Austurglugginn - 06.05.2005, Síða 12
f/ff, Heimasíða Hitaveitu Egilsstaða og Fella Ai icti 1 r A nln Leyfðu okkur að þjóna þér
JffiHEF www.hef.is AUSTUr #2IU22ITITI Fostudagur 6. mai 2005 ® 477 1750 Ferðaskrifstofa Austurlands Sími 471 2000 - www.fatravel.is
BAKTALtÐ
- FlNNUR TORf I CUNNARSSON -
Skrýtið
Ég tel mig tiltölulega skynsaman í
hugsun og nokkuð vel upplýstan
hvað margt varðar. Ég hef þó nýlega
lært að sætta mig við að ég skil ekki
allt og mun aldrei gera það. Ég mun
til dæmis aldrei nokkurn tíman skilja
eðlisfræði eða sérkennilegan hugs-
unarhátt kvenna. Þessi dæmi eru
reyndar skiljanlega óskiljanleg þar
sem um stórkostlega flókna hluti er
að ræða. Það eru þó til mýmörg
dæmi í hversdagsleikanum sem alla
jafna ekki er spáð í og eru með öllu
óskiljanleg ef rýnt er nógu fast í og
af nægum áhuga. Hér eru nokkur
dæmi:
* Innanbæjarslúður. Að japla á því
hver sé með hverjum, af hverju og
annað tengt náunganum, botna ég
ekki í hvað er áhugavert við. Hvern-
ig væri að rýna i eigin barm og
hætta að reyna að upphefja sjálfan
sig með gagnrýni á aðra?
* Fermingar. Það eru allir búnir að
viðurkenna að hafa gert þetta fyrir
gjafirnar. Af hverju að halda þessum
rándýra skrípaleik áfram?
* Dans. Það dansar enginn edrú eða
óbrjálaður. Þarf ekki að segja meira.
* Hádegisleikfimi Stöðvar tvö. Byrjar
rétt eftir hádegismat og stendur yfir
í tíu mínútur. í fyrsta lagi, hver hreyf-
ir sig í 10 mínútur? 1 öðru lagi, hver
hreyfir sig í hádeginu með magann
fullan af mat? í þriðja lagi, hver
hreyfir sig fyrir framan sjónvarpið?
Með því vitlausasta sem fyrirfinnst í
sjónvarpsdagskránni og hefur vit-
leysan staðið yfir í mörg ár.
* Reykingar. Tennur og fingur gulna,
andremma eykst, föt og allt nálægt
reykingamanni angar af viðbjóði,
hrukkumyndun hefst fyrr en ella, út-
hald minnkar, fyrir utan að þessi iðja
dregur viðkomandi og alla nálægt
honum til dauða. En hey, þetta er
svo gott.
* Jeppaeign almennings. Það er
ófært á íslandi kannski þrjá daga á
ári í versta falli. Er það næg ástæða
til að versla óþolandi fyrirferðamikla
jeppa sem menga meira en aðrar,
minni bifreiðar og eru mun dýrari í
bæði upphafskostnaði og rekstri?
* Fegurðarsamkeppnir. Ég trúi ekki
að við karlmennirnir höfum komist
upp með þetta fram á 21. öldina.
Það sem er ennþá ótrúlegra er að
kvenfólk virðist enn vilja taka þátt í
þessu. Það er verið að keppa í feg-
urð. Finnst engum þetta skrítið
nema mér?
* Trú. Þótt erfitt sé að mæla það þá
bendir allt til þess að hún drepi fleiri
en hún bjargar. Fyrir utan, auðvitað,
að um er að ræða djúpan heilaþvott
ungbarna sem endist oftast alla
þeirra ævi, nema þau berjist gegn
honum með röksemdahugsun.
Listinn getur haldið áfram endalaust
enda spái ég í öll möguleg smáatriði
hversdagsleikans. Ég læt þó staðar
numið hérna þar sem listinn nægir
til að ég verði tekinn í gegn af öllum
hópum samfélagsins þegar ég sný
aftur austur í sumar.
Austfirskar kvenhetjur:
Lindudúkkur
Birnudúkkur?
Á málþingi um ferðaþjónustu á Austurlandi í síðustu viku kom
margt merkilegt fram en þó fátt eins áhugavert og hugmynd
Signýjar Ormarsdóttur ffamkvæmdastjóra Menningarráðs Aust-
urlands um að kynna fyrir ferðamönnum á Austurlandi aust-
firskar kvenhetjur.
í erindi sínu nefndi Signý sér-
staklega til sögunnar Lindu Péturs-
dóttur sem aldrei hefur tapað feg-
urðarsamkeppni og Birnu Þórðar-
dóttur sem sumir segja að sé mun
öflugri stjórnarandstaða en sú sem
slappar af á Alþingi.
Signý segir að hugmyndin hafi
kviknað nokkrum augnablikum
áður en hún hélt erindið. „Mitt hlut-
verk er meðal annars að hrista upp
í fólki í þessum bransa og svona
hugmynd átti að gera það,” segir
Signý. „Þetta er ekki búið að útfæra
nákvæmlega enda ætlunin fyrst og
fremst að vekja athygli á því að oft
leitum við langt yfir skammt að
hugmyndum. Erindið mitt fjallaði
um menningartengda ferðaþjón-
ustu og þegar menn hugsa um
þannig ferðaþjónustu dettur mönn-
um helst í hug persónur úr Islend-
ingasögunum en helstu kvenhetjur
Islands þurfa ekki endilega að vera
Hallgerður langbrók eða Auður
djúpúðga. Þær geta líka verið Linda
P. og Birna Þórðar,” segir Signý en
Linda er eins og allir vita ættuð frá
Vopnafirði og Bima er fædd og alin
upp á Borgarfirði eystra.
Signý segir að um ævi þessara
kvenskörunga megi skapa heilmik-
ið ævintýri. „Ég þekki til Bimu og
veit hvemig áhrif hún hefur þegar
hún talar. Fólk tekur eftir því sem
hún segir og ég er viss um að marg-
ir hefðu áhuga á því heyra hana
segja frá æskuárum sínum á Borg-
arfirði. Þá hefur hún þurft að liða
fyrir skoðanir sínar og staðið uppi
atvinnulaus vegna þeirra. Líf þeirra
beggja er ævintýri líkast.”
„En hvemig er hægt að útfæra
þetta. Á að gera vaxmyndir af þess-
um konum?”
„Það væri hægt að gera dúkkur
en við eigum ekki að byggja eitt-
hvað vaxmyndasafn. Við eigum
ífekar að reyna að vinna með þessa
ímynd þannig að fólk tengi þessar
kvenhetjur við Austfirði rétt eins
og fólk er byrjað að tengja víkinga
við Hafnaríjörð. Aðalatriðið er að
kvenhetjurnar eru vannýtt auðlind
sem við verðum að virkja. Áhuga-
samt fólk má gjarnan stela þessari
hugmynd og koma henni í fram-
kvæmd,” segir Signý sem segist að-
spurð ekki vera austfirsk kven-
hetja.
Austfirskar kvenhetjur: Birna og Linda.
Signý Ormarsdóttir, framkvæmdastjóri
Menningarráðs Austurlands, vill að við
flöggum kvenhetjum Austurlands.
Fjölgun í Samfylkingunni
Hálftvíburabræðurnir Jón Sigurðsson
(44) og Sigurður Pálsson (líka 44) frá
Efri Frostastöðum á Hnefilsdal hafa
ákveðið að bjóða sig fram til varafor-
manns í Samfylkingunni. Þessi
ákvörðun var ekki með öllu átaka-
laus því bræðurnir hafa fram til þessa
verið bendlaðir við Sjálfstæðisflokk-
inn en slógu þó til þegar þeim var
boðið að ganga i Samfylkinguna og
sagt að þar stæðu þeim allar dyr
opnar, aðrar en að baðherbergi Stef-
áns Jóns Hafstein (19). Jón segist
styðja Össur (35) en Sigurður á þá ósk
heitasta að verða Ingibjargar (21)
maður. Framboð þeirra bræðra hef-
ur vissulega reynt á samheldni fjöl-
skyldunnar en móðir (93) þeirra læsti
þá úti þegar hún frétti af uppátæk-
inu og feður (93,54) þeirra slógust.
Jón og Siggi eru liðtækir gitarleikarar
og hafa oft komið fram á Djasshátið
Egilsstaða. Þeir eru nú að æfa atriði
fyrir landsfund flokksins sem verður í
lok þessa mánaðar. Bræðurnir byggja
atriðið á reynslu sem þeir fengu á ver-
tíð i Sandgerði 1979 og nefnist það
„Salt i sárin."
Nú er svo komið að í Samfylkingunni
eru fleiri Sjálfstæðismenn en Sam-
fylkingarmenn og sagði Sleipur Áls-
son (15) kosningastjóri að þetta væri
jákvæð þróun. „Ég meina, þetta er
gott pi ar maður. Algjört meistara-
stykki. Spindoktorarnir hjá Fram-
sóknarflokknum eru grænir af öf-
und, þeim hefði aldrei dottið þetta í
hug," sagði Sleipur. Einnig hefur
meðalaldur félagsmanna í Samfylk-
ingunni lækkað talsvert en hann er
nú 11,5 ár. „Þetta bara sýnir hvað
ungt fólk er orðið pólitískt þenkjandi
maður. Krakkarnir eru hættir að spá
í tövluleiki og farnir að hugsa um
stjórnmál, er það ekki bara jákvætt,"
sagði Sleipur um leið og nefið á hon-
um lengdist um 5 sentimetra.
TM-Öryggi Sameinaöu allar tryggingar á
fyrir fjölskylduna einfaldan og hagkvæman hátt.
www.tmhf.is \ ÖRYGGI
Versliö þar sem úrvalió er... ...allt í einni feró
Samkaup íúrvaL
EGILSSTÖÐUM Opió mdnud. - föstud. 9-19 laugardaga 10-18 sunnudaga 12-18
Samkaup fúrx/al
EGILSSTÖÐUM Á
INNANLANDS er...
öflugasta flutninganetið á íslandi. Við höfum sameinað áætlunarflutninga Flytjanda, gámaakstur Eimskips og svæðisskrifstofur
um land allt i eitt heildstætt flutningakerfi. Við bjóðum daglegar ferðir og öfluga dreifingarþjónustu bæði fyrir fjölskyldur
og fyrirtæki af öllum stærðum og gerðum og erum leiðandi í flutningum á kældum og frystum afurðum.
EIMSKIP
INNANLANDS
Kiettagarðar 15 lOAReykjavlk Slmi 525 7700 Fax 525 7709
www.eimskip.is