Austurglugginn - 06.05.2005, Side 8
8
AUSTUR • GLUGGINN
Föstudagur 6. maí
Spurning
vikunnar
Ljóskastarinn
Þorsteinn Jóhannsson
Nei nei, ég fer bara þangað
sem er ódýrast.
Opið
lla daga
vikunnar
Eiður Ragnarsson
Nei, ég fer áfram i Bónus m.a.
vegna vinnunnar.
Myndin að þessu sinni var tekin fjórða apríl árið 1991.
Hún birtist í vikublaðinu Austra 4. apríl 1991. Ljósmyndar-
inn heitir Sólveig Bergsteinsdóttir og myndina tók hún er
hún brá sér í jeppaferð um páskahelgina sem var í lok
mars. í meðfylgjandi frétt segir að margt fólk hafi verið á
fjöllum og svo mikill snjór að hægt var að aka beint af
augum hvert sem hugurinn girntist.
Möðrudalur 83 kmME _
m* Askja 46 km
Valgeir Guðjónsson er á
leiðinni austur. (mynd 365)
Er Bónus úr sögunni?
Spurt á Reyðarfirði
við opnun Molans.
Klara Jóhannsdóttir
Já.
Skemmtun
í Hamraborg
Krakkarnir í tíunda bekk Grunn-
skólans á Djúpavogi stóðu fyrir ó-
venjulegri fjáröflun á dögunum en
þá buðu þeir foreldrum, vinum og
vandamönnum til veislu á Hamra-
borg í Berufirði. Tíundi bekkur
hyggur á Danmerkurferð nú í vor
og hefur verið að safna. I Hamra-
borg var haldin heljarinnar veisla;
nemendur sáu um skemmtiatriði
sem m.a. annars voru frumsamin
og flutt í fyrsta skipti þarna á slóð-
um Þjóðreks. Þau röppuðu, sungu
og léku en vertarnir á Hamraborg
sáu um að enginn færi svangur
heim. Á myndinni eru þeir sem
komu fram og skemmtu gestum.
Menntskæling-
ar dimmitera
Aðfaranótt föstudagsins 29.
april „dimmiteruðu” útskriftar-
nemar við Menntaskólann á Egils-
stöðum með hefðbundnum hætti.
Þeir tóku hús á kennurum sínum
um miðja nótt, börðu á hurðir og
kvöldverðar í Valaskjálf með út-
skriftarhópnum. Þar flutti Eiríkur
Guðmundsson frá Djúpavogi
kveðjuræðu til kennara fyrir hönd
„dimmitanta” og þær Kristín Rún
Friðriksdóttir frá Eskifirði og
glugga og hættu ekki fyrr en kenn-
ararnir stauluðust svefnþrungnir
til dyra. Þá var tekið á móti þeim
með glensi og söng. Um kvöldið
var kennurum síðan boðið til
Margrét Freyja Viðarsdóttir úr
Fellabæ sungu nokkur falleg lög
við gítarleik Gunnars Gunnarsson-
ar frá Egilsstöðum.
Nýr Austfirðingur að þessu sinni er I
„eldri" kantinum en hann heitir
Sören og fæddist á síðasta ári, nánar
tiltekið þann tíunda nóvember.
Hann vó 3400 gr og var 51 cm að
lengd. Foreldrar hans heita Ellen
Sæmundsdóttir og Kristinn Þór
Jónsson. Fjölskyldan er búsett á
Eskifirði.
MANNLÍFIÐ____
Valgeir Guðjónsson túrar um Austurland:
Fyrsti túrinn minn
síðan ég fór til
Kína
Tónleikasumarið 2005 á Aust-
urlandi er að byrja að taka á sig
mynd en nú berast þær fregnir að
Valgeir nokkur Guðjónsson
Stuðmaður sé að fara í tónleika-
ferð um Austurland í byrjun júlí.
I hljómsveitinni eru aungvir
aukvisar en með Valgeiri leika
þeir Smári Geirsson á trommur,
Ágúst Ármann Þorláksson á
hvítar og svartar nótur, Guðjón
Þorláksson á bassa og Jón Hilm-
ar Kárason á gítar.
„Þetta verður fyrsti túrinn
minn síðan ég fór til Kína,” sagði
Valgeir í samtali við Austur-
gluggann fyrr í vikunni en árið
1986 fór hann með hljómsveit-
inni Strax austur til Kína.
“Þannig að maður heldur áfram í
austurátt,” bætti hann við.
„Hvemig heldurðu að þínum
gamla hljómsveitarfélaga, Jakobi
F. Magnússyni, líki að þú sért að
spila með Smára Geirssyni?
spurði blaðamaður.
„Ég held að menn verði nú
svona almennt til friðs. Ég á alla-
vega ekki von á miklum mót-
mælum,” sagði Valgeir, bjartsýnn