Bræðrabandið - 01.11.1970, Qupperneq 7
Bls. 7 - BRÆÐRABANDIE - 11. tbl. 1970.
Ber þar fyrst aö nefna franhaldsdeildir. Okkur svíður sáran að sjá
afbragðs unglinga bæði innan og utan safnaðarins, er svo feginsanlega og
okkur tilfagnaðar inyndu hafa komið, og reyndar biðu þess, að framhalds-
deildir tækju til starfa hér á þessu hausti. Iferkvisst er unnið að því, að
þetta komist i framkvæmd á hausti komanda, Bygging lcennarabástaðar helzt í
hendur við siðastnefndan þátt, því tilfinnanlega vantar hýbýli fyrir
starfsfélkið. Umhverfi skðlans hrðpar stöðugt á endanlegan frágang og talar
máli sínu svo sterklega, að ég þarf ekki að leiða fleiri orð að þvi. Loks
er það svo sundlaugin, ... ðlýsanleg nauðsyn fyrir starfrækslu skðlans
jafnt vetur sem sumar.
Má ég að lokum minna ykkur á hann Ö K 0 L H I, sem alltaf gýs og
aldrei frýs. Látum okkur ekki gleyma að þakka, ... ekki einungis fyrir
hann, heldur og allt hitt, sem ég hef letrað, það, sem við höfum þegar
hlotið, og þaö, sem Guð er enn að veita.
Hafið öll hinar dýrustu þakkir skðlans og hljðtið ríkustu blessanir
Guðs fyrir örlæti ykkar.
Jðn Hj. Jðnsson, skðlastjðri.
Þýðingarmestu árin í lífi barnsins hafa oft verið vanrækt af leið-
togum og kennurum hvíldardagsskðlanna. Ef nokkurn tíma var nauðsyn á, að
bæta ár þvl ástandi, þá er það nána - 1 dag - ekki á morgun, eða síðar.
Við erum að nálgast endi mannskynssögunnar. Það er næstum því komið að því,
að Jesús, sá er elskar börnin, komi aftur til þessarar jarðar. Það er því
nauðsynlegt, að það, sem við ætlum að gera fyrir börnin okkar, verði gert ná
þegar.
"Látum kristna foreldra skilja það, að þau hafa þegar gert meira en
helminginn af þvi, sem þau munu nokkurn tíma geta gert fjrrir lyndiseinkunn
barnsins, þegar það er þriggja ára gamalt," segir Charles T. Bushnell, sem
er kristilegur rithöfundur og doktor 1 félagsmálum.
Barn, sem er þriggja ára gamalt, tilheyrir smábarnadeild hvíþdardags-
skðlans. Hvernig er þeirri andlegu fræðslu varið, sem því er veitt? rkELnnizt
þess, hvað andlega uppfræðslu snertir, að þegar barnið hefur náð þriggja ára
aldri, hefur hvíldardagsskðlinn þegar gert meira en helminginn af því, sem
í hans valdi stendur fyrir það. Hversu þýðingarmikiö hlutverk þeirra er,
sem stjðrna eða kenna í smábarnadeildunum, og hvílík ábyrgðj
Hvað ætlum við, sem störfum fyrir hvildardagsskðlana, að gera fyrir
börnin á þessum þýðingarmestu árum þeirra? Þetta er sá spuming, sem við
stöndum andspænis. Pyrst og fremst ætti söfnuðurinn að sjá til þess, að
láta í té þá beztu leiðtoga og kennara, sem völ er á, en ekki aöeins hæfa
leiðtoga og kennara, heldur þá, sem um fram allt vilja helga sig slíku starfi.
Áhrif kennarans hafa stðrkostlega þýðingu. Hvað börnin eru fljðt að
taka eftir því, sem við gerum eða segjum, eöa jafnvel því, hverju við klæðumst.