Austurglugginn


Austurglugginn - 22.01.2010, Blaðsíða 12

Austurglugginn - 22.01.2010, Blaðsíða 12
Þetta eru sko karlar og konur í krapinu og bjarga því sem bjargað verður!Starfsstöðvar ÞNA: Vopnafjörður - Kaupvangur ✆ 473 1569 Egilsstaðir - Vonarland ✆ 471 2838 Reyðarfjörður - Molinn ✆ 471 2848 Neskaupstaður - VA ✆ 477 1838 Hornafjörður - Nýheimar ✆ 470 8030 * tna@tna.is - ̨www.tna.is Fjölmörg spennandi námskeið í boði! Kíktu á www.tna.is og skráðu þig á póstlistann okkar Það hljóp á snærið hjá aust- firskum björgunarsveitum í vik- unni þegar Samfélagssjóður Alcoa í Bandaríkjunum (Alcoa Foundation) afhenti þeim vilyrði fyrir hundrað þúsund bandaríkjadölum á næstu tveimur árum, eða sem svarar um 12,5 milljónum króna. Styrkurinn verður stofnframlag í menntunarsjóð björg- unarsveitarmanna á Austurlandi. Hafsteinn Viktorsson, framkvæmda- stjóri framleiðslu hjá Alcoa Fjarðaáli, afhenti björgunarsveitunum styrkinn sl. mánudag og veitti Guðjón Már Jónsson, formaður svæðisstjórnar björgunarsveitanna á Austurlandi, honum viðtöku í Þórðarbúð, húsi Ársólar á Reyðarfirði. Hafsteinn sagði við afhendinguna að framlag samfélagssjóðsins væri viðurkenning á ómetanlegu starfi björgunarsveit- arfólks á Austurlandi og þakklætis- vottur fyrir vel unnin störf. Mikilvægi björgunarsveitanna sanni sig aftur og aftur og gríðarlega gott starf sé unnið innan þeirra. Guðjón Már sagði gjöf- ina höfðinglega og kæmi sér einkar vel til menntunarmála. ,,Þetta mun veita okkur tækifæri til að mennta okkur enn betur og sömuleiðis veita ung- lingadeildunum okkar aukin tækifæri á menntun, þær eru það afl sem kemur til með að taka við af okkur.“ Peningarnir munu nýtast til að upp- fylla það markmið Slysavarnarfélagsins Landsbjargar að allir á útkallslistum björgunarsveitanna ljúki umfangs- miklu grunnnámi björgunarsveit- arfólks. Allir á útkallslistum eiga framvegis að hafa réttindi sem nefnd eru Björgunarmaður I. Stór hluti fólks er í dag með þessi réttindi, sem fela í sér 9 námskeið, eða rétt um 110 klukkustundir. Námskeiðsgjald á hvern björgunarsveitarmann er um 200 þúsund krónur og ferðakostn- aður er þar fyrir utan. Næsta skref, Björgunarmaður II, felur í sér frekari sérhæfingu, svo sem þjálfun á slöngu- báta, bíla og fleira. Um er að ræða að lágmarki 80 klukkustunda nám og námskeiðin sem unnt er að taka alls 20 talsins. Björgunarmaður III er svo enn meiri sérhæfing með fagnámskeiðum á seinni stigum og leiðir gjarnan til leiðbeinandaréttinda. Styrkurinn mun einnig auðvelda upp- byggingu unglingastarfs, sem er að sjálfsögðu vaxtarsproti björgunarsveit- anna, unnt verður að halda viðameiri námskeið á Austurlandi og jafnvel senda fólk utan til að afla sér frekari þekkingar. Á Austurlandi starfa hartnær 600 sjálfboðaliðar í tólf björgunarsveitum. Þar af eru 350 manns á útkallslista dag og nótt. Í slysavarna- og ung- lingadeildum á Austurlandi eru um 700 manns. Samfélagssjóður Alcoa og Alcoa Fjarðaál veittu í fyrra rúmlega 56 milljónum króna til 65 samfélags- verkefna á Íslandi. Alcoa Foundation veitti rúmum 12 milljónum til björgunarsveita á Austurlandi Átak í menntun björgunarmanna Björgunarsveitarmenn og hluti tækjaflota austf irskra björgunarsveita, sem komið hefur verið upp á mörgum árum. Myndir/SÁ Um eitthundrað lausnir bárust Austurglugganum á jólagetraunum blaðsins. Frestur til að skila lausnum var til 15. janúar og hafa vinningshafar nú verið dregnir úr potti réttra úrlausna. Vinningshafar: Jólamyndagetraun: Jóna Hallgrímsdóttir, Heiðmörk 1, Stöðvarfirði. Verðlaunin eru árskort fyrir tvo, sem gildir á alla menningarviðburði á vegum Kirkju- og menningarmið- stöðvar Fjarðabyggðar á Eskifirði. Jólakrossgáta: Karen Kjartansdóttir, Melgerði 13, Reyðarfirði. Verðlaunin eru gjafabréf á veitingahúsið Tærgesen á Reyðarfirði að upphæð kr. 15.000.- Litla jólakrossgáta: Björn Hólm Björnsson, Kaupvangi 45, Egilsstöðum. Verðlaunin eru inneign í Bókabúðinni Eskju, Eskifirði að andvirði kr. 5.000.- Íþróttagetraun: Sigrún Guðjónsdóttir, Nesbakka 14, Neskaupstað. Verðlaunin eru inneign í veiði- og sportvöruverslunum Fjarðasporti í Neskaupstað eða Veiðiflugunni á Reyðarfirði, að andvirði kr. 10.000.- Austurglugginn þakkar öllum þeim fjölmörgu sem sendu inn lausnir við getraununum, sem og þeim fyrirtækjum sem lögðu til góða vinninga. Úrslit getrauna í Jólablaði 2009 ÍS LE N SK A A U G LÝ SI N G A ST O FA N /S IA .I S T M I 32 03 6 0 3/ 20 06 TRYGGINGAMIÐSTÖÐIN / Sími 515 2000 / tm@tryggingamidstodin.is Umboðsmenn í Fjarðabyggð // TM Neskaupstað Hafnarbraut 6 740 Neskaupstaður sími 477 1735 // Sparisjóður Norðfjarðar Búðareyri 2 730 Reyðarfjörður sími 470 1100

x

Austurglugginn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Austurglugginn
https://timarit.is/publication/1687

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.