgjast með fjármálum sveitarfélaga og komist hún að „þeirri niðurstöðu að fjárhags- staða sveitarfélags er það slæm að það hafi ekki burði til að Ieysa vandann án utanaðkom- andi hjálpar er nefndinni heim- ilt að gera samning við sveitarfé- lag um aðgerðir, eftirlit og eftir- fylgni er leitt gæti til lausnar á fjárhagsvanda þess,” eins og seg- ir í reglugerð. Cecil Haraldsson forseti bæjar- sjtórnar á Seyðisfirði segir sveitar- félagið ekki vera í fjárhagskrögg- um. „Við erum með óhagstæðan reikning fyrir sl. ár upp á um 50 milljónir króna en þar af eru lífeyr- isskuldbindingar upp á rúmar 20 milljónir og annað eins eru vísi- töluuppbætur, lán og annað slíkt. Við eru ekki í greiðslufjárkrögg- um. Það eru skuldbindingarnar sem einhverntíma munu falla á okkur sem eru að setja okkur i mínus,” sagði Cecil. Bærinn var með hátt í 30 milljónir króna í afskriftir í fyrra en Cecil segir rekstrarfjárstöðuna vera í þokka- legu lagi og hann segir bæjarsjóð standa í skilum. Talsverð fækkun hefur orðið á Seyðisfirði á undanfórnum árum. Núna búa þar 728 manns en á sjö árum hefur íbúum fækkað um 74. Cecil segir Seyðfirðinga ekki verða mikið vara við uppsveifluna hér eystra að öðru leyti en því að iðnaðarmenn frá Seyðisfirði fari annað til að vinna. bvg@agl.is Ársreikningur Fjarðabyggðar: Lakari afkoma en ráð var fyrir gert Ársreikningur Fjarðabyggðar var kynntur bæjarráði í síðustu viku. Fram kom m.a. að rekstrar- afkoma sveitarfélagsins var 32 milljónum krónum lakari en áætlanir höfðu gert ráð fyrir en það skýrist af því að rekstrarút- gjöld urðu urðu 97 milljónum króna hærri en áætlað var. Tekj- ur urðu 44 milljónum króna hærri en vaxtagjöld lækkuðu um 21 milljón króna. Um 29% frá- vik er að ræða. Andrés Elísson bæjarfulltrúi er óánægður með ársreikninginn og segir að reksturinn hafi farið úr böndunum. „Það er ekki nóg að gera rekstraráætlanir og áætla fé i ákveðna málaflokka eins og hol- ræsi en síðan eru verkin ekki unn- in. Samt er farið framúr í rekstri. Þetta hefði átt að leiða til þess að ekki hefði verið farið framúr áætl- unum.” Andrés segir að á fram- kvæmdaáætlun í fyrra og hitteð- fyrra hafi verið gert ráð fyrir fé til verklegra framkvæmda á Eskifirði sem enn hafi ekki verið unnar. Guðmundur Bjarnason bæjar- stjóri segir reksturinn vera erfiðan á þessum umbrotatímum en vísar því á bug að hann hafi farið úr böndunum. Hann segir lífeyris- skuldbindingar og laun hafa hækk- að mikið á síðasta ári og það sé aðal ástæða yfirkeyrslunnar. „Rekstrarútkoma þessa reiknings er helmingi betri en ársins á undan þó hún sé neikvæð. Ég hef fulla trú á að við náum tökum á rekstr- inum á þessu ári. Þetta bara fylgir þessum miklu ífamkvæmdum, þú bara ræður ekki við svona hluti,” sagði Guðmundur. Hann segir það hárrétt hjá Andrési að ekki hafi tekist að klára allt sem til stóð að framkvæma. „Menn setja upp ákveðna verkefnaskrá og sumt klárast og annað klárast ekki,” sagði Guðmundur Bjamason bæj- arstjóri í Fjarðabyggð. bvg@agl.is Mikil umsvif eru i Fjarðabyggð en bæjarfulltrúi gagnrýnir afkomu bæjarins I góð- ærinu. Bæjarstjórinn segir hana helmingi betri en I fyrra. Fljótsdalshérað: Skólastjóri tónlistarskóla hættir Egill Jónsson skólastjóri Tón- listarskóla Austur-Héraðs á Egils- stöðum hefur sagt starfi sínu lausu en sem kunnugt er hafa verið uppi áform um að sameina skólann öðr- um á Fljótsdalshéraði. Egill segir uppsögn sína m.a. tengjast þessu því á meðan ekki sé ljóst hver framtíðarskipan mála verði, telji hann starfsöryggi sitt ekki nægi- lega tryggt til að flyta upp á Hérað með ijölskyldu sina. Egill hefur verið í ársleyfi frá Tónskóla Nes- kaupstaðar en hann var ráðinn til eins árs að Tónlistarskóla Austur- Héraðs. bvg@agl.is Blak og fótbolti til minningar um Önnu Jónsdóttur Laugardaginn 7. maí nk. verður haldið minningarmót um Önnu Jónsdóttur sem lést í bílslysi fyrir tíu árum síðan. Mótið fer fram í íþróttahúsinu í Neskaupstað frá 14:00 til 16:00 og þarmun meistara- Anna Jónsdóttir. flokkur KR-kvenna í fótbolta taka upp á þeirra nýbreytni að keppa í blaki, auk fótbolta við Þróttarkonur af öllu stærðum og gerðum. M.a. munu stelpur í 4. flokki kvenna í fótbolta fá tækifæri til að spila við KR-stúlkurnar, auk þess sem félag- ar úr liðum sem Anna spilaði með, bæði í blaki og fótbolta hjá Þrótti og í fótbolta hjá KR spila í mótinu. Anna Jónsdóttir var mikill íþróttagarpur og spilaði blak og fót- bolta með Þrótti og síðar fótbolta með Knattspymufélagi Reykjavík- ur, auk þess sem hún þjálfaði yngri flokka í knattspyrnu hjá KR. í ár eru liðin tíu ár síðan Anna lést í bílslysi, 21 árs að aldri. Með þessu móti vilja félagar Önnu, bæði hjá Þrótti og KR minnast hennar með skemmtilegum hætti í hennar anda. Fjórða hreinsivirkið tekið í notkun I síðustu viku var nýtt fjögurra þrepa hreinsivirki við útrásir hol- ræsakerfis við Votahvamm á Egils- stöðum formlega tekið í notkun. Bólholt ehf. byggði hreinsivirkið við Melshorn, vestan við nýja íbúð- arhverfið við Votahvamm. Þetta er fjórða hreinsivirkið sem Bólholt reisir á Fljótsdalshéraði og jafn- framt það stærsta en það er gert til Frá opnuninni. að anna allt að 3000 manna byggð. Auk þessa nýja hreinsivirkis við Votahvamm eru fyrir hreinsivirki i Fellabæ, á Hallormsstað, við Ein- búablá á Egilsstöðum og fyrirhugað er að reisa það fimmta við Mána- tröð á Egilsstöðum. WJJIIhM Þumalinn að þessu sinni fær Nemendafélag Grunnskólans á Reyðarfirði sem sló í gegn með leik- ritinu Uppreisn æru sem sýnt var 20 apríl sl. Sigurður Ingólfs- son leiklistarrýnir skrifaði afar jákvæða gagnrýni um leikritið í síðasta blaði og við bætum nú um betur því við erum ánægðir með leiklistarlífið á Reyðarfirði sem er að ná áður óþekktum hæðum. Fyrst Álagabærinn og svo þetta. Bravó!

x

Austurglugginn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Austurglugginn
https://timarit.is/publication/1687

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.