Ylfingablaðið - 01.12.1937, Blaðsíða 16

Ylfingablaðið - 01.12.1937, Blaðsíða 16
16 YLFINGABLAÐIÐ honum til allra skáta í heiminum. Eftir ávarpið gáfum við skátaloforðið. Þennan dag var margt fólk í kirkju. sem með alhygli fylgdi því, sem fram fór. Og hafa margir sagt mér að þe'ir hafi orðið mjög hrifnir af þess- ari skátaguðsþjónustu og hafa óskað skátafélaginu til hamingju með þennan nýja ylfingahóp, æsku skátafélagsskaparins. Eftir messu fylgdu ylfingarnir og skátarnir prestinum he'im með íslenzka fánarm í þroddi fylkingar. Með skátakveðju. B. h. (Frétt frá Frank B. Mickelseu). EITRIÐ. (niðurlag) Er hann kom í boðið hjá Ha.nsen, settist hann í hægindastól úti í horni, því e’ins og hann vissi, var boðið mjög leiðinlegt. Hann fór strax að hugsa um nýja uppfyndingu og komst að þeirri niðurstöðu, að það væri gaman að búa til eitur. Hann lét heldur ekki sitja við orðin tóm, því að strax og hann kom heim, fór ha,nn að útbúa til- raunastofu niðri í kjallaranum, ásamt Pétri og 'Þorste'ni. Þeir söfnuðu allskonar flöskum og mixt- úrum og röðuðu þeim upp á stórar hillur og á hurðina settu þeir svohljóðandi miða: Háspenna! Lífshœtta! Hver sá, er kemur hér inn, fœr hrœfiilegan dauðdaga! Dr. X. Þarna sátu þeir löngum yfir stórum potti og heltu mjög íbyggnir úr ýmsum flöskum í pottiun. Eftir að hafa setið lengi þögulir, stendur Gunnar upp og segir v'ið Pétur, að nú verði hann að fara til kennarans og ná í hið eitraða kennarabJek. Hann lagði af stað og eftir langa mæðu keir.ur hann aftur. Ilann sagði, að ekki hefði þessi ferð verið skemtmileg, því að honum hefði veizt það svo erfitt að fá dálítið blek, því að kennarinn vildi ekki láta hann fá það, fyrr en eftir langa mæðu. „En hvar er blekiðf1 sagði Gunnar. „Það er hér,“ sagði Pétur um léið og hann tók það upp úr vasanum. „Þá er bezt að byrja,“ segir Gunnar. „Réttu mér H3T2,“ sagði hann íbygginn. Fyrst tók hann kennarablekið og helti 13 drop- um af hinum eitraða vökva í pottinn, síðan tóku þeir hann af og settu hann á gólfið um leið og Gunnar sagði: „Nú eru allar rottur dauðadæmdar.11 „Þá er að búa til iniðana,“ sagði Pétur og fóru þe:r upp á loft til þess. Þeir voru ekki ásáttir um, hvernig miðarnir ættu að vera. Pétur vildi hafa myndina af kenn- aranum hangandi á gálga, en Þorsteinn vildi hafa hsnn með nafni Gunnars fléttað 'inn í ýmiskonar krúsidúllur og rósaverk, en Gunnar vildi hafa það rottuhala með ýmiskonar útflúðri, og var hann ckki fyrr bú'nn að láta þessa uppástungu í Ijós, fyrr en liann fór að teikna, svo að hans uppá- scunga. varð ofan á. Er þeir komu niður í stígann í kjallaranum, sáu þeir allan vökvann í flóði á kjallaragólfinu. Þegar þeir komu niður, hrópaði Gunnar upp: „Upp með hendurnar!“ En sá, sem inni var, var löglega afsakaður, því að liann hafði engar hendur. Það var köttur, sem hijóp mjálmand'i úr einu horninu í annað. Eftir stutta stund höfðu þeir komið kettinum út. Af- leiðingarnar af mallinu sáu þeir daginn eftir, því að þeir fundu köttinn dauðann út í garðinum. Þeim þótti leiðinlegt að kötturinn skyldi hafa drepist af þeirra völdum, svo að þeir tóku hann og jörðuðu hann í garðinum. Gunnar var prestur, Pétur grafari og Þorsteinn grátþrungin líkfylgd. (Lauslega þýtt úr dönsku).

x

Ylfingablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Ylfingablaðið
https://timarit.is/publication/1697

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.