Ylfingablaðið - 01.12.1937, Page 14
14
YLFING ABL AÐIÐ
áður er getið, sungum við einu sinni, sýndum
stofnun Alþingis 930 tvisvar, þar af í annað
sinnið fyrir hollenzku ríkisstjórnina, og glímd-
um tvisvar. í tjaldbúðum okkar höfðum við
stórt tjald, þar sem almenningi var boðið inn,
og var hægt að fá margar upplýsingar þar. Þar
sýndum við t. d. kort, er sýndi legu landsins,
landlagsmyndir og margar aðrar myndir frá
íslandi. Var þetta til sýnis frá kl. 12—8 e. h.
10. ágúst var Jamboree slitið og sama dag
héldum við heimleiðis um Haag, Brtissel, París
(þar skoðuðum við heimssýninguna), Hannov-
er, Hamborg, Kaupmannahöfn, Edinborg.
Bjarni Björnsson.
Ylfingar verða skátar!
Sunnudaginn 17. október s.l. var skemmti-
fundur haldinn fyrir félaga í skátafélaginu
„Ernir“. Fundurinn var haldinn í Kaupþings-
salnum í Eimskipafélagshúsinu.
I sambandi við fund þennan langar mig til
að minnast þess, að þar voru 20 ylfingar tekn-
ir upp sem skátar, og leyfi ég mér að birta þau
orð, sem ég talaði til þeirra áður en athöfnin
hófst:
„Kæru skátabræður og væntanlegir bræður!
Við munum allir vita af hvaða ástæðu við er-
um hér í kvöld, en það er vegna þess, að nú er
vetrarstarf félags okkar að hefjast, og svo
vegna þess, að við erum að taka á móti mörg-
um nýjum meðlimum, sem í raun og veru eru
þó ekki nýir, því að flestir þeirra hafa starfað
allt að þremur árum sem ylfingar. Þetta mun
vera, í fyrsta sinn í sögu félagsins, sem svo
margir ylfingar eru teknir upp sem skátar.
Vænti ég þess, að allir viðstaddir verði mér
hjálplegir til að gera þessa athöfn sem hátíð-
legasta og eftirminnilegasta. Ylfingar! Nú ætl-
um við að kveðja okkar gömlu bræður, og skát-
ar, við fögnum nýjum félögum, sem við vænt-
um mikils af. Fyrir hönd ylfingasveitarinnar
vil ég þakka þeim ylfingum, sem nú eru að 'fara
frá okkur, fyrir alla samvinnuna, og frá mér
sjálfum vil ég sérstaklega þakka ykkur fyrir,
hve vel þið hafið hjálpað mér í starfi sveitar-
innar, því eins og þið vitið, væri ekki hægt fyr-
ir mig einan að ná hópunum saman. Að end-
ingu vænti ég þess, að þið verðið jafn áhuga-
samir 1 skátastarfi ykkar, eins og þið hafið ver-
ið sem ylfingar, og að þið verðið ávailt viðbún-
ir, þegar á ykkur er kallað til hverskonar starfa,
sem ykkur bíða. Ég vil og minna ykkur á, að
eftir að þið hafið unnið skátaheitið, sem er
svona: „Ég lofa að gera það, sem í mínu valdi
stendur, til þess að gera skyldu mína við guð
og ættjörðina, — að hjálpa öðrum, — að halda
skátalögin“, þá takið þið á ykkur mikla ábyrgð,
sem hver og einn skáti á ávallt að halda. Minn
ist ávalit fyrstu greinar skátalaganna, sem er:
„Skáti segir ávallt satt og gengur aldrei á bak
crða sinna“.“
Að svo mæltu voru drengirnir teknir inn sem
skátar á venjulegan hátt.
Gamli úlfurinn.
Ég vil leyfa mér að birta nöfn drengjanna
hér á eftir:
Árni Waage, Geir Hallgrímsson, Gunnl. Karl
Eiríksscn, Guðni Hannesson, Guðjón Jónsson,
Guðm. Kristinsson, Haukur Bjarnason, Jóhann-
es Ingvi Viktorsson, Jón Zophoníasson, Jón
Magnússon, Jóhann Guðmundsson, Kristján E.
Gunnlaugsson, Karl Gunnlaugsson, Martin Pet-
ersen, Stefán Hilmarsson, Sigurður Óskarsson,
Sæmundur Stefánsson, Torfi Sveinsson, Þórar-
inn Sveinsson, Oddur Thorarensen.