Bræðrabandið - 01.05.1953, Blaðsíða 5
V - "Bræðrabandið" 5'53
IIIIII n IIIIII1IIHIIIII l< II tl IIIMI It II HIIII
það að leggja öðrum braut, gerast gdðir félagar þcirra, er þeir ungengjust
og vlsa þeim rétta leið. Benti hana á Þá staðreynd að fjölmargir foreldrar
uggðu um velferð barna sinna, vegna óholls félagsskapar, og sýndi Það
þörfina á gððum félögum, sem visuðu öðrum veg raeð réttum áhrifum og eftir-
dæmi. Kvaðst hann vona að hver nemandi skólans hefði hoyrt köllun Guðs til
Þjónustu á liðnu skólaári, og skoraði hann á alla að bregðast ekki þeirri
köllun.
Hinn rdmgóði salur var þóttskipaður áheyrendum, og svo virtist sem
þesstim hvetjandi alvöruboðskap væri svarað af áheyrendunum, er þeir sungu
af samstilltum huga hinn hjartnæma sálmí "Þú Guð, sem stýrir stjarnaher
og stjórnar veröldinni, í straumi lífsins stýr Þú mór með sterkri hendi þinni.
Nú var aftur nokkurt hld, þar til kl.7, en Þá hófst samkoma, sem
brautskráningarnemendur stóðu að. Röfðu Þeir sjálfir undirbúið dagskrá
hennar og var hún hin fjölbreyttasta. Ræður, upplestrar og söngur var allt
vel undirbúið og vel flutt. Sérstakan svip setti söngurinn á samkomuna.
Söngflokkur skólans söng allmörg lög, en auk þess karlakvartett, einsöng
söng Jón Jónsson kennari, sem einnig annaðist söngstjórn, undirleik annaðist
Gerda Guðmundsson. Söngurinn allur þótti takast með ágætum.
I lok samkoraunnar útbýtti skólastjóri einkunniun fyrsta og annars
bekkjsr og afhenti brautskráningarnemendum skírtcini sín. Lauk þessari sam-
komu með þvl að Þjóðsöngurinn var sunginn.
Var nú orðið áliðið kvölds, og gestir tóku að búast til heimferðar.
En svo var að sjá sera enginn asi væri á neinum. Auðfundið var á öllum, að
dagurinn hafði verið þeim hinn ánægjulegasti. iWeðal gestanna var allmargt
utansafnaðarfólk. Lót það óspart I ljós ánægju sine. yfir þvl, sem Það hafði
sdð og heyrt.
Hægt og treglega tíndist fólkið í bilana. Nemendurnir söfnuðust
umhverfis Þá og sungu gestina úr hlaði. Kvöldið var kyrrt og blítt, loftið
hroint og hoilnærat eftir rognið, sem fallið hafði nóttina áður og fyrri
hluta dagsins,- Allir voru í góðu sknpi. Þegar gestir voru farnir, notuðu
ncmendur skólans og starfsfólk það sem eftir var kvöldsins til söngs og
leikja í samkomusalnum.
Hvildardagurinn 2. maí er merkidagur í sögu slcólans, sem nú hefur
lokið 3» starfsári sinu og brautskráír nú nemendur I fyrsta sinn - þeir eru
tólf. Kjörorðið, sem þeir kusu sér er*. Aframl Hærrai ÞÐir eru nú að kveðja
skólann, sem verið hefur annað heirnili þeirra slðustu Þrjú árin. Ný og
óþekkt leið blasir við þeim. ifetti þeim takast að lifa og starfa samkvæmt
kjörorði slnu ------
M Y N D I R frá skólaslitunum á hllðardalsskóla cru til sýnis I skrifstof-
unni, Ingólfsstræti 19. Verðið er 15 kr. "capinet"-stærð upplímd, 12 kr.
óupplímd, 6 kr. póstkortstærð.
T slðasta blaði var birt auglýsing um að ungmennamót mundi verða haft I
Vestmannaeyjum I sumar. En að rækilega athuguðu máli er nú ljóst að þetta
verður ekki hægt a.m.k. ekki að þessu sinni. Er þess vegna alger óvissa um
Það enn Þá hvar eða hvenær mót verður haldið.
ti ti ii ii ii ii n tt ii ii ii ii n it it n n it it || ii it || ,| || ,| ,t
Ritstj Júlíus Guðmundsson