Ylfingablaðið - 01.12.1937, Page 19
YLFINGABLAÐIÐ
19
raun um, að þú ert ekk'i eins snjall eins og þú
háist. En mundu, að ekki er víst, að alltaf sé bjart,
er þú þarft að hnýta hnút. Það getur verið, að þú
liggir úti í tjaldi og stormurinn ætli að feykja þvi
um dimma nótt. Það er vont að missa hesí'inn sinn,
ef maður er í langferð, — gott aö geta bundið hann
vel, ef þú stansar á leiðinni. Stundum siglir þú á
sjónum eða vötnum. Þá þarftu að kunna að rifa
seglin. Það er æði oft, sem það kemur sér vel. að
kunna að hnýta trausta og góða hnúía á kaðla og
reipi, í myrkri og slæmu veðri, og þér mun þykja
vænt um að hafa lært það, áður en á þyrfti að
halda. Það er erfitt að lýsa því í bók, hvernig hnýta
skuli, ef þú hefir aldréi hnýtt hnút fyrr.
Stjörnurnar.
Níi er,t þú orðinn sárfætiingur, og nú getur þii
unnið fyrir tveimur stjörnum. til þess að bera á
peysunni þinni, til sannindamerkis um það, hve
duglegur ytfingur þii ert orðinn. En gleymdu ekki
ylfingaheitinu né ylfingalögunum. Varastu þann
misskilning, að halda, að þú getir hætt að hugsa
um þau, af því að þú haf r einhverntíma lært þau.
Þú verður ætíð að muiia þau, og ekki aöeins að
kunna þau utanbókar, heldur líka að rifja þau upp
lyrir þér daglega og reyna að breyta eft'ir þeim.
Má vera, að þér finnist erfitt það starf, sem þú
jiarft að leysa af liendi, til þess að fá stjörnurnar.
En það er sennilega ómaksins vert, því að þegar
þú hefir fengið þær, munt 11 f'inna, að þii ert orð-
inn færari í flestan sjó.
Nú ætla ég að segja þér, livað þú þarft að gera,
. ií þess að eignast fyrstu stjörnuna. Seinna verður
þér sagt, hvað þarf til þess að fá þá síðari.
Fyrsta stjarnan.
Til þess að sárfætlingur geti fengið fyrstu
stjörn verður hann að geta þetta :
1. Þekkja íslenzka fánann og meðferð hans. Enn-
fremur Norðurlandafánana.
2. Geta hnýtt flagghnút, rétian hnút (línuhnút),
hálíbragð (hestahnút), staurahnút og vita lil
hvers þeir eru notaðir.
3. Geta stokkið höfrungahlaup. Geta kastað bolta
15 m. með betri hendi og 7 m. með þéirri verri.
Geta liitt hring 65 cm. í þvermál, á 7 m. færi,
í þrjú skipti af tíu.
4. Ganga fallega 10 m. með 3 bækur á höfðinu
(gönguleikur). Stökkva yfir snúru 30 simum
og sveifla snúrunni sjálfur (sippa aftur á bak).
5. Vita hvers vegna og hvernig líkamanum er hald-
ið hreinum, tennur burstaðar, neglur hreinsað-
ar og skornar, og vita hvers vegna anda skal
gegnum nefið. Sýna viðleitni í að framfylgja
þessu.
6. Þekkja á klukkuna.
7. Þekkja umferðareglur gangandi og hjólandi
manna.
8. Hafa verið ylfingur í þrjá mánuði.
Fáni.
Allir menn í heiminum hafa fæðst af föður og
móður. Eins hefir hver maður fæðst í einhverju
landi. Það er failurland hans. Hann nefnir það
og fósturjörð, af því að það hefir fóstraö nann og
alið. Okkar land er Island, þess vegna erum við Is-
lendingar. Allir, sem búa á einu landi, nefnast þjóð.
Danska þjóðin eða Danir búa í Danmörku, norska
þjóðin í Noregi, Svíar í Svíþjóð o. s. frv. ÞjóSirnar
hafa tekið upp þann sið, að hver þeirra á sitt sér-
staka merki, sem nefnt er fáni eða flagg. Fáninn á
að tákna þjóðina eða landið. Þess vegna elskar liver
þjóð sinn fána og viröir hann mikils. Þess vegna
má aldrei nota gamla fána í þvögur eða til neins
slíks. Hvenær sem fáni er óhre'inn og rifinn, á að
hreinsa hann og' gera sem nýjan, eða brenna hann
ella, og fá sér nýjan. Að virða fánann er að virða
land sitt og þjóð og sjálfan sig.
Stundum hefir þjóðunum komið illa saman. Þær
hafa jafnvel barist. Hraustustu mennirnir eru her-
æfð r. Þeir raða sér í fylkingar undir fána sínum
og ganga á móti óvinunum. Hver hermaður horfir
á þjóöarfánann, sem ber hátt við loft frernst í fylk-
ingu. Þar eru beztu hermennirnir. Þeim er treyst
til þess að „láta aldrei fánann falla.“ Fyrir hann
hefir margur hraustur drengur gefið sinn síðasta
blóðdropa. Þegar hetja lætur líf sitt fyrir ættjörð-
ina, er líkið oft sveipað fánanum.
Okkar fáni er ungur, aðeins síðan 1918, en þjóð-
in, sem hann táknar, er meira en 1000 ára gömul.
Þess vegna minnir fáninn okkar á allt, sem unnið
hefir veriö fyrir land og þjóð, frá því er hún fædd-
ist inn í frelsið fyrir þúsund árum.