Austurglugginn


Austurglugginn - 22.08.2014, Page 7

Austurglugginn - 22.08.2014, Page 7
félög, sem á mismunandi vegu hafa notið góðs af álverinu, stæðu með okkur í þessari uppbygg- ingu en færu ekki að vinna á móti okkur. Ég tel það óeðlilegt að hafnarmannvirki sem byggð eru fyrir ríkisfé, líkt og á Reyðarfirði, séu notuð til að dömpa verðum og bjóða hluti niður í beinni sam- keppni við sveitarfélögin hér norðan Smjörvatns- heiða, sem þó eru að tala um að byggja upp með fjárfestum sem kosti verkin sjálfir. Ég held að það sé hæpið að menn megi niðurgreiða þjónustu með einhverju sem er ríkisstyrkt.“ Samstarf fremur en sameiningar Þorsteinn tekur þó fram að sveitarfélögin eigi „á marga lund gott samstarf.“ Hann styður samstarf sveitarfélaga og þótt hann sé ekki endilega fylgjandi sameiningum. „Menn geta unnið meira saman án þess að sameina,“ segir hann og nefnir samninga Vopnfirðinga við félagsþjónustu Fljótsdalshéraðs og samstarf í brunavörnum á Austurlandi. „Ég held að menn eigi að auka samvinnuna svona og ef vel tekst til þá verði auðveldara að sameina í kjölfarið.“ Á Vopnafirði hafa verið ræddar hugmyndir um sam- einingar bæði til austurs og í norður en þær verið felldar til þessa. „Vandamálið er að flestir líta full- mikið ofan í eigin nafla og sjá ekki mikið út fyrir hann. Ef menn tala í alvöru um samstarf þá þarf að horfa á svæðin í heild sinni þannig að þjónustan verði svipuð á öllu svæðinu sem unnið er saman á. Sé sveitarfélagið sameinað þarf þjónustan að vera góð í því öllu en ekki bara á einum stað. Það hefur stundum eyðilagt sameiningarhugmyndir að sá litli heldur að sá stóri ætli að gleypa hann og þjónustan versni. Þetta samfélag virðist sjálfbært og ef vel er haldið á spöðunum áfram getur það hugsað um sig sjálft. Það er samt allt í lagi að skoða hvort hægt sé að ná betri þjónustu með því að vinna á stærra svæði. Markmiðið hlýtur alltaf að vera að auka þjónustuna við íbúana á sem hagkvæmastan hátt.“ Síðustu sameiningarhugmyndir hafa verið til norðurs, við Bakkafjörð sem sameinaðist Þórshöfn í Langanesbyggð. Þorsteinn segir samfélögin að mörgu leiti lík þar sem þau byggi á sjávarútvegi og landbúnaði en slá þurfi á ákveðinn hrepparíg til að þau nái betur saman. Unglingarnir sækja framhalds- skóla á Akureyri eða Laugum frekar en á Héraði þótt Vopnfirðingar hafi margir gengið í Eiðaskóla hér áður fyrr. Samgöngur ráða þar miklu um því ekkert hefur bólað á jarðgöngum til Vopnafjarðar þótt barist hafi verið fyrir þeim. „Við börðumst gríðarlega fast fyrir jarðgöngum hér og töldum að við yrðum framarlega í þeirri röð,“ segir Þorsteinn en í millitíðinni séu komin tvenn ný göng á Austur- land, þau þriðju séu í vinnslu og þau fjórðu verði líklega til Seyðisfjarðar. Splunkunýr vegur niður Vopnafjarðarheiði um Vesturárdal „er vissulega gríðarlega samgöngubót en styttir ekki leiðina og breytir því ekki að við erum enn að fara upp á þessar háu heiðar. Þótt vegurinn sé ágætur þá fer hann í nálægt 600 metra hæð. Þegar ófært var til Seyðis- fjarðar í vetur var nánast alla sömu daga ófært frá Vopnafirði til Egilsstaða.“ Jarðgöng eru því „eini kosturinn í stöðunni ef bylt- ing á verða“ í samgöngum til austurs. „Ég vil sjá þau koma en tel að þau komi ekki strax fyrst þau komu ekki þegar við börðumst sem mest fyrir þeim. Ég tel að Seyðisfjarðargöng séu næstu göng og ég er klár á því að fjármagn til vegamála er ekki það mikið að ég sjái göng í bráð til Vopnafjarðar þótt ég telji þau eiga koma.“ Þorsteinn segist „alltaf hafa haft gaman af sam- göngumálum“ og talar um að menn verði að nota Egilsstaðaflugvöll meira. Göng til Vopnafjarðar myndu hjálpa til þess auk þess sem þau myndu bæta lífsskilyrði Vopnfirðinga. „Ég er sannfærður um að markaðsvirði fasteigna hér myndi rjúka upp þann dag sem byrjað yrði á jarðgöngum,“ segir hann og bankar takfast í borðið á meðan hann talar til að leggja áherslu á mál sitt. „Þetta væri orðin feiknafín samloka sem mann langar að leggja í að borða,“ segir hann um búsetuskilyrði á Vopnafirði með göngum og þeirri þjónustu sem til staðar er. Datt út af á Borgarfirði Við hverfum aftur til þess tíma þegar Þorsteinn kom fyrst á Vopnafjörð árið 1995. „Það var sem túristi, augnablik og það hvarflaði ekki að mér að ég ætti eftir að setjast hér að, hvað þá að vera í sextán ár.“ Hann keyrði niðurgrafinn malarveg á Mývatnsöræfum „og hann skánaði ekkert þegar ég kom niður Vopnafjarðarheiðina. Vegurinn var mjór með þeim flestum útskotum sem ég hef séð. Þau voru alltaf merkt M og ég fór að hugsa hvort þessi stafur stæði fyrir einhvern stjórnmálaflokk í sveitarfélaginu.. Mér fannst ég eiginlega kominn til tunglsins!“ Síðan hefur vegakerfið á Austurlandi tekið „stakkaskiptum“ þótt áfram þurfi að vinna að framgangi samgöngumála, fækka einbreiðum brúm, grafa ný göng og auka viðhald á vegum, einkum eftir að þungaflutningar færðust upp á land. Hann minnir á að leiðirnar til Reykjavíkur verði að vera greiðar. „Það verður alltaf þannig að höf- uðborgin er höfuðborg allra landsmanna og þar er stærstur hluti þeirrar opinberu þjónustu sem við þurfum að þiggja.“ Sjúkraþjónustan er þar á með- al. „Það verða aldrei byggð hátæknisjúkrahús með alhliðaþjónustu og sérfræðikunnáttu vítt og breitt um landið. Það verður í Reykjavík, hvort sem menn vilja viðurkenna það eða ekki. Við eigum á móti að vinna í að byggja upp sterkari heilsugæslu og auka afkastagetu í sjúkraflutningum og sjúkraflugi.“ Á þessa skoðun sína lagði Þorsteinn sérstaklega áherslu, eiginlega of mikla, á þingi SSA á Borgar- firði haustið 2012. „Ég var einmitt að ræða um heilbrigðismál og sjúkraflutninga og var að ljúka við að segja að það þyrfti að gefa vel í fjármagnið þegar ég fékk aðsvif sem olli því að ég datt alveg út af og vissi ekkert af mér. Síðan hrökk ég í gang en þá var staðan sú að það var enginn sjúkrabíll á staðnum og enginn læknir. Það var hins vegar heppilegt að það var hjúkrunarfræðingur ofan af Héraði á fundinum og hún hjálpaði til með mig þar til það fannst hjúkrunarfræðingur á Borgar- firði. Sjúkrabíll var pantaður frá Egilsstöðum og það var gaman að finna hvað kerfið virkaði vel, því þótt það væri klukkustundarakstur frá Egilsstöðum á Borgarfjörð þá voru þeir ótrúlega fljótir. Það kom læknir með bílnum og hann sagði mér að það væri búið að panta sjúkraflug frá Akureyri. Ég var settur beint í þá vél og flogið með mig til Reykjavíkur þar sem ég fór í þá meðferð sem þurfti – og nú er ég kátur og fjörugur að ræða við þig! Þetta sýndi hins vegar hversu mikilsvert það er að hafa góða sjúkra- þjónustu og sjúkraflutn- inga.Með þessu lagði ég áherslu á það sem ég sagði áður en ég datt út af. Þetta var svona leikræn tjáning! Þegar ég rankaði við mér fannst mér broslegt að hugsa til þess að það ætti fyrir mér að liggja að hrökkva upp af og hitta þann sem ræður ríkjum efra, fyrir þær sakir einar að ekki væru sjúkraflutningar eða læknir á staðnum!“ Minningar um skemmtilegan tíma og góða samvinnu Þorsteinn segir Vopnfirðinga hafa aðlagast stað- setningu sinni og samgöngum. „Vopnafjörður hefur í gegnum tíðina verið afskekktur og ég held að það hafi kennt Vopnfirðingum að þeir þyrftu að bjarga sér með flesta hluti. Þess vegna held ég að hér sé tiltölulega sjálfbjarga samfélag. Þjónustan er góð á mjög mörgum sviðum, miðað við stærð samfélagsins, og atvinnan að sama skapi tiltölu- lega fjölbreytt. Vopnfirðingar eru líka um margt þekktir fyrir menningarstarf. Ég myndi segja að Vopnafjörður sé mjög gott samfélag til að búa í og ákaflega gott að vera hér með ungt fólk í upp- vexti því leikskólinn og grunnskólinn eru sterkir.“ Þá hafa verið uppi hugmyndir um að stofnsetja framhaldsskóladeild á Vopnafirði í samvinnu við skólanna á Austurlandi. „Það togast hins vegar á hversu lengi er gott fyrir unglingana að vera heima eða fara á stærri staði og kynnast fleirum. Ég held að það sé nauðsynlegt á einhverjum tímapunkti að fara í burtu og kynnast öðrum sjónarmiðum og lífsstíl heldur en er í heimahúsum.“ Þorsteinn nefnir skólana þegar hann er spurður af hverju hann sé stoltastur eftir veruna á Vopnafirði og uppbygginguna í atvinnulífinu. „Ég hef alltaf verið mikið fyrir hafnsækna starfsemi og er stolt- astur af uppbyggingu hafnarinnar og atvinnulífsins í kringum hana. Ég get ekki leynt því.“ Uppbygg- ing skólanna var líka annað átaksverkefni. „Það er mjög gaman að sjá framþróun í sveitarfélögunum. Allir stjórnendur vilja sjá meira en bara hinn lög- bundna rekstur.“ Hann segir samskiptin við íbúana og sveitarstjórnarmennina hafa gengið vel. „Ég hef ekki verið ráðinn pólitískt í mín störf heldur reyni að vinna eins vel og ég get fyrir samfélagið og íbúana í heild.. Ef ég vinn fyrir Samfylkingarfólk þá heldur það yfirleitt að ég sé Sjálfstæðismaður og svo öfugt. Ég legg á það áherslu að meirihluti og minnihluti vinni sem mest saman að góðum mál- efnum í samfélaginu en hinn skjóti ekki stöðugt niður hugmyndir annars. Hér á Vopnafirði hafa aldrei verið svo sterkar pólitískar væringar að það hafi háð þessari samvinnu. Sveitarstjórnin hefur, sem betur fer, verið samstíga í öllum stóru málunum. Það er nauðsynlegt þegar menn stíga erfið skref.“ Þorsteinn kveðst taka með sér „góðar minningar af skemmtilegum tíma og góðri samvinnu“ þeirra sem hann hafi unnið með að uppbyggingu samfélagsins. Hún sé ekki verk 1-2 manna heldur samspil íbúa og sveitarstjórnarmanna. Það er líka ljóst að Vopnfirð- ingar þurfa að fara nýjar leiðir í túlkanir á sveitar- stjóranum á þorrablótum en Þorsteinn er þekktur fyrir litríkt skyrtuval. „Það er lélegur sveitarstjóri sem ekki er sagt eitthvað um á þorrablóti og mín vegna má gera eins mikið grín að mér og hægt er. Meðan ég hef verið hér hefur það verið þannig að ef leika á sveitarstjórann þá er yfirleitt komið heim og eiginkonan beðin um að lána Hawaii-skyrtu. Það er ljóst að ef einhver mætir í slíkri skyrtu á sviðið þá er verið að leika sveitarstjórann. Ég veit ekki hvað það er en ég hef alltaf verið fyrir birtu og haft gaman af skrautlegum litum. Hawaii-skyrtur eða aðrar skyrtur í þeim anda hafa alltaf heillað mig og þær mega vara sig ef ég sé þær á standi í búð!“ GG Sundþjálfari óskast Óskum eftir sundþjálfara fyrir Sunddeild Hattar á Egilsstöðum. Nánari upplýsingar hjá Tinnu Björk í síma 894-5191. sunddeildhattar@gmail.com Stjórn Sunddeildar Hattar. 40 ára 1974 - 2014 AUSTUR · GLUGGINN Föstudagur 22. ágúst 7

x

Austurglugginn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Austurglugginn
https://timarit.is/publication/1687

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.