Austurglugginn - 22.08.2014, Qupperneq 5
„Það hefur gengið vel hjá okkur á Vopnafirði og
að hætti sannra íþróttamanna er oft gott að hætta
leik þá hæst hann stendur og hefja leik á nýjum
vettvangi,“ segir Þorsteinn. Hann er uppalinn á
Sauðárkróki en faðir hans var þar héraðsdýralæknir
í þrjátíu ár. Hann lærði viðskiptafræði í Háskóla
Íslands, starfaði síðan fyrir fjárlaganefnd Alþingis
og Fjárlaga- og hagsýslustofnun og var bæjarritari
í Hafnarfirði í tólf ár áður en hann flutti sig austur.
„Mér hefur þótt ákaflega gott að búa á Vopnafirði
þótt ég hafi komið frá Hafnarfirði. Ég var í grunn-
skóla á Sauðárkróki sem var nettur staður. Þar vissu
allir allt um alla eins og gerist í litlum samfélögum
og kjaftasögurnar eru snöggar að ganga. Þar lærði
ég að láta þær hafa engin áhrif á mann. Ef maður
er sjálfur sáttur við það sem maður gerir þá er allt
í lagi. Ég hef alltaf verið dálítill sveitamaður í mér
og ég er viss um að það eru ekki margir sem hafa
komið á flesta bæi í Skagafirði en það gerði ég,
annað hvort með föður mínum eða Landssíma-
num þar sem ég vann við að þjónusta loftlínur. Ég
hef alltaf haft gaman af sveitinni og verið mikill
dýrakarl. Hesta hef ég átt frá því ég var átta ára
og sveitin heillar mig. Mér finnst ekki vandamál
að vera þar sem er svolítið sveitaumhverfi og það
hefur hjálpað mér hér. Mér líður vel í fögru um-
hverfi þar sem ég get labbað um í þýfinu og hlustað
á náttúruna og dýrin.“
Síðasti vinnudagur Þorsteins var á fimmtudaginn í
síðustu viku. Seinni part dags hélt hann í vesturátt
með allt sitt hafurtask en hann hefur verið ráðinn
bæjarstjóri í Grundarfirði. „Maður er svo sem með
fína starfsorku og vill ekki hætta störfum þannig
ég fór að líta í kringum mig. Niðurstaðan varð sú
að ég fékk starf á Grundarfirði.“
Nýr meirihluti K-lista félagshyggju og Betra Sig-
túns var myndaður eftir sveitarstjórnarkosningarnar
á Vopnafirði í vor. Sigtúnslistinn gaf það meðal
annars út að hann vildi auglýsa starf sveitarstjórans.
„Ég varð var við að þau framboð sem voru hér ný
vildu auglýsa starf sveitarstjóra og ég fer alls ekki
að sækja um starf sem ég er í en það hentaði mér
heldur ekki illa að söðla um.“ Fleiri ástæður lágu að
baki ákvörðun Þorsteins. „Ég tók ákvörðunina vel
fyrir kosningar. Í fyrsta lagi er maður á tímamótum
í aldri þar sem ég varð sextugur í byrjun árs. Ég er
búinn að vera í 16 ár á Vopnafirði og þau ár hafa
að mínu viti verið mjög farsæl. Þegar maður hefur
verið lengi á sama stað er gott að stíga einhver skref
og prófa nýja hluti. Það er líka gott fyrir Vopnafjörð
að ég verði ekki lengur heldur komi nýir vendir að
verkum. Hér fyrir austan er ég líka langt frá ætt-
ingjum og ég fer nær þeim með því að flytja vestur.“
Ætlaði að vera í eitt kjörtímabil
Margt hefur breyst á þeim árum sem Þorsteinn
hefur starfað á Vopnafirði. Hann rifjar upp að þegar
hann kom til starfa voru skuldir sveitarfélagsins vel
yfir því 150% marki af heildartekjum sem sveitar-
félögum eru nú sett mörk um í sveitarstjórnar-
lögum. Greiningar hafa sýnt að sveitarfélagið er í
sterkri stöðu þar sem skuldirnar eru núna um 80%
af tekjum og veltufé frá rekstri með því hæsta sem
gerist hjá sveitarfélögum í hlutfalli við heildartekjur,
eða liðlega 20%.
„Ég kom hérna árið 1998 eftir að hafa verið bæj-
arritari og fjármálastjóri og þar með staðgengill
bæjarstjóra í Hafnarfirði í tólf ár. Ég hafði þess
vegna töluvert mikla reynslu af bæjarpólitík og
vinnu við fjármál sveitarfélaga og hafði hug á að
nýta þá kunnáttu. Ég sótti um á fleiri stöðum og
stóð líka til boða staðan í Búðardal en valið var að
koma hingað. Ég ætlaði að vera hér í eins og eitt
kjörtímabil en tíminn varð heldur lengri. Mér lík-
aði vel við Vopnfirðinga almennt og við vorum að
vinna að skemmtilegum verkefnum, byggja skóla,
leikskóla, hafnarmannvirki og margvísleg önnur
verkefni, sem breytt hafa miklu til batnaðar fyrir
samfélagið. Verkefnin hafa verið skemmtileg en
líka erfið, eins og fjármálin sem hafa tekið á. Núna
erum við þó í þeirri stöðu að við erum fjárhagslega
sterkt sveitarfélag miðað við stærð. Veltuféð er gott,
en það eru þeir fjármunir sem pólitíkin hefur úr að
spila til að hrinda stefnumálum sínum í framkvæmd,
fjármagna framkvæmdir og greiða afborganir lána.
Við höfum lækkað skuldirnar mikið þannig að þeir
peningar sem áður fóru í fjármagnskostnað nýtast
nú í að byggja upp það sem tímabundið þurfti að
drabba sökum mikils fjármagnskostnaðar og hárra
afborgana lána. Inn í framtíðina sjáum við fyrir
okkur að sveitarfélagið verði traustara og traust-
ara og hafi rýmra fjármagn til þess að gera ýmsa
góða hluti fyrir íbúa, fyrirtæki og félagasamtök í
sveitarfélaginu.
Lærdómsríkt að lenda í hremmingum
Erfiðasta málið er líka það sem Þorsteinn er hvað
stoltastur af. Vopnafjarðarhöfn er í dag í hópi fimm
stærstu hafna landsins miðað við landaðan afla. Fyrir
rúmum áratug voru hins vegar miklar hræringar í
gegnum Tanga, útgerðarfélag Vopnfirðinga. Árið
2002 eignaðist Eskja tæplega helmingshlut í félaginu
en heimamenn, með fulltingi hreppsins, keyptu hlut
Þorsteinn Steinsson
„Ljóst að ef einhver
mætti í Hawaii-skyrtu
á sviðið þá var verið að
leika sveitarstjórann“
Þorsteinn Steinsson hafði einu sinni komið á Vopnafjörð, og þá sem ferðamaður, áður en hann réði sig þangað sem
sveitarstjóra. Í síðustu viku lét hann af störfum eftir sextán ára starf. Austurglugginn leit við hjá Þorsteini og ræddi
við hann um skiptin, starfið á Vopnafirði, sambýlið við Vopnfirðinga og Hawaii-skyrtusafnið.
AUSTUR · GLUGGINN Föstudagur 22. ágúst 5
„Ég er sannfærður um að markaðsvirði fasteigna hér myndi rjúka upp þann dag sem byrjað yrði á jarðgöngum.“