Bræðrabandið - 01.02.1963, Blaðsíða 5

Bræðrabandið - 01.02.1963, Blaðsíða 5
BIsa 5 Bræðrabaiidið x <* • eða fara í haustsöfnun, eða fara á bænasamlcomu? Það er auðvelt að afsaka sig. En munu þessar afsakanir standast fyrir clómi Guðs? Ellen Go White segir þessi alvarlegu orð:,,Ef hvert augna~ blik væri metið og notað á réttan hátt, ættum við aö hafa tíma til alls, sem við þurfum að gera fyrir okkur sjálf eða heiminn." Það er örugglega tími til að vinna fyrir Guð, ef við notum tíma okkar hyggilega og veljum að vinna fyrir hann. Og svo mun þess veröa krafist að við gerum reikningsskil tíma okkar við Guð. A nýja árinu veröum við að eyða meiri tíma í tilbeiðslu, Hvíldardagurinn er hámark vikunnar - þá ber okkur að ganga 1 hús Drottins. Það var í húsi Drottins að Jesn.ja sá Drottinn (Jes,6:l) og heyrði raust hans (8.v.) Sálmaskáldið sagði:"Komið í forgarða hans" (Sálm.96:8) "Komið, föllum fram og krjúpum niður." (Sálm.95:6) Við freistumst stundum til að fara elcki í kirkju vegna gesta, slæms veðurs, þreytu, vegna þess aö við kjósum að sofa lengi, við höfum orðið ósátt við einhvern, eða hundrað aðrar ástæður geta komið til. Slíkar freistingar ber að yfirvinna. Ekkert má raska stefnumóti okkar við Guð í húsi hans. 1 Nýja Testamentinu lesum við:"Er þeir nú voru á ferð, kom hann inn í þorp nolckurt. En kona ein að nafni Marta tók á móti honum i hús sitt. Og hún ótti systur, er hét María; hún settist við fætur Drottins og hlýddi á orð hans. En Marta var önnum kafin við mikla þjónustu. Og hún geklc til hans og mælti: Herra, hirðir þú ekki um það, að systir mín lætur mig eina ganga um beina? Seg þú henni að hjálpa mér." Lúk,10.38-4o. Marta átti of annríkt, en María tók tíma til að sitja við fætur Jesú. Við verðum líka að taka tima. Aðventistar ættu ekki að sogast inn í hringiðu þess hraða, sem auðkennir barn þessarar aldar. Við megurn ekki leyfa annríki oð útrýma andlegum iðkunum. Minnumst þess að Guð gaf okkur timann og að hann fylgist með því, hvernig við notum hann. Ef við notum hann rétt, mun hann gefa oklcur eilífðina. Hvernig ætlar þú að verja árinu 1963? Við erum öll á leið til hins mikla dóms. Og þar sem við verðum öll að standa frammi fyrir hinum mikla Guði, skulum við ákveða að taka tima til að helgast nú. Review - +++ ++ +++++++ ++ +++ "Hið minnsta frávik frá hinu rétta og lögmálsbundna leiðir til aðgreiningar frá Guði og getur endað i fullkomnu fráhvarfi. Það, sem við gerum einu sinni er okkur eiginlegra að gero aftur. Að halda éfram á einhverri leið, hvort sem hún er rétt eða röng er auðveldara en að taka upp nýja stefhu. Það tekur olckur minni tíma og minni fyrirhöfn oö spilla viðhorfi okkar til Guðs en að gróðursetja í huga olckar venjur réttlætis og sannleika. Maðurinn á erfitt með að hætta því, sem hann hefur vanið sig á, hvort sem áhrif þess eru góð eða ill." 4.Test,bls. 578 (E.G.W.)

x

Bræðrabandið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bræðrabandið
https://timarit.is/publication/698

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.