Bræðrabandið - 01.02.1963, Blaðsíða 2

Bræðrabandið - 01.02.1963, Blaðsíða 2
Bls 2 - Bræði-’aband.ið Erá hendi Guðs er vissulega ekkert til fyrirstöðu þvx að nýja árið verði okkur gott og blessunarríkt. En gæði bess munu verða í hlutfalli við það hve fús við erum til að velja vegi Drottins og vinna verk hans. Náð hans og blessun sé meö ylckur öllum. Þökk fyrir sam- starf og fyrirbæn á liðnu ári. Biðjum hvert fyrir öðru, og styrkjum hvert annað í öllu góðu. Ykkar einlægur bróðir Júlxus Guðmundsson HVERH5 fiTHR H A Ð VIRJA íhihu 1963 ? Við lifum á öld flýtis og hraða. Tveir menn, annar Bandaríkjamaður, hinn Japani - voru á ferð í strætisvagni í borg á Vesturströnd Bandaríkjanna. Eitt sinn er vagninn staö- næmdist fóru þeir úr honum og í annan vagn, sem var troðfullur. Þá spurði Japaninn:"Hvers vegna þurfum við að skipta um vagn? Hinn var mikið þægilegri og ekki svona yfirfullur." "Jú, sjáöu til," svaraði Bandaríkjamaðurinn. "við spörum tvær mínútur á þennan hátt." "Jæja," svaraði Japaninn, "en til hvers eigum við að nota þessar tvær mínútur?" Til hvers eigum við að nota þessar tvær mínútur? Til hvers eigum viö að nota allan tímann, sem við höfum sparað með því að flýta okkur og meö stöðugum uppfinningum, sem spara okkur tíma? Þegar ég var drengur, stóð mamma bogin yfir þvottabalanum og notaði bretti til að þvo fötin okkar allra, Vatnið hitaði hún á vél, sem kynt var með kolum og spýtum og var alls ekki fljót- virk. Eini ísskápurinn hennar var lækurinn uppi í hlíðinni. Þá gekk pabbi allan daginn á eftir uxunum og plógnum. Hann sáði í akrana með höndunum og sló með orfi og Ijá. Við börnin notuðum eftirmiðdagana, þegar við vorum búin £ skólanum, til að reyta arfa, tína ber og epli eða taka upp kartöflur, eða safna eldivið. Þá var alltaf nógur tími, ekki einungis til vinnu, heldur margra annarra hluta. Nógur tími til að fara í kirkju og til að heimsækja vlni og kunningja - nógur tími til að vera góður nágranni. En nú, jafnvel þótt við séum alltaf að spara tímann, þurfum við alltaf að flýta okkur. Við höfum aldrei tíma til að gera allt, sem okkur langar til - elcki einu sinni til að gera það, sem við þurfum í rauninni endilega að gera. Árið 1962 er nú liðið og 1963 er byrjað. Hvernig notuðum viö liðna árið? Nutum við þess til fulls? Eða flýttumvið okkur gegnum það? Tókum við tíma til hinna allra nauðsynlegustu hluta - þeirra, sem hafa eilífðar gildi? Eða notuðum við tíinann að mestu leyti í áhyggjur fyrir lífinu? Hvað eigum við að gera á árinu 1963. Við skulum nota tímann til þess sem mikilvægast er. Við skulum nota meiri tíma til b ænar.

x

Bræðrabandið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bræðrabandið
https://timarit.is/publication/698

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.