Austurglugginn


Austurglugginn - 06.05.2005, Qupperneq 9

Austurglugginn - 06.05.2005, Qupperneq 9
Föstudagur 6. maí AUSTUR • GLUGGINN 9 Stefanía Ósk Sveinbjörnsdóttir. M ATGÆÐINGUR VIKUNNAR '&> Ég ætla að gefa ykkur uppskriftir af kjötsúpum, sem ég elda gjarnan þegar margir eru í mat. Annars vegar er það þessi gamla góða og hins vegar uppskrift af kolvetnasnauðri kjötsúpu sem er ekki síðri, bara öðruvísi. Einnig fylgir uppskrift af gamaldags rjómatertu. Verði ykkur að góðu! Súgamlagóða: Best er að nota stóran stálpott. 1 1/2 kg lambaframpartur, mesta fitan skorin af Salt eftir smekk 1/2-1 pk súpujurtir 1/2 bolli hrísgrjón 5 gulrætur 5 kartöflur 1/2 rófa 1/4 hvítkálshaus (lítill) 3 hvítlauksgeirar, skornir smátt. Kjötið sett í pott ásamt vatninu. Þegar suðan er komin upp er froðan veidd vandlega af, kjötið saltað og hrísgrjónin sett út í ásamt súpujurtunum. Soðið í 70 mínútur þá er grænmetinu, sem búið er að skera í teninga, bætt út í og soðið áfram í u.þ.b. 20 mínútur. Ágætt er að hreinsa kjötið af beinunum áður en súpan er borin fram. Svo erþað sú kolvetnasnauða: 1 1/2 kg lambaframpartur, mesta fitan skorin af. Vatnið látið fljóta vel yfir kjötið. Salt eftir smekk 1/2 bolli bankabygg 2 nautakjötsteningar 1 meðalstórt blað skessujurt 1 blaðlaukur 3 lengjur sellerí 3 lárviðarlauf 3 hvítlauksrif, skorin smátt Sama aðferð og við þá hefðbundnu, passa að fleyta mjög vel og sjóða a.m.k. í eina og hálfa klukkustund. Hefibundín rjómaterta í eftirrétt, eða bara með kaffinu: 6 egg 300 gr sykur 300 gr hveiti 3 tesk lyftiduft 4 mtsk heitt vatn vanilludropar 1 dós Del Monte blandaðir ávextir og ferskir ef vill 1/2 lítri rjómi inn í tertuna og 1/4 - 1/2 lítri ofan á tertuna. Egg og sykur þeytt í a.m.k.20 mínútur, hveiti og lyftiduft sigtað saman og blandað varlega út í eggjahræruna. Bæta heita vatninu út í ásamt örlitlu af vanilludropum. Bakað í ofnskúffu sem búið er að klæða innan með bökunarpappír og smyrja með smjörlíki, örlitlu hveiti sáldrað yfir pappírinn. Sett inn í 180 C heitan ofn, við mestan undirhita og minni yfirhita (neðarlega í ofni). Bakað í 40-50 mínútur. Þegar tertan er orðin vel köld er hún skorin í tvennt. Ávöxtunum er hellt á sigti og safinn notaðurtil að bleyta í botnunum. Gjarnan látið bíða. Rjóminn þeyttur og blönduðum ávöxtum hrært saman við. Ef vill er hægt að hræra út í rjómann hálfum pakka af sítrónu fromage. Botnarnir lagðir saman. Skreyta má tertuna með ýmsum ferskum á- vöxtum, rauðu kokteilberin eru líka alltaf vinsæl. Ég skora á Sigurð Magnússon að koma með næstu uppskrift. hagyrðinga Sælt veri fólkið! Þar sem sumarið er nú komið, að minnsta kosti samkvæmt dagatalinu, er ekki úr vegi að hefja hag- yrðingahorn þetta á efni er því tengist. Eftirfarandi limrur samdi ég fyrir nokkrum árum á sumardeginum fyrsta, en veður var þá sérlega leiðinlegt, og lítið sem gaf þá til kynna að sumar væri á næsta leyti. Vetur telst nú ver'að baki mér virðist samkvæmt almanaki en samt sem áður ég stend þjáður á sumardegi í éljaskaki Því enn stríðir vetur með sín völd og vindáttin er bæði ill og köld og æ skal ég muna í gaddi og bruna þetta snjóþyngsta sumar á þessari öld En öll él birta upp um síðir segir máltækið. Lífsins þróttur litkar börð lifnar fjör i dalnum á undanhaldi er tíðin hörð hýrnar yfir fjallasalnum Grænka engi, teigar tún tindar sunnu hylla fagnar, lyftir fjallsins brún friðsæl vorsins stilla Á sumrin veit ég fátt betra og meira gefandi en að ferðast um hálendi íslands og kanna undraheim ís- lenskrar náttúru. Þegar ég kom í fyrsta sinn í Herðu- breiðarlindir datt mér í hug þessi vísa. Landið það á til fjöll og fljót ljölbreytilegar myndir hamra auðnir, hraun og grjót og Herðubreiðarlindir Um þjóðarfjallið Herðubreið samdi ég þetta, þegar tók að skyggja. I rökkrinu hlust'á hálendisseið og ég heyri tíl mín kalla drambsfúlla, dulræna Herðubreið drottningu íslenskra fjalla I sama skipti lét ég landvörðinn í Herðubreiðarlind- um hafa þessa vísu í kveðjuskyni, sem þakklætisvott fyrir alúðlegar móttökur. Orða bundist ei lengur ég get í örmum fjallsins við lindarnið þín fegurð þitt fas mín Elísabet mér finnst skyggja á landslagið Góðar stundir Hugi Guttormsson Fellaskáld www. hugmyndir. net Nafn: Ljósbjörg Petra María Sveinsdóttir. Aldur: 82 ára. Starf: Nurlari. Búseta: Bý á Stöðvarfirði. Fjölskylduhagir: Ekkja. Skóstærð: 37. Ertu með eða á móti ríkisstjórninni? Eiginlega hvorugt. Viltu fá léttvin og bjór í matvöruverslanir? Nei, hreint ekki. Takk fyrir samt. Bitlarnir, Rolling Stones eða Geirmundur? Geirmundur að sjálfsögðu. Hvað er rómantik i þinum huga? Tunglsljós. Hver er höfuðstaður Austurlands? Stöðvarfjörður, engin spurning. Hefur þú búið erlendis? Nei. Langar þig að búa erlendis? Nei. Hvaða matur finnst þér bestur? Saltkjöt og baunir. Túkall. Stundar þú likamsrækt eða iþróttir? Ég labba mikið. Hvort ertu heppnari í spilum eða ástum? Ástum. Ég hef alltaf verið hundóheppin í spilum. Trúir þú á eitthvað? Já, ég trúi á Guð og allar góðar vættir. Hver er kynþokkafyllstur? Davíö Oddsson. Hvaða þrjá hluti myndir þú vilja hafa með þér á eyði- eyju? Prjóna og band en það hlýtur að vera einn og sami hlutur- inn, vatn og gleraugun mín. Hvernig ertu skapi farin, svona almennt séð? Ég hef aldrei þótt geðgóð. Áttu þér uppáhalds bók? Heima er bezt, eftir Margréti Ravn. Hver er þinn stærsti kostur? Að ég skuli ennþá vera nógu heilsuhraust til að geta keyrt bíl. Hver er þinn stærsti galli? Geðvonskan. Eitthvað að lokum? Endilega látið þið Austurgluggann ekki deyja út. Mér finnst svo Ijómandi gott að fá hann.

x

Austurglugginn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Austurglugginn
https://timarit.is/publication/1687

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.