Austurglugginn - 22.08.2014, Blaðsíða 11
AUSTUR · GLUGGINN Föstudagur 22. ágúst 11
Ólafur Bragi Jónsson, akstursíþrótta-
maður í START, Fljótsdalshéraði,
varði um helgina heimsmeistara-
titil sinn í torfæruakstri en mótið
fór fram á Akureyri. Þá vann hann
einnig fimmtu og sjöttu umferð Ís-
landsmótsins sem haldin var um leið.
„Þetta var mjög spennandi keppni
þar sem við skiptumst á um að hafa
forystuna. Þrautirnar voru oft erfiðar,
sérstaklega þegar rigndi á laugardag-
inn og brautirnar urðu blautar,“ segir
Ólafur Bragi. Hann varð efstur í NEZ
heimsbikarkeppninni með 3399 stig
en Snorri Þór Árnason varð annar
með 3250. Níu erlendir ökuþórar
mættu til leiks í keppninni, þar af
þrír í flokki Ólafs Braga sem keppir í
flokki sérútbúinna bíla. Keppnin stóð
í tvo daga og var um leið fimmta og
sjötta umferð Íslandsmótsins í tor-
færu. Ólafur Bragi var efstur eftir
fyrri daginn en hann og Snorri Þór
skiptust á forystunni þar til að kom að
síðustu þraut dagsins, tímaþrautinni,
þar sem Ólafur Bragi varð fljótari.
Seinni daginn veitti Ingólfur Guð-
varðarson honum harða keppni og
eftir að Ólafi Braga hafði hlekkst á
í næstsíðustu braut og hlotið fjölda
refsistiga hafði Ingólfur yfirhöndina.
Hann velti hins vegar í tímaþrautinni
sem Ólafur Bragi keyrði af öryggi og
tryggði sér þar með sigurinn.
Ólafur Bragi vann þar með síðustu
tvær umferðirnar í Íslandsmótinu sem
voru þær einu sem hann tók þátt í
þetta sumarið. Þá varði hann heims-
bikarinn sem hann vann í Noregi í
fyrra. Hann fór alls heim með fjóra
bikara því ein tilþrifaverðlaun bætt-
ust í safnið. Hann segist þakklátur
aðstoðarmönnum sínum fyrir vinnu
helgarinnar. „Ég held að ég hafi ekki
tapað keppni á bílnum síðan 2010
og aðstoðarmennirnir voru búnir
að græja hann þannig hann myndi
þola tveggja daga álag. Ég velti á
laugardaginn en snör viðbrögð þeirra
hjálpuðu mér aftur af stað.“ Óvíst er
þó hvort heimsmeistarinn geri atlögu
að þriðja titlinum í röð. „Keppnin
verður haldin erlendis á næsta ári og
það hvort maður fer veltur á því hvort
styrktaraðilar finnast til ferðarinnar.“
Tveir aðrir Austfirðingar, þeir Guð-
laugur Sindri Helgason og Kristmundur
Dagsson tóku þátt í heimsmeistara-
mótinu. Kristmundur varð níundi með
2235 stig eftir helgina en Guðlaugur
tíundi með 2202 stig.
GG
Fjarðabyggð og Leiknir eru hárs-
breidd frá því að tryggja sig upp um
deild en liðin eru í toppsætum ann-
arrar og þriðju deildar karla í knatt-
spyrnu. Fjarðabyggð mætir Gróttu um
helgina í toppslag annarrar deildar.
„Það verður gaman að mæta Gróttu.
Það er gott próf fyrir okkur að mæta
liði sem hefur gengið vel. Þarna geta
menn orðið aðeins betri. Við erum að
spila um toppsætið og ef menn ætla að
verða eitthvað þá þurfa þeir að vinna
þessa leiki,“ segir Brynjar Gestsson,
þjálfari Fjarðabyggðar.
Fjarðabyggð náði toppsætinu um síð-
ustu helgi með 3-0 heimasigri á Njarð-
vík á meðan Grótta tapaði fyrir Ægi
í Þorlákshöfn. Fjarðabyggð er einnig
með 11 stiga forskot á ÍR í þriðja sæti
þegar fimmtán stig eru eftir í pottinum
en tvö efstu liðin fara upp um deild.
„Við tökum þetta skref fyrir skref og
næsta verkefni er Grótta. Menn verða
að standa í lappirnar og klára þetta sem
fyrst áður en hópurinn tvístrast,“ segir
hann en leikmenn hverfa af svæðinu
þegar skólarnir byrja. „Þetta er ekki
búið á meðan við eigum eftir að ná
tveimur sigrum í hús.“ Huginn er svo
í fjórða sæti deildarinnar eftir 4-3 tap
gegn ÍR um síðustu helgi.
Í þriðju deildinni er Leiknir með níu
stiga forskot á Berserki, sem eru í
þriðja sæti þegar fimm umferðum er
ólokið. „Við tökum bara einn leik fyrir
í einu en við stefnum bara á bikarinn
núna. Við verðum að stefna hátt og
gerum það. Markmiðið frá því ég tók
við í vor hefur verið að komast í aðra
deild,“ sagði Viðar Jónsson, þjálfari
Leiknis, eftir 0-4 sigur á Einherja á
Vopnafirði á föstudagskvöld. Leiknir
spilar tvo útileiki gegn Víði í Garði og
Grundarfirði um helgina en Berserkir
koma austur eftir viku. Höttur er í öðru
sætinu með sex stiga forskot á Berserki
en hafa leikið leik meira. Einherji er
í næstneðsta sæti deildarinnar með
13 stig en eiga bara fjóra leiki eftir.
Framundan er erfið fallbarátta fyrir
liðið sem vann fjórðu deildina í fyrra.
Í fyrstu deild kvenna berst Höttur
við Þrótt Reykjavík um sæti í úrslita-
keppninni. Höttur spilar í borginni um
helgina við ÍR og topplið KR. Höttur
er eina liðið sem náð hefur stigum
af KR í deildinni í sumar en Höttur
vann viðureign liðanna á Egilsstöð-
um fyrir tveimur vikum 3-0. Höttur
þarf að vinna sína leiki og treysta á
að Þrótti fatist flugið á lokasprett-
inum, en Reykjavíkurliðið á eftir KR
og Sindra, sem Höttur vann 3-0 um
síðustu helgi. Fjarðabyggð lauk keppni
í gærkvöldi með heimaleik gegn Völ-
sungi en úrslit leiksins lágu ekki fyrir
þegar Austurglugginn fór í prentun.
GG
Ólafur Bragi varði heimsmeistaratitilinn í torfæru
Knattspyrna
Fjarðabyggð og Leiknir hársbreidd frá því
að fara upp um deild
Ólafur Bragi á ferð í torfærubraut. Mynd: GG
Sveinn Fannar Sæmundsson á ferðinni í vítateig Njarðvíkinga á sunnudag. Mynd: GG