Austurglugginn - 06.05.2005, Side 10
10 AUSTUR • GLUGGINN
Föstudagur 6. maí
MENNING \.LISTIR
Mikið um að vera
á Skriðuklaustri
Laugardaginn 7. maí kl. 14
verður opnuð á Skriðuklaustri
sýning á málverkum og vatns-
litamyndum af Snæfelli. Á
sýningunni eru m.a. verk eftir
Finn Jónsson, Guðmund frá
Miðdal og Kjarval. Sýningin
stendur til 22. júlí og er opin á
sama tíma og hús skáldsins. Á
laugardaginn verður einnig
opnuð sýning á ljósmyndum
eftir Sigurð Blöndal í Gallerí
Klaustri. Sýningin kallast
FÓLK og á henni eru 9 svart-
hvítar myndir. Sú sýning
stendurtil 16. júní.
Sunnudaginn 8. maí kl. 14
halda Marta Guðrún Halldórs-
dóttir söngkona og Snorri Örn
Snorrason gítarleikari tónleika
á Skriðuklaustri. Á efnisskrá
eru m.a. þjóðlög, bæði íslensk
og erlend. Þá hefst sumaropn-
un á Skriðuklaustri um helgina
og ffá 8.-27. maí verður opið
alla daga kl. 12-17. Klaustur-
kafFi opið á sama tíma. Önnur
opnun er eftir samkomulagi og
hópar alltaf velkomnir. Sjá
nánar á www.skriduklaustur.is
Myndir af íslenskum
sveitabæjum
Á fimmtudaginn, í gær, var
opnuð í Safnahúsinu á Egils-
stöðum ljósmyndasýningin
„Hér stóð bær” í tengslum við
Menningardaga að vori á Hér-
aði. Um er að ræða 30 ljós-
myndir af íslenskum sveita-
bæjum sem ekki hafa verið
borin kennsl á. Myndirnar eru
hluti af sýningu sem Þjóð-
minjasafnið setti upp í byrjun
árs. Er leitað aðstoðar sýninga-
gesta við að þekkja þá bæi sem
um ræðir. Sýningin stendur í
allt sumar.
Ferðafélag fjarða-
manna fær viður-
kenningu
Það var formaður Ferðafélagsins,
ína Gísladóttir, sem veitti viður-
kenningunni viðtöku.
Ferðafélag fjarðamanna fékk
föstudaginn síðastliðinn frum-
kvöðulsviðurkenningu Mark-
aðsstofu Austurlands fyrir
framlag sitt til uppbyggingar
gönguleiðaferðaþjónustu á
Austurlandi. Var viðurkenn-
ingin veitt á aðalfundi Mark-
aðsstofunnar sem haldin var í
Egilsbúð á Norðfirði. Ferðafé-
lagið hefur m.a. staðið fýrir
uppbyggingu gönguleiðaferða-
þjónustu með merkingu
gönguleiða á Fjarðabyggðar-
svæðinu, útgáfu gönguleiða-
korts og með því að halda úti
heimasíðu.
Austfirðir frá Reyðarfirði til
Seyðisfjarðar
íslands árbók 2005:
Gerpir. Ein af fjölmörgum Ijósmyndum Fljörleifs i nýútkominni bók hans um Austfirði.
Út er komin árbók Ferðafélags
Islands en hún nefnist „Austfirðir
ffá Reyðarfirði til Seyðisfjarðar”
og er eftir Hjörleif Guttormsson.
Bókina prýða 350 litljósmyndir,
allar teknar af Hjörleifi. Einnig
eru í bókinni 20 gamlar svarthvít-
ar ljósmyndir af mannvirkjum og
merkisfólki frá fyrri tíð.
Ellefu staðfræðikort eru í bók-
inni, teiknuð af Guðmundi Ó.
Ingvarssyni; þrjú heilsíðukort af
Reyðarfirði og nágrenni, tvö af
Norðfjarðarsvæðinu, tvö af Mjóa-
firði og tvö af Seyðisfirði auk
minni korta af Hólmanesi og Sel-
ey. Guðmundur hefur einnig unn-
ið eftir frumgögnum annarra,
þrettán jarðfræðikort og skýringar-
uppdrætti en í fréttatilkynningu
segir um þau: „I þessum kortum
og teikningum felast geysi miklar
upplýsingar sem ekki hafa verið
almenningi aðgengilegar, svo sem
um berggrunninn, rof hans og aðra
landmótun, myndun geislasteina,
jökulmyndun og jökulleifar, að-
stæður i Fáskrúðsljarðargöngum.
Ömefni á staðfræðikortunum hefir
bókarhöfundur ákvarðað sam-
kvæmt staðþekkingu sinni og ráð-
um heimamanna, og er þar margt
öðru vísi en á kortum Landmæl-
inga.”
Landlýsing er ítarleg í bókinni
og nefhir höfundur alla sveitabæi
sem byggðir hafa verið á svæðinu
og gerir grein fyrir þéttbýlismynd-
un og atvinnusögu. Staðháttum er
lýst, helstu örnefni staðsett og saga
svæðisins sögð. Landlýsing nær
frá Eyri í Reyðarfirði til Brimness
í Seyðisfirði. I síðasta kafla bók-
arinnar er ágrip af jarðfræði Aust-
fjarða en Hjörleifur hefur tekið
það saman úr ritgerðum jarðffæð-
inga sem birst hafa undanfama
hálfa öld. Þessi bók er sjötugasta
og áttunda árbókin sem Ferðafélag
Islands gefur út.
Varið land
til sölu
Sífellt er leitað leiða til að auka
við og bæta málverkasafn Tryggva
Ólafssonar í Neskaupstað. Talsvert
hefur áunnist og árlega hefur tekist
að bæta við nokkrum myndum. Nú
hefur verið upplýst að myndin
„Varið land” sem Tryggvi málaði
1977 sé til sölu. Myndin er mjög
stór eða 175 x 280 cm og kostar
býsna mikla peninga. Myndin er
einkennandi fyrir þetta tímabil og
Tryggva finnst hún eitt af sínum
bestu verkum. Safninu væri því
afar mikill fengur í að klófesta
þessa mynd og samið hefur verið
um forkaupsrétt í mánuð eða svo.
En ijármuni skortir. Hér með er
leitað til velunnara safnsins og
vinahóps Tryggva persónulega, til
einstaklinga, fyrirtækja og stofn-
ana að leggja fram einhverja fjár-
muni til að hægt sé að kaupa
myndina. Við höfum engar sér-
stakar upphæðir í huga heldur
kannski að sem flestir leggi hönd á
plóginn. Hægt er að leggja fram-
lög inná bók nr. 401704 í Spari-
sjóð Norðfjarðar eða koma þeim
til einhvers undirritaðra: Frey-
steins Bjamasonar í TM í Nes-
kaupstað, Guðmundar Bjarnason-
ar bæjarstjóra eða Magna Krist-
jánssonar.
Magni Kristjánsson
Þekkir einhver
þessar konur?
Myndin kemur úr safni á Reyðarfirði
en Ijósmyndara er ekki getið.
Þeir sem hafa einhverjar upplýsingar eru beðnir um
að hafa samband við
Dísu á Héraðsskjalasafni Austurlands.
Síminn hjá henni er 471 1417.