Austurglugginn - 22.08.2014, Side 8
8 Föstudagur 22. ágúst AUSTUR · GLUGGINN
Héraðshátíðin Ormsteiti var sett
um síðustu helgi og stendur fram
á sunnudag. Hátíðin hófst á því að
Fellamenn buðu í súpu en á laugar-
deginum var komið að hinni vinsælu
hverfahátíð sem nær hápunkti sínum
með hverfaleikunum á Vilhjálms-
velli. Nokkuð færri mættu á leikana
heldur en undanfarin ár enda rigndi
hraustlega um kvöldið. Að þessu sinni
var það bleika hverfið sem bar sigur
úr býtum á leikunum en appelsínu-
gula hverfið, Fellabær, var valið best
skreytta hverfið. Á sama tíma fór
fram gleði í Möðrudal á Fjöllum.
Síðan hefur hver atburðurinn rekið
annan, krakkadagur með gæludýra-
sýningu var á mánudag og markaðir,
íþróttamót og menningarviðburðir
hafa verið á boðstólunum í vikunni.
Á morgun verður miðbæjarhátíð á
Egilsstöðum og hreindýraveisla um
kvöldið. Ormsteiti lýkur með Fljóts-
dalsdegi á sunnudag en þar kemur
meðal annars hljómsveitin Valdimar
fram á Skriðuklaustri og kláfferja
yfir Jökulsá, milli Glúmsstaðasels
og Kleifar í Norðurdal, verður vígð.
Austurglugginn leit við á hverf-
ahátíðinni. GG
Danski sirkusinn Sirkus Baldoni
heldur sýningu á Egilsstöðum næst-
komandi þriðjudag. Sirkusinn kom í
fyrsta sinn til landsins árið 2008 og
aftur árið 2009.
Sýning ársins býður upp á mörg
spennandi og hröð atriði. Meðal
annars má nefna jafnvægisatriði í
fleiri metra hæð, fótagegl, þokkafullt
loftatriði, dansatriði á stöng, „quick
chance“ með dans, húllahopp, hressa
trúða og margt fleira.
Áhorfendur verða kynntir fyrir „Ball-
ett á öxlum“ - æfingu sem hefur
unnið Gulltrúðinn á hinnu virtu al-
þjóðlegu sirkushátíð sem haldin er í
Monte-Carlo.
Leonardo, óþekka ljónið, er fastur
meðlimur Sirkus Baldoni og hitta
skemmtileg inngrip hans, þegar hann
truflar kynningu sirkusstjórans aftur
og aftur í sýningunni iðulega í mark.
Dönsku trúðarnir Danilo og Danila
hafa sýnt listir sínar með sirkusnum
í fleiri ár og þau eru snillingar í að fá
fólk til að hlæja.
Þá verður sýnt atriði þar sem lista-
maðurinn notar krukkur úr fínu kín-
versku postulíni, stóra krukku sem
hann snýr á höfðinu og fingri, eins og
um sé að ræða bolta, og ennþá stærri
krukku sem hann kastar upp í loft
til þess að grípa hana með bakinu.
Litrík hverfahátíð á Ormsteiti
Sirkusinn mætir í bæinn
Fjólubláa hverfið leiddi skrúðgönguna í ár.
Höfðingi bleika hverfisins rann lengst í vatnsrennibrautinni.
Hæsta öskrið skilaði dýrmætum stigum.
Sirkusstjórinn Baldoni og óþekka ljónið Leonardo.
Í stað boðhlaupskefla var notast við vatnsblöðrur sem þurfti að sprengja með því að skalla þær.
Kapphlaupið um karamellurnar.