Fréttablaðið - 30.09.2022, Blaðsíða 28

Fréttablaðið - 30.09.2022, Blaðsíða 28
Leikstjórum opnunarmyndar Alþjóðlegrar kvikmynda­ hátíðar í Reykjavík leiðist fullkomnunin og nálgast þau sannleikann með 16 milli­ metra filmu að vopni. Við­ fangsefnið er fegurðin, öllu heldur fegurð ítölsku leik­ konunnar Veru Gemma. ninarichter@frettabladid.is Vera Gemma er aðalleikkona og viðfangsefni opnunarmyndar RIFF í ár, verðlaunamyndar sem ber titilinn Vera. Handrit og leikstjórn er í höndum hinnar ítölsku Tizzu Covi, og meðleikstjóri hennar er austurríski tökumaðurinn Rainer Frimmel. Vera fylgir eftir skáldaðri eftirlíkingu af persónu ítölsku leik­ konunnar Veru, sem er dóttir ítalska leikarans Giuliano Gemma. Leikstjórarnir og Vera sitja saman í fallegu herbergi á Exeter hótelinu. Þau skera sig frá öðrum ferðamönn­ um hótelsins sem eru oftar en ekki kappklæddir í skærlitan útivistar­ fatnað með bakpoka. Þríeykið lenti á landinu kvöldið fyrir viðtalið og lætur vel af heimsókn í Sky Lagoon á Kársnesinu. Þotuliðsbragur að morgni Klukkan er ekki orðin tíu að morgni en Vera er glæsileg með sítt, ljóst hár, kúrekahatt á höfðinu í hvítum pels. Tizza er rauðhærð með rauðan varalit, klædd svartri kasmírpeysu í íslenska veðrinu. Ítalskur klassi alla leið. Hinn austurríski Rainer er í svörtum jakkafötum. Það er þotu­ liðsbragur yfir þeim og þetta er fólk sem kann að klæða sig. „Yf irleitt þegar v ið Rainer vinnum saman skrifum við hand­ ritið fyrir leikarann. Í gegnum ævina hefur maður hitt fjöldann allan af áhugaverðu fólki. Af þeim kannski einn eða tvo sem eru brjál­ æðislega áhugaverðir,“ segir Tizza um aðdraganda verksins. Hún segir þau Rainer hafa heillast af því hvernig Vera sneri fordómum þeirra á hvolf. „Við dæmdum hana við fyrstu kynni og út frá útlitinu. En að kynnast henni opnaði nýjan heim. Ég hitti hana oft í Róm og tók fjölda viðtala. Mér fannst hún svo heillandi karakter. Tveimur árum síðar ákvað ég að skrifa handrit,“ segir Tizza. Myndin er skáldskapur Það er skrýtið að sjá Tizzu sitja við hlið Veru og tala umbúðalaust um fordómana með þessum hætti, og fjalla um Veru í þriðju persónu. Eins og hún sé ekki raunveruleg mann­ eskja heldur frekar einhver – vera. „Ég tók mikið úr þessum viðtölum, hvernig ég upplifði hana, þegar ég skapaði þessa persónu sem er auð­ vitað orðin skálduð persóna núna. Þetta er ekki heimildarmynd, þetta er skáldskapur. En á sama tíma er mjög mikið af Veru þarna.“ Vera segir Tizzu hafa spurt sig fjölda spurninga. „Ég velti fyrir mér hvers vegna hún vildi vita svona margt um mig, en ég vissi af þessari pælingu varðandi kvikmynd. Ég reyndi að vera eins sönn og ég gat í svörunum. Vildi ekki þykjast vera betri eða öðruvísi,“ segir Vera. Hún talar með þykkum ítölskum hreim og þegar hún talar hlustar fólk. Á Instagram­síðu Veru Gemma eru myndir af henni með ekki ófrægara fólki en stórleikkonunni Kate Blanc­ hett, Coolio og Quentin Tarantino á bransaviðburðum innan um upp­ stilltar tímaritaljósmyndir. Ranghugmyndir um greind „Þetta er martröð ævi minnar,“ svar­ ar Vera, þegar undirrituð spyr hana út í fordómana. „Fólk segir stöðugt við mig: Þegar við hittumst hélt ég að þú værir svona en þú ert síðan allt öðruvísi. Og þá hugsa ég: Hvernig svona, og hvernig er ég öðruvísi? Hélstu að ég væri slæm manneskja?“ Vera segir að ríkjandi ranghug­ mynd sé í ítölsku samfélagi, á þá leið að kvenlegar konur geti ekki verið gáfaðar. Að gáfaðar mann­ eskjur máli sig alltaf í ljósi sorgar og alvarleika. „Ef þú ert ljóshærð þá ertu yfirborðskennd. Það segir: Hún er dóttir svona svakalega frægs leikara, þá hlýtur hún að hafa fengið allt upp í hendurnar og átt ofsalega auðvelt líf. Hún hefur enga hæfileika,“ segir Vera. „Þetta er búið að vera ógeðslega erfitt. Ég hef alltaf barist gegn þessari hug­ mynd en ég hef ekki fengið mörg tækifæri fram að þessu til að sýna mitt sanna sjálf.“ Vera segir leiklistina alltaf hafa heillað. „Ég hef þráð að vera leik­ kona síðan ég fæddist. Ég sá pabba minn í sinni vinnu og fann strax að þetta var það sem ég vildi gera,“ segir hún. „Ég vildi finna mína eigin leið til að sinna leiklistinni. Ég fann strax að ég var öðruvísi og ég hóf strax að leika í leikhúsi. Við­ tökurnar voru góðar en ég var samt alltaf á jaðrinum. Að leika fyrir 100 manns. Ég fékk frábæra gagnrýni en mér tókst illa að ná til fjöldans,“ útskýrir hún. „En þetta er áminning um að fylgja draumunum sínum.“ Vera er draumaverkefni Vera lýsir kvikmyndinni Veru sem draumaverkefni. „Þar sem hið góða og illa er skoðað, og fegurðarhug­ takið. Ég ólst upp við tegund af kvikmyndagerð þar sem hið góða og hið illa skiptust í tvær mjög afgerandi fylkingar. Faðir minn var alltaf þessi góði. Ég fór að skilja það að enginn er góður og enginn er alslæmur í þessu lífi. Og það er efni myndarinnar. Enginn er góður eða illur. Þetta er banalt. En sannleikur­ inn liggur oft í því sem er banalt.“ Hvað varðar stöðuna í dag segir Rainer að hugsanlega sé staðan að breytast með nýrri kynslóð kvik­ myndagerðarfólks. „Kvenpersónur eru unnar á meira dýpi. Ég held að unga kynslóðin breyti þessu. Vera hlær við. „Þetta var alltaf vandamál í mínu lífi að ég var aldr­ ei nógu falleg til að vera aðalleik­ konan og ekki nógu ljót til að leika illmennið,“ segir hún. „Ég var þarna í miðjunni og í ítalskri kvikmynda­ gerð eru engar persónur skrifaðar inn á það svæði.“ Ítalski neó-realisminn En er mynd um þessi málefni, feg- urðina og stöðu kvenna, sprengja inn í umræðuna á Ítalíu eða er hún framhald af eldra samtali? „Við erum undir sterkum áhrifum frá ítölskum neó­realisma,“ segir Tizza. „Við sjáum kvikmyndagerð ekki sem gróðatækifæri heldur sem listform. Það skiptir mestu máli að segja söguna.“ Hún segir að framleiðslan hafi verið afskaplega smá. „Þetta var bara ég og Rainer, sem sér um kvik­ myndatökuna, við erum svo með aðstoðarmann. Allt settið er bara þrjár manneskjur.“ Tizza segir að í smæðinni felist listrænt frelsi og aðstaða til að gera stórar breytingar með engum fyrirvara. Varðandi mikilvægi þess að myndin sjálf sé falleg, þegar hún fjallar um fegurð, svarar Rainer að fegurðin sé afstæð. „Allir hafa mis­ munandi skoðanir á fegurð. Okkar hugmynd um fegurðina er rosalega hrá. Fegurðin er ekki tilbúningur heldur hluti af veruleikanum. En fegurðin er svo afstæð að það er ekkert raunverulegt svar við þessu,“ svarar hann. Tizza grípur orðið. „En það er nú samt svar við þessu! Það var listræn ákvörðun hjá okkur að skjóta á 16 millimetra filmu og þetta finnst okkur gefa efninu sanna áferð. Við erum miklir aðdáendur filmunnar, áferðarinnar sem er tímalaus og ófullkomin. Við erum ekki að leita að fullkomnun, ekki í myndinni og ekki í aðalpersónunni. Ekkert er leiðinlegra í þessu lífi en fullkomn­ unin.“ n Ekkert í lífinu er leiðinlegra en fullkomnunin Tizza Covi, Vera Gemma og Rainer Frimmel fylgja kvikmyndinni Veru, sem er opnunarmynd Alþjóðlegrar kvikmyndahá- tíðar í Reykjavík sem sett var við hátíðlega at- höfn í Háskóla- bíó í gærkvöldi. FRÉTTABLAÐIÐ/ VALLI KVIKMYND Boiling Point (2021) Bíó Paradís Leikstjóri: Philip Barantini Nína Richter Annað slagið heyrist því f leygt að allar manneskjur þurfi að gegna þjónustustarfi á einhverjum tíma­ punkti ævi sinnar. Þannig öðlist fólk skilning á f leiri lögum sam­ félagsins og verði á endanum betri manneskjur. Það kann vel að vera að slík kaffistofuspeki sé sönn á Íslandi, en hún er vafalítið enn sannari í lagskiptu samfélagi eins og Liverpool, sem er sögusvið spennumyndarinnar Boiling Point. Boiling Point gerist á f lottum veitingastað og er öll unnin í einni töku. Það er merkilegt tæknilegt afrek út af fyrir sig, en verður marg­ falt merkilegra þegar áhorfandi áttar sig á því að hvergi er afsláttur gefinn á leiktilþrifum, handriti eða erindi. Aðalpersónan er yfirkokkur á vinsælum veitingastað á föstudegi fyrir jól. Hann er að ganga í gegn­ um skilnað, staddur í miðju áfall­ inu, nýbúinn að fá íbúð af henta og er að reyna að koma lífi sínu í jafnvægi á meðan hann heldur öllu gangandi sem verkefnastjóri og ábyrgðarmaður yfir fjölskrúðugu teymi. Veitingastaður er frábært sögu­ svið. Goggunarröðin og hlutverkin eru til staðar og inn í þetta skapa­ lón stíga sannfærandi persónur. Þær eru kynntar vel til sögunnar og vel unnið með bakgrunn og ásetning hvers og eins. Framvindan er þétt og grípandi. Á fimmtándu mínútu var undirrituð búin að draga hnén upp að höku af stressi fyrir hönd allra sem birtust á skjánum. Óbærilegi keppinauturinn er eft­ irminnilegur hápunktur, stjörnu­ kokkurinn sem minnir á Hábein heppna í slag við aðalpersónuna Andrés önd. Þarna er þverskurður af samfélaginu samankominn inni á tvöhundruð fermetrum: Borðið með amerísku skvísunum, áhrifa­ valdaborðið, rasistarnir og ást­ fangna parið. Eftir áhorfið verður maður svo­ lítið uppgefinn, eins og maður hafi verið á heilli vakt sem soðin var niður í tvær klukkustundir. Sagan situr í manni. Þeir sem hafa unnið á veitingastað munu tengja afskap­ lega vel við efnið enda er hér með af brigðum raunsönn endurspeglun á slíku samfélagi. n NIÐURSTAÐA: Það er sjaldan sem viðlíka tækifæri gefst til að reka á eftir fólki á kvikmyndasýningu, en hér er skylduáhorf fyrir alla unnendur góðra kvikmynda. Svo skemmir maturinn ekki fyrir, þið munið verða svöng, ógeðslega svöng. Ég mæli með að bóka borð á uppáhaldsveitingastaðnum beint eftir bíó. Meistaraverk um mat og streitustig Þetta er búið að vera ógeðslega erfitt. Ég hef alltaf barist gegn þess- ari hugmynd en ég hef ekki fengið mörg tækifæri fram að þessu til að sýna mitt sanna sjálf. Vera Gemma Aðalpersónan er yfirkokkur á vin- sælum veitingastað rétt fyrir jól. 20 Lífið 30. september 2022 FÖSTUDAGURFRÉTTABLAÐIÐLÍFIÐ FRÉTTABLAÐIÐ 30. september 2022 FÖSTUDAGUR

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.