Austurglugginn


Austurglugginn - 22.03.2013, Side 13

Austurglugginn - 22.03.2013, Side 13
 Föstudagur 22. mars AUSTUR · GLUGGINN 13 Hvernig horfir þetta við Aust- firðingum og íbúum á Héraði? Ég býð mig fram í 1. sæti hjá Dögun - samtökum um réttlæti, sanngirni og lýðræði (xt.is) - í Norðurlands- kjördæmi eystra þar sem ég er uppal- inn og þaðan ættaður. Í tillögum um stefnu um byggð og þróun þjónustu og atvinnulífs fyrir landsfund Dög- unar, sem haldinn var um síðustu helgi í höfuðborginni, segir að það hafi orðið mikill samdráttur og fólks- fækkun á flestum svæðum á lands- byggðinni. Á sama tíma hafi þróunin á höfuðborgarsvæðinu einkennst af þenslu. Dögun vill leita jafnvægis milli hagsmuna ólíkra landshluta. „Mikilvæg skref í þá átt er að ná víð- tæku samkomulagi um að auðlinda- stefna og efnahagsstefna tryggi að fjármagn til uppbyggingar og þjón- ustu sé veitt til allra landshluta.” Hvað með Austurland? Hvað gæti falist í þessu nánar til tekið fyrir íbúa á landsbyggðinni, t.d. á Héraði og á Austfjörðum? Í fyrsta lagi gerir nýja stjórnarskráin og stefna Dögunar ráð fyrir að almenna reglan sé sú við val á staðsetningu fyrir allan rekstur ríkisins fari fram yfirvegað mat á því hvar sé best að staðsetja höfuðstöðvar og megin- rekstur. Á Austurlandi hefur húsnæði verið vannýtt og margvísleg fjárfesting í grunngerð er þegar til staðar. Hví skyldu höfuð- stöðvar listamannalauna og lánasjóða ríkisins ekki geta verið á Egilstöðum? Skipulag nær notendum í héraði Í öðru lagi telur Dögun að rekstur á borð við heilbrigðisþjón- ustu og félagsþjónustu verði framvegis skipu- lagður í landshlutum og stjórn þeirra færð til aukins sjálfstæðis og frá miðstýringu ráðuneyta í Reykjavík. Með slíku yrði skipulag þjónustunnar og stjórnsýsla gagnsærri og ákvarðanir lýðræðislegri og nær fagfólki á staðnum og notendum. Skipting sveitarfélaga á ekki að leiða til þess að smærri rekstrareiningar ráði ekki við umfang rekstrarins eða faglega ábyrga þjónustu. Heimastjórn Af hverju ættu íbúar á Aust- urlandi að hlíta tilskip- unum fólks 1000 km í burtu? Heilbrigðisstofnanir um land allt og öldrunarheimili, hafa upplýst almenning um ástand mála undan- farna mánuði þannig að efalaust er komið að hættumörkum. Fram- kvæmdaráð Dögunar hefur ályktað að hverfa eigi „frá þeirri miðstýring- arstefnu sem nú ríkir í heilbrigðis- málum og kerfið byggt upp með minni og manneskjulegri einingum þar sem megináherslan verði lögð á alhliða grunn- og neyðarþjónustu fyrir alla landsmenn í heimahéraði.” Dögun telur að allt of langt hafi verið gengið í niðurskurði í heil- brigðiskerfinu á undanförnum árum. Dögun telur að rekstur sjúkrahúsa og þjónusta við fatlaða og aldraða eigi aldrei að vera í arðsemisskyni. Norðfjarðargöng Við slíka stefnumörkun þurfa sam- göngur vitaskuld að styðja. Norð- fjarðargöng myndu ekki aðeins auðvelda íbúum í Neskaupstað að sækja þjónustu á aðra Aust- firði og á Hérað heldur myndi nýting sjúkrahússins á Norðfirði batna í þágu íbúa á Austurlandi. Að sama skapi er gert ráð fyrir því í stefnudrögum fyrir lands- fund Dögunar um helgina að millilandaflugvellir á Norður- og Austurlandi verði markaðssettir sem sjálfstæðar rekstrareiningar. Dögun hefur ályktað að hætta skuli við byggingu nýs Landspítala að sinni. „Þess í stað verði bætt kjör heilbrigðis- og umönnunarstétta sem sinna grunnþjónustu um land all.“ Hvaðan eiga peningarnir að koma? Til þess að fjármagna hlutfallslega meiri uppbyggingu á landsbyggðinni en hingað til þurfa sameiginlegar auðlindir þjóðarinnar að eiga varn- arþing í landshlutum og að umtals- vert hlutfall afgjalda af þeim sé veitt til þjónustuverkefna í landshlutum. Auðlindarentan þarf að skila sér til almannaverkefna um land allt. Gísli Tryggvason, frambjóðandi í 1. sæti fyrir Dögun í Norðausturkjördæmi Nánar má lesa um tillögur fyrir landsfundi um helgina á xt.is. Hvað með Austurland? Í stefnumótun Dögunar fyrir landsfund segir að þjóðin sé samábyrg með áherslu á jöfn tækifæri og lífsgæði allra Þrátt fyrir að mikið sé talað um Evrópusambandið og Icesave í kosn- ingabaráttunni sem nú er hafin er það ljóst að þau mál sem hinn almenni kjósandi hefur mestan áhuga á eru allt önnur. Kannanir sýna að þau málefni sem kjósendur telja mikil- vægust eru heilbrigðismál, skulda- vandi heimilanna, umhverfismál og svo það sem hér verður fjallað um, menntamál. Skólarnir eru sameign okkar allra Öll erum við sammála um að menntun er ein af grunnstoðum samfélagsins. Leiðin til aukinna lífsgæða er aukin menntun og því á það að vera algjört forgangsatriði að tryggja að allir landsmenn hafi sömu tækifæri til að mennta sig. Þetta verður einungis tryggt með því að skólarnir séu sameign okkar allra og að skólagjöld heyri sögunni til. Þegar ungmenni ljúka grunn- skólanámi þurfa þau að velja sér framhaldsskóla við hæfi eftir því hvaða nám þau vilja stunda en fyrir nemendur sem búa á landsbyggðinni skiptir líklega staðsetning skóla þó mestu. Sjálfræðisaldurinn er 18 ára og nemendur því enn börn þegar þau hefja nám við framhaldsskóla. Það getur reynst foreldrum erfitt að tryggja velferð barna sinna þegar senda þarf þau um langan veg í skóla. Því er mikilvægt að tryggja öllum nemendum framhaldsnám sem næst sinni heimabyggð. Almenningssam- göngur fyrir framhaldsskólanema En hvernig getur svo fámenn þjóð boðið upp á fjölbreytt nám víðs vegar um landið? Það er nokkuð ljóst að ekki verður settur upp fullbúinn framhaldsskóli með fjölbreyttu námsframboði í öllum þorpum landsins. Við þurfum því að tryggja það að skólarnir séu vel staðsettir og að þeir geti þjónað nærliggjandi byggðarlögum. Þetta er einungis gert með því að bjóða upp á almenn- ingssamgöngur svo að nemendur geti farið að heiman á morgnana og verið komnir heim síðdegis. Með því móti geta nemendur því notið þess lengur að eiga daglega stundir með foreldrum og systkinum. Góð tengsl ungmenna við fjölskyldu sína hafa mjög jákvæð áhrif á sjálfsmynd þeirra, námsárangur, almenna líðan og velferð. Lært heima Fjarfundabúnaður, „Skype“, kennslu- vefir á netinu og jafnvel „Facebook“ bjóða upp á alls kyns möguleika til að læra heima. Framhaldsskólar víðs vegar á landinu nota þessa tækni og fjarnemar landsins eru fjölmargir. Framhaldsskólinn er svo miklu meira en bara hefðbundið nám. Fjölbreytt félagslíf er í öllum framhaldsskólum landsins. Nemendur taka þátt í leikfélögum, íþróttum, ýmis konar klúbbastarfssemi auk þess sem það er í sjálfu sér mjög félagslegt að vera í framhaldsskóla. Á þessum aldri myndast oft vinatengsl sem endast út lífið og því er samvera við sam- nemendur innan skóla afar mikilvæg. Það er jákvætt að nemendur nýti sér tæknina t.d. til að taka ein- staka áfanga frá öðrum framhalds- skóla sem ekki eru í boði í heima- skólanum. Tæknin er einnig frábær þegar íslenski veturinn minnir á sig og ófært verður. En allir nemendur á hinum hefðbundna framhaldsskóla- aldri ættu að geta sótt skóla og verið hluti af því skólasamfélagi sem þar er. Framhaldsskólar út um allt Margir skólar á landsbyggðinni eru með heimavistir og kjósa þeir nem- endur sem þurfa að fara lengstan veg oft að búa á heimavist fremur en að eyða löngum tíma á hverjum degi í ferðalög. Þrátt fyrir mikilvægi þess að nemendur geti farið heim að loknum skóladegi er einnig þörf á að skólar geti boðið upp á heimavist fyrir þá nemendur sem það vilja. Það er afar brýnt að við tryggjum enn frekar stöðu framhaldsskóla á landsbyggðinni þar sem boðið er upp á fjölbreytt nám, bæði verk- legt og bóklegt. Vinstrihreyfingin – grænt framboð hefur staðið vörð um skóla landsins og tekist að verja þá á þeim erfiðu tímum sem verið hafa frá 2008. Bjarkey Gunnarsdóttir, náms- og starfsráðgjafi, skipar 2. sæti VG í Norðausturkjördæmi Ingibjörg Þórðardóttir, framhalds- skólakennari, skipar 4. sæti VG í Norðausturkjördæmi Nám á heimaslóðum Ingibjörg ÞórðardóttirBjarkey Gunnarsdóttir Gísli Tryggvason

x

Austurglugginn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Austurglugginn
https://timarit.is/publication/1687

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.