Viljinn - 01.11.1937, Blaðsíða 2

Viljinn - 01.11.1937, Blaðsíða 2
- 2 - "V I L J I N N" Það gleður mig ávallt þegar eg sé að hinir ungu hafa með höndum ráðagerðir, sem geta leitt til blessunar fyrir aðra. Og nú þegar ungmennafélagið í Reylcjavík ræðst í svo stórt verkefni að gefa út blað, þá vona eg og trúi því, að það sé og verði málgagn alls félagsins vilja, og að hann mætti alltaf vera í samrærai við Guðs vilja. Það eru fáir menn í heiminum, sem í rauninni skilja hugtakið "vilji". Margir álíta, að • þegar maður er viss um að maður hefur rétt fyrir sér, þá é maður aldrei að láta undan, þá á maður að sýna vilja sinn. Lðrir álíta að það komi ekki öðrum við hvað maður sjálfur vill. Arilji maður skemmta sér að heimsins hætti, þá gerir maður það sem mað- ur sjélfur vill. Hvers vegna skyldi nú Guð hafa gefið okkur frjálsan vilja, viljann til að velja eða hafna? Af þeirri einföldu ástæðu, að hann vill að við séum hamingjusamar manneskjur. Hin mesta hamingja er í því fólgin að nota vilja sinn og nota hann rétt. Það stuðlar ekki að hamingju að berja vilja sinn í gegn, ef hann á einnhvern hátt getur gert öðrum tjón. Það skapar ekki sanna hamingju að vilja það sem eðli synd- arinnar stefnir til, afleiðingar þess konar vilja geta oft orðið hræðilegar- Það gerir heldur engan hamingjusaman að einbeita vilja sinum þvert á móti skoðunum annara um sama hlutinn, það kalla menn þrjózku, og það meö réttu. Það er þrennt sem hinn rétti vilji á að byggjast á og sýna sig í: FYRSTA: Að Guð og hans nafn heiðrist með honum. Annað: Að aðrir njóti góðs af honum. Þriðja: Að maðurinn sjálfur göfgist. Þegar þú gefur loforð öðrum til gagns, þó láttu vilja þinn vera svo afgerandi, að þú haldir loforð þitt, jafnvel þó þú sjálfur hafir ekki hagnað af því- Þegar þú segir "NEI" við einhverja freistingu, sem mun leiða þig afvega, þá beittu vilja þínum þannig, að þitt NEI þýði NEI og ekkert annað. Það mun ef til vill hafa þann árangur að frelsa sjálfan þig og aðra. Tilji okkar má ekki stjórnast af reiði- girni eða löngun til að þrátta. Eitt af því besta, sem Guð hefur gefið okkur er viljinn. Látum viljan stjjórnast af brosi fremur en reiðilegu andliti. Láttu vilja þinn nota

x

Viljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Viljinn
https://timarit.is/publication/1700

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.