Austurglugginn


Austurglugginn - 06.05.2005, Blaðsíða 4

Austurglugginn - 06.05.2005, Blaðsíða 4
4 AUSTUR • GLUGGINN Föstudagur 6. maí Austur«gluggititi www.austurglugginn.is Útgefandi: Útgáfufélag Austurlands ehf. Umbrot & prentun: Héraðsprent. Ritstjóri & ábyrgðarmaður: Jón Knútur Ásmundsson 477 1750 - 895 9982 - jonknutur@agl.is. Blaöamaður: Björgvin Valur Guðmundsson 477 1755 - 869 0117 - bvg@agl.is. Framkvaemda- og auglýsingastjóri: Erla Traustadóttir 477 1571 - 866 2398 erla@austurglugginn.is. Auglýsingasími: 477 1571 - Fax 477 1756 Skrifstofa Austurgluggans er opin 8-4 alla virka daga. Póstfang: Hafnarbraut 4, 740 Fjarðabyggð Sími 477 1755 - 477 1750 - frett@austurglugginn.is GREINAR Austurglugginn birtir aðsendar greinar. Greinarnar skal senda á netfangið jonknutur@agl.is ásamt mynd af höfundi. Austurglugginn áskilur sér rétt til að velja og hafna og stytta greinar. Glæpur sem ekki fyrnist Ég er einn þeirra 14.000 sem skrifuðu undir áskorun til Al- þingis þess efnis að kynferðisaf- brot gegn börnum fyrnist aldrei. Það gerði ég vegna þess að kyn- ferðisleg misnotkun á bömum er samkvæmt minni siðfræði glæpur sem á heima í flokki með morðum og öðrum þeim glæpum sem valda óafturkræf- um skaða. Ég gerði þetta líka vegna þess að um leið og ég fyr- irlít þá kynbræður mína sem misnota börn, skammast ég mín fyrir þá; ég skammast mín fyrir að vera af sama kyni og þeir. Karlmaður misnotar barn. Hann neyðir það eða lokkar til holdlegs samræðis við sig, stundum einu sinni en oft ítrek- að. Barnið veit ekki hvernig það á að bregðast við þessu og oftar en ekki þegir það. Karl- maðurinn hótar því eða reynir að telja því trú um að þetta at- hæfi sé eðlilegt en barnið veit samt alltaf að svo er ekki. Alltaf hlýtur barnið varanlegt tjón af misnotkun, stundum likamlegt en alltaf sálarlegt. Ef ekki kemst upp um svívirðuna á meðan barnið er ennþá barn, þróar það oftast með sér sektar- kennd yfir því sem átti sér stað og kennir sjálfu sér um. Það verður ófært um að eiga eðlileg samskipti við annað fólk þegar það kemst til vits og ára. Lífs- gleðin er tekin frá því. Oftast er það einhver sem barnið þekkir og treystir sem misnotar það. Skyldmenni eða fjölskylduvinur. Einhver sem treyst er fyrir barninu og barn- inu þykir vænt um. Þeir sem bregðast því trausti á svo sví- virðilegan hátt, eiga aldrei að komast hjá refsingu sé það á nokkurn hátt mögulegt. Þeir mega ekki sleppa vegna þess að brotið fyrnist á einhverjum árum. Stundum er það nefhi- lega þannig að fórnarlambið segir ekki frá fyrr en mörgum árum seinna og þá er orðið of seint að refsa þessum viður- styggilegu kynbræðrum minum af þvi lögin eru úr takt við al- mennt velsæmi. Nú heyrist að ekki séu allir þingmenn sammála því að breyta lögunum. Þau rök heyr- ast að kynferðisafbrot gegn bömum séu misalvarleg og það þurfi að flokka þau á þann hátt. Talað er um muninn á því að setja getnaðarlim í innri eða ytri kynfæri stúlkubarns. Þarna rek- ur mig í rogastans. Mér finnst ekki skipta máli hvað glæpa- maðurinn nákvæmlega gerir við barnið - það sem mér finnst skipta máli er að sama hvaða kynferðislegu tilburði hann hef- ur í frammi við barn, saklaust barn, þá gerist hann sekur um svo gróft afbrot að það má aldrei fyrnast. Hann hefur brugðist traust þess sem honum var falið að sýna umhyggju og vernda; hann hefur skemmt barnssálina og fyrir það á að refsa honum undanbragðalaust. bvg 10 islenskar plöt- ur sem rústuðu lifi minu 10 Á móti sól: 12 íslensk flopplög 9 Hemmi Gunn: Frískur og fjörugur 8 Buttercup: Alt á útsölu 7 Papar: Leyndarmál frægðarinnar 6 Ýmsir: Áhöfnin á halastjörnunni 5 Austfirskir staksteinar: Danshljóm- sveit Friðjóns 4 Helgi P: Allt það góða 3 Valur og regnúlpurnar: Reykjavík er köld coen á íslensku 2 Ýmsirvona er sumarið 2002 1 Buttercup: Meira Hilmar Garðarsson mússíkant rek- ur raunasögu sína í hljómplötum á http://www.blog.central.is/trubador Flettiskilti og hringtorg Góðar hugmyndir eru sjaldgæfar, svo mikið er víst, og enn sjaldgæfara er að þær verði nokkurn tíma að veruleika. Nú er ein slík á lofti í Fjarðabyggð en á fundi umhverfisnefndar um daginn, var „kynnt hug- mynd að staðsetningu flettiskiltis (auglýsinga) við að- komu að Reyðarfirði," eins og segir í fundargerðinni. Auðvitað er þetta snilld því flettiskilti og hringtorg munu gera Reyðarfjörð að borg, eða ígildi borgar í það minnsta. Góðkunningi Skotsins benti á að réttast væri að tengja þessi tvö menningarfyrirbæri og láta standa á flettiskiltinu: „Þú ert að koma í borg með hringtorgi." Hreint skólp Héraðsmenn geta nú státað sig af hreinasta skólpi í heimi en þeir tóku nýverið upp á því að geisla- hreinsa úr sér þvag og saur, þannig að gerlainnihald- ið fer langt niður fyrir viðmiðunarmörk heilbrigðis- eftirlits. Líklega þýðir þetta á mannamáli að það sem út í Eyvindarána rennur frá skolphreinsistöðinni, sé hæft til drykkjar. Skotið fagnar þessu af heilum hug, því á þessum síðustu og mestu endurvinnslutímum var svo sannarlega komið að þessu. Það er gott til þess að vita að nú er hægt að leggjast hvar sem er á bakka Eyvindarár og bergja á tæru og fersku vatni. Nema einhver asni pissi beint í ána. Peningalykt Kunningi að sunnan sem kom í heimsókn nýverið, sagðist ekki myndu hafa verið í vandræðum með að útiloka nokkur þorp hefði hann verið á þeim buxun- um að versla sér íbúð á meðan á stuttri dvöl hans stóð. Þetta vakti undrun því þrátt fyrir hvatvísi okkar gátum við ekki með nokkru móti skilið hvernig hægt var að útiloka heilu þorpin fyrir há- degi. „Jú, það er ekkert mál. Þegar lyktin sem mætir þér þegar þú stígur út úr bílnum er verri en í skötuveislu, svo slæm að ælan kemur upp í háls, þá er valið ekki erfitt," var svarið. Erum við hætt að taka eftir þessu? Þjóðaratkvæðagreiðsla um Landssímann Vinstri -grænir hafa lagt fram tillögu á Alþingi, að fram fari þjóðaratkvæðagreiðsla um sölu Símans. Fyrirhuguð sala Landssímans er afar umdeild í þjóðfélaginu svo vægt sé til orða tekið. Skoðana- kannanir hafa hvað eftir annað sýnt að meirihluti landsmanna er andvígur sölu Símans með grunn- netinu. Þannig lýsti 61% svarenda andstöðu við söluna í Gallup- könnun í mars árið 2002. í könnun sem Félagsvísindastofnun Háskóla íslands gerði í febrúar 2005 kváð- ust rúm 70% þeirra sem afstöðu tóku andvíg sölu grunnnetsins. Ekki var mikill munur á afstöðu fólks eftir því hvort það var búsett á höfuðborgarsvæðinu eða á lands- byggðinni; 68% höfuðborgarbúa voru andvig sölunni en 75% lands- Að kunna ekki réttri hendi i rass að taka „Um daginn tók ég viðtal við gamla konu, hún fór að segja mér frá konu á Austurlandi sem ekki kunni mikið til húsverka á fyrstu árum sínum í hjónabandinu og sagði: „Hún kunni ekki réttri hendi í rass að taka." Þó ég skildi hvað hún átti við fór ég að skoða þetta orðatiltæki og komst að því að það er ekki í bókum sem fjalla um slíkt. Svo ég skrifaði Orða- bók Háskólans og þar könnuðust menn við að kunna ekki réttri hendi í rass að taka." Albert Eiríksson uppgötvar nýtt máltæki. http://albert.bragur.com/ byggðarfólks. í Þjóðarpúlsi Gallup, sem kynntur var í mars 2005, var meirihluti aðspurðra andvígur sölu fyrirtækisins og 76% á móti því að selja grunnfjar- skiptakerfi Simans. Þær miklu undirtektir sem hug- myndin um að stofna stórt almenn- ingshlutafélag til að kaupa ráðandi hlut í Símanum hefur fengið, und- irstrika gremju fólks í garð ríkis- stjórnarinnar vegna sölunnar. Ekki verður betur séð en að fólki þyki skömminni skárra að kaupa fyrir- tækið af sjálfu sér en að sjá á eftir því í hendur einkavina ríkisstjórn- arinnar sem fengið hafa að maka krókinn í einkavæðingu og sölu al- mannaeigna á síðustu árum. Síðast þegar var gerð tilraun til að selja Símann var lögð áhersla á það að bjóða almenningi og starfs- fólki dágóðan hlut á viðráðanleg- um kjörum áður en farið væri að selja stærri hluti til ijárfesta og fyr- irtækja. Rökin voru þau að ekki þætti rétt að kapphlaup svokall- aðra kjölfestufjárfesta, sem þá áttu að bítast um 25% hlut, væri notað til að skrúfa upp það kaupverð sem almenningi væri boðið. Þá mót- mælti almenningur sölu Símans og keypti ekki hlutabréf. Nú á að fara þá leið sem sömu mönnum þótti ótæk fýrir fáum árum og aftur mótmælir þjóðin og vill heldur kaupa Símann af sjálfri sér en fóma honum til óskyldra eins og ríkisstjómin ætlar sér. Samkeppnishæfni landsbyggð- arinnar í húfi. Sala Símans yrði stærsta einstaka einkavæðing sem orðið hefúr í almannaþjónustu á Islandi. Hún er að öllum líkindum óafturkræf og setur framtið f)ax- skiptaþjónustu á stórum svæðum landsins í mikla óvissu. Við lands- mönnum blasir samruni fjarskipta- fyrirtækja og fjölmiðla hér á landi þar sem arðsemiskrafan ein ræður för. Hefðbundin fjarskiptaþjónusta við almenning í hinum dreifðu byggðum verður ekki forgangsmál hjá slíkum samsteypum. Mörgum spurningum er ósvarað varðandi það hvernig fara skuli með grunnijarskiptakerfi Simans, svokallað grunnnet, sem ætlunin er að selja með fyrirtækinu. Hver trúir því að ríkið muni til lang- frama styrkja “óarðbæra” fjar- skiptaþjónustu í dreifbýli? Ærnar ástæður eru til að frekari framvinda málsins verði ráðin í lýðræðislegri atkvæðagreiðslu sem allir landsmenn geti tekið þátt í. Landssíminn er að nær öllu leyti i sameign allra landsmanna þar eð hið opinbera fer með 98% hluta- fjár í fyrirtækinu. Síminn skilar milljarða króna arði árlega. Það þætti vitlaus bóndi sem seldi bestu mjólkurkúna úr fjósinu. Enn er vel hægt að blása söluna af. Þingmenn Vinstrihreyfingarinn- ar - græns ffamboðs hafa lagt ffam á Alþingi tillögu um að efnt verði til þjóðaratkvæðagreiðslu um mál- ið og ríkisstjómin verði bundin af niðurstöðunni. Þannig má tryggja að vilji landsmanna komi afdrátt- arlaust fram og ráði raunverulega fór þegar kemur að því að ákveða hvað gera skuli við Landssímann. Eftir Jón Bjarnason, alþingismann.

x

Austurglugginn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Austurglugginn
https://timarit.is/publication/1687

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.