Viljinn - 01.04.1950, Blaðsíða 7
VII •• "Aðventæskan" 2’50
Auðmýkt.
Og svo er hið síðasta en ekki hið þýðingarminnsta
af þessum sex hoðorðum, sem fólk venjulega sneiðir hjá, og
það er athöfn auðmýktarinnar. Hvers vegna er hún svo
nauðsynleg, spyrjum við nú á timum. Hún er nokkurs konar
skírn. Hún lifgar upp skirnarheit okkar. Ef við höfum
það i huga, ættum við ekki að láta okkur vanta við þá
athöfn.
Andi spádómsins. Það mætti hafa margar samkomur viðvikj-
""""""""""""""" andi þessari blessun Guðs, er hann hef-
ur veitt söfnuðinum. Við ættum að gera
þetta ljóst fyrir þeim, sem vilja gerast sjöunda dags
Aðventistar, og lesa með þeim Op. 12,17. Guðs orð segir
okkur, að söfnuður sá, sem biður eftir komu Drottins, muni
hafa þessa gjöf. Aðeins það, að Jesús varar við fals-
spámönnum á siðustu dögum, er nóg til að gefa til kynna,
að sannur spámaður muni koma fram.
Hefur þú nokkru sinni séð falskan 13 dollara
seðil? Nei. Hvers vegna ekki? Vegna þess, að það hef-
ur aldrei verið prentaður 13 dollara seðill og settur i
umferð sem gjaldmiðill. Fólk ómakar sig ekki til að
eftirlikja annað en það, sem er til ekta. Þannig mundu
ekki vera falsspámenn á siðustu dögum, nema að til væri
samnur spámaður. Starf E.G.WMte sannar, að Guð hefur
kosið verkfæri, sem hver maður mun geta borið virðingu
fyrir, hvar sem er á hnettinum.
Fyrir nokkrum mánuðum skoðuðum við stóra stjörnu-
kikirinn á Mt. Wilson i Californiu. Er þessum stóra kiki
var beint til himins, hafði enginn okkar hugmynd um, hvort
nokkur ný stjarna kæmi i ljós, en við þóttumst vita, að
sjást mundi skýrar það sem áður hafði sést af undrum
himinsins. A svipaoan hátt má segja, að andi spádómsins
komi ekki með neinar nýjar kenningar, heldur gerir hann
gleggra og skýrara það, sem stendur skrifað i ritningunum.
Trúin á spádómsgáfuna hefur haft mikla þýðingu
viðvikjandi þvi að staðfesta söfnuðinn i þvi ljósi, er
skin frá ritningunum. Og er við lesum um spámennina og
siáum, að sama gáfa er á hinun siðustu dögum, finnum við
að hjálpin er nálæg okkur og gripum hana með þakklæti.
Niðurlag.
Að visu er fleira um að ræða en boðorð Guðs og
anda spádómsins. Þetta er vitanlega kjarninn. En svo
þurfa menn að skilja framtið sina i lifi og dauða, og
þeir þurfa að skilja skyldur sinar viðvikjandi safnaðar-
lifinu. Bibliulexiur hafa verið gerðar um þessi atriði.
Og allar ungar manneskjur vilja vita, hverju þær trúa.
Þá losnar maður lika við ýms óþægindi, og hefur möguleika
til að leiðbeina vinum sinum til sannrar hamingju og
farsældar þessa heims og annars.
G.F.E. þýddi