Austurglugginn


Austurglugginn - 06.05.2005, Síða 11

Austurglugginn - 06.05.2005, Síða 11
Föstudagur 6. maí AUSTUR • GLUGGINN 11 ÍÞRÓTTA í FRÉTTIR Snjókrossið: Fannar íslandsmeistari Sigursælir snjókrosskappar: Fannar annar frá vinstri. Því miður gátum við ekki birt myndir og úrslit úr snjókross- keppninni á Fjarðarheiði unr þar síðustu helgi. Við bætum úr því og birtum hér mynd af sigurreif- um snjókrossköppum en Aust- firðingar gerðu góða hluti á mótinu. Sæþór Sigursteinsson lenti í öðru sæti í unglingaflokki og í öðru sæti á Islandsmótinu. í sportflokki sigraði Fannar Magnússon og varð einnig ís- landsmeistari og var fyrr í vetur búinn að vinna Reykjavíkur- mótið þannig að hann færir sig væntanlega upp um flokk fyrir næsta vetur. Þá endaði Steinþór Stefánsson í þriðja sæti í pró- flokki. Blak - bikarúrslit kvenna: Reykjavíkur Þróttur hafði betur Úrslitaleikurinn í Bikarkeppni Blaksambands íslands var háður í KA heimilinu á Akureyri 23. apríl. Bein útsending var frá leiknum og þegar best lét má áætla að allt að 600 áhorfendur hafi verið i húsinu. Flestum eru kunnug úrslit þessa leiks en hann fór 3 - l fyrir Þrótt R en leikmenn Þróttar N áttu góðan leik þó byrjunin hefði mátt vera betri en mikill taugaóstyrkur ein- kenndi upphaf leiksins. Eflaust hefur það haft að segja að liðið hefur ekki spilað leik síðan í febr- úar, eða frá því að íslandsmótinu lauk. Tvær fyrstu hrinurnar voru Þróttar R. en oft mátti ekki á milli sjá í annarri hrinunni hvoru liðinu hrinan félli í skaut. Þróttur N. tók þriðju hrinuna með glæsibrag og mátti ekki á milli sjá hvort liðið væri Islandsmeistari. En þriðja hrinan var Þróttar R og titillinn þeirra. Segja má að þarna hafi far- ið fram það besta í kvennablakinu hér á landi. Leikurinn var spenn- andi allan tímann, og létu áhorf- endur, sem allir hrópuðu áfram Þróttur, vel til sín heyra. Elma Guðmundsdóttir, varaformaður BLÍ og Guðrún Kristín Einarsdótt- ir, ritari sambandsins afhentu verð- laun að leik loknum, en hvorug þeirra gefur kost á sér til áfram- haldandi stjómarsetu í Blaksam- bandinu á ársfundi þess, 7. maí n.k. Á annan tug liða frá Austurlandi á Öld- ungamótinu Á annan tug liða frá Austurlandi tók þátt í fjölmennasta Öldunga- móti BLÍ, sem haldið hefur verið til þessa. Árangur þeirra var al- mennt góður og umfram allt var þetta góð skemmtun. Á Öldunga- þinginu sem haldið var á meðan á mótinu stóð komu fram 3 umsókn- ir um næsta mót, frá íþróttafélög- um á Snæfellsnesi, Stjörnunni Garðabæ og Þrótti R. Mótið hefur verið í umsjón Þróttar R og í Snæ- fellsbæ og er því ekki ólíklegt að næsta mót verði í Garðabæ. í kvennaflokki öldunga var leik- ið í 8 deildum og 4 í karlaflokki, auk þess sem leikið var í flokki Ljúflinga og Öðlinga en það eru þeir sem komnir/ar eru yfir ákveð- inn aldur! I karlaflokki vann Hött- ur 3. deildina og flyst því í 2. deild að ári, Broskallar urðu í 4. sæti og Þróttur N b í 6. sæti. í 4. deild kk. Varð Þróttur N 3. í 7. sæti og Hug- inn í 8. sæti. I kvennaflokki varð Þróttur N í 2. sæti í 2. deild, Honey Bees í 3. sæti í 3. deild, Höttur í 2. sæti í 5. deild og Þróttur b í 6. sæti, Fjarða- byggð varð í 7. sæti í 6. deild, Neisti í 6. sæti í 7. deild og Hrafn- kell Freysgoði í 4. sæti í 8 deild. EG. Fótboltinn: Neisti stefnir á betri árangur Úr leik Neista og Einherja. Einherji verður ekki með í sumar en Neisti stefnir á að vera fyrir ofan miðja deild. Neisti á Djúpavogi leikur í þriðju deildinni í sumar en í fyrra gekk liðinu ekkert sérlega vel, þrátt fyrir góða byrjun. Það hefur reyndar einkennt Neista; liðið hefur oftast byrjað vel en aldrei náð að halda dampi heilt Islandsmót. Óli Halldór Sigurjónsson þjálfar Neista í sumar en hann hefur hvorki þjálfað Iiðið né leikið með því áður. Hvað er Neisti að gera til að undir- búa sig fyrir sumarið, er t.d. verið að styrkja liðið með aðfengnum leikmönnum? „Ég veit ekki hvað skal segja um það, ég tók við 1. mars og Neisti hefur síðustu ár ver- ið með þrjá júgóslava. Þeir verða aftur þrír núna í ár,” segir Óli. „Tveir þeirra hafa verið áður en það kemur nýr markmaður til okkar. Svo er Hallur Ásgrímsson genginn til liðs við okkur.” Hallur sem er frá Djúpavogi, hefur á undanförnum árum leikið með liðum í efri deild- um en er nú kominn á heimaslóðir. Óli segist eiga erfitt með að meta styrk Neista gagnvart öðrum liðum í riðlinum því hann segist lítið þekkja til þeirra en segir þó að hon- um lítist ágætlega á þetta. Eins og oft hefur komið fram, munu aust- firsk lið leika í riðli með liðum að norðan í sumar og Óli telur að það muni breyta landslaginu talsvert; aukin ferðalög og ný lið. „Mér líst vel á að vera ekki alltaf að spila við sömu liðin,” segir hann. En hvað með fjárhagshliðina, verður ekki úthaldið dýrara með ferðalögum norður? „Við þurfum að fara þrisvar sinnum þangað en svo er ekki nema klukkutíma ferð í Egils- staði eða á Fáskrúðsfjörð,” segir Óli. Það er ekki endilega markmið hjá Neista að komast upp í aðra deild en frarn til þessa hefur liðið aldrei náð fimmtíu prósent árangri, heldur oftast verið í öðru af tveimur neðstu sætunum. „Við ætlum allavega að ná fimmtíu prósent árangri í þetta skipti,” segir Óli Halldór Siguqóns- son þjálfari Neista. Skák og Bridge: Teflt á Skriðu- klaustri Hið árlega Kaaber Kaffihúsa- skákmót UMF Þristar var haldið á Skriðuklaustri í gær, 1. maí. Fimmt- án skákmenn mættu til leiks og voru tefldar sjö umferðir eftir Mon- radkerfi í opnum flokki en verð- launað var sérstaklega fyrir yngri og eldri flokk þar sem skilin voru miðuð við lok grunnskóla. I flokki fullorðinna vann Sigurð- ur Amarson með 6 vinninga en hann hampaði titlinum í fjórða sinn. I öðru sæti varð Viðar Jónsson með 5 1/2 vinning og Sverrir Gestsson þriðji með fimm vinninga. í unglingaflokki bar Bjami Jens Kristinsson sigur úr býtum þriðja árið í röð en hann náði fjórum vinn- ingum. I 2.-5. sæti urðu jafr.ir með þrjá vinninga Sigurður Max Jóns- son, Ingimar Jóhannsson, Garðar Örn Garðarsson og Sigurður Árni Sigurbjörnsson svo þeir þurftu að tefla um verðlaunasætin. Sigurði Max vegnaði þar best og hreppi annað sætið og Ingimar það þriðja. Emma Líf Jónsdóttir úr þriðja bekk Haliormsstaðarskóla var eina stelpan sem tók þátt í mótinu. Firmakeppninni lokið Bridgefélag Fjarðabyggðar hefur lokið firmakeppni 2005 og í 6 efstu sætum voru eftirtalin fyrirtæki: 1 sæti Laufskálinn Neskaupstað 198 stig Jóhanna Gísladóttir & Vigfús Vigfússon, 2. sæti Veiðiflugan Reyðarfirði 194 stig Sigurður Freysson & Kristján Kristjánsson, 3. sæti Atlavík Eskifirði 192 stig Halldór Gunnarsson & Sigurður Björgvinsson 4. sæti Suðurverk Reyðarfirði 188 stig Auðbergur Jónsson & Hafsteinn Larssen 5. sæti Á.S. bókhald Reyðarfirði 188 stig Árni Guðmundsson & Þorbergur Hauksson 6. sæti Netag. Friðriks Vilhjálms- sonar Nk. 186 stig Jóhanna Gísla- dóttir & Vigfús Vigfússon.

x

Austurglugginn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Austurglugginn
https://timarit.is/publication/1687

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.