Austurglugginn - 13.07.2012, Qupperneq 3
Fréttir frá Fjarðaáli
Umsjón: Kristborg Bóel Steindórsdóttir ritstjóri Álpappírsins, fréttabréfs starfsmanna Alcoa Fjarðaáls.
KYNNING
Vélaverkstæði Hjalta Einarssonar (VHE) er orðið eitt
af stærstu fyrirtækjum á Austurlandi með um 165
fasta starfsmenn, þar af 60 í tengslum við rekstur
nýrrar kersmiðju Fjarðaáls. Byggingadeild VHE hefur
auk þess gegnt stóru hlutverki í framkvæmdum við
álverið undanfarin tvö ár.
VHE hefur fjárfest í mannauði, aðstöðu og búnaði
á Austurlandi til framtíðar. Uppbyggingin hefur verið
hröð og fyrirtækið hefur átt alveg nóg með að þjóna
Fjarðaáli, en nú ætlar VHE að leggja aukna áherslu á
að nýta fjárfestinguna í þágu annarra viðskiptavina
á Austurlandi.
Við báðum Sigurjón Baldursson, starfsmanna-
stjóra VHE á Austurlandi, að segja okkur frá starfsemi
og áformum fyrirtækisins. Við spurðum hann einnig
hvernig hafi gengið að manna störfin sem mörg hver
kalla á mikla sérþekkingu.
Þjónustusamningur um viðhald
VHE á Austurlandi nýtur þess að hafa sterkt bakland
í samstæðunni á suðvesturhorninu. Þar hefur VHE
veitt álverunum í Straumsvík og á Grundartanga
margvíslega þjónustu og einnig selt lausnir til álfyrir-
tækja í öðrum löndum.
Undirstaða starfseminnar á Austurlandi er þjón-
ustusamningur við Alcoa Fjarðaál um viðhald á
tækjum og búnaði. Viðhaldinu sinna fastir starfsmenn
bæði inni í álverinu og í smiðjunum að Hrauni 5 og 10.
„Viðhaldsverkefnin eru mjög fjölbreytt. VHE sinnir
reglubundum viðgerðum á ýmsum búnaði í álverinu.
Skautgafflaviðgerðir eru þar stórt verkefni og VHE sér
einnig um viðgerðir á skautbakkalokum, kerbrjótum
og möturum. Við erum með vökvaþjónustu, bæði
smíði og viðgerðir á tjökkum og háþrýstislöngum.
Við lagfærum handverkfæri og smíðum ný. Við
útvegun einnig ýmiss konar rekstrarvörur og hluti
í tæki og búnað. VHE leggur jafnframt til mannskap
í viðhaldsverkefni í álverinu. Auk þess hefur fyrir-
tækið útvegað framleiðslustarfsmenn á vaktir,“ segir
Sigurjón.
Hugsað til framtíðar
„Samstarfið hefur gengið mjög vel þótt vissulega sitji
menn stundum sitt hvorum megin við samninga-
borðið. Alcoa Fjarðaál er góður viðskiptvinur og VHE
hefur lagt sig fram um að vera góður birgir. Þjónustu-
samningurinn er til tólf ára með framlengingum og
sá tími er fljótur að líða. Nauðsynlegt var að hugsa
lengra en þjónustusamningurinn nær, því annars
væru menn alltaf að gera allt til bráðabirgða og
það yrði engin framþróun. Hér var byggt rúmt til
framtíðar. Þessi fjárfesting verður að vera til staðar
á svæðinu og jafnvel þótt Fjarðaál endurnýi ekki þjón-
ustusamninginn við VHE, þá taka bara einhverjir aðrir
við og nýta húsnæðið. Viðhaldið mun ekki minnka á
komandi árum. Markmið VHE er hins vegar að nýta
fjárfestinguna enn betur í framtíðinni með því að auka
þjónustuna við Alcoa Fjarðaál og aðra viðskiptavini á
Austurlandi,“ segir Sigurjón.
Kerfóðrun frá upphafi til enda
„Kersmiðjureksturinn er nýr þáttur í starfseminni en
við höfðum reyndar í töluverðan tíma búið okkur undir
að geta sinnt honum. VHE sér um kerfóðrunina frá
A til Ö. Þegar ker hefur verið tekið úr rekstri, komum
við og aftengjum það og flytjum yfirbygginguna og ker-
skelina í kersmiðjuna, þar sem brotið er upp úr ker-
skelinni og hún hreinsuð. Kerskelin er send í viðgerð
í smiðjunni okkar að Hrauni 5. Síðan fer skelin aftur í
kersmiðjuna í endurfóðrun og er svo að lokum flutt
inn í kerskála, tengd og búin undir ræsingu. Um 40
manns starfa hjá VHE
í kersmiðjunni og 12
til 16 í skelsmiðjunni,“
segir Sigurjón.
Gísli Stefánsson með for-
steyptan deiglustein.
Þjónusta fyrir alla á svæðinu
VHE hefur átt alveg nóg með að þjóna Fjarðaáli
og uppbyggingin hefur verið gríðarlega hröð. „Við
höfum enn tækifæri til að auka og bæta þjónustuna
og munum jafnframt leggja aukna áherslu á að nýta
einnig aðstöðuna og mannauðinn í þágu annarra
viðskiptavina á Austurlandi.
Við rekum verslun og lager að Hrauni 5 fyrir okkur
og Fjarðaál. Þar höfum við til dæmis möguleika í
gegnum dótturfyrirtækið Landvélar að vera með alls
konar búnað í vökvakerfi og erum með sérfræðing
í tjakkaviðgerðum. Við erum líka með háþrýstis-
löngur fyrir loft og vökva á lager. Sandblásturinn og
sprautunin eru einnig í boði fyrir aðra viðskiptavini.
Forsteyptar einingar geta hentað öðrum eins og
loðnuverksmiðjum sem eru að kaupa slíka þjónustu
erlendis frá í sína ofna,“ segir Sigurjón.
Ágætlega gengur að manna störfin
„Núna eru hérna um 165 starfsmenn, fyrir utan þá
sem eru í byggingarframkvæmdunum. Það gengur
ágætlega að manna störfin nema hvað hörgull er á
málmiðnaðarmönnum og vélvirkjum. Starfsmanna-
veltan hjá okkur er í hærri kantinum eða yfir 15%,
sem er þó ekki endilega meira en búast mætti við.
Óvissuþættirnir eru margir þegar fólk er kannski
að flytja inn á nýtt svæði þar sem það hefur engin
tengsl, þarf að finna starf fyrir maka og er að fara í
vaktavinnu,“ segir Sigurjón.
Um 20.000 fermetrar af húsnæði á
Austurlandi
Í þessari miklu uppbyggingu hefur það komið sér mjög
vel að VHE er með öfluga byggingadeild og á tæpa
20.000 fermetra af iðnaðar- og íbúðarhúsnæði á
Austurlandi. VHE reisti smiðjurnar á Hrauni 5 og 10
til eigin nota. Skemmurnar tvær á Hrauni 5 voru hins
vegar keyptar af norska fyrirtækinu HMR sem ætlaði
að veita Fjarðaáli viðhaldsþjónustu ásamt Launafli og
VHE. Fjarðaál leigir skemurnar fyrir þjónustu Bram-
mer. Á Hrauni 10 er einnig vöruhús sem Fjarðaál
leigir meðal annars undir raflausn.
Íbúðarhúsnæði getur verið stór hindrun þegar fólk
er að leita að starfi og það hjálpar VHE að eiga 72
íbúðir á Austurlandi sem flestar eru leigðar starfs-
mönnum. Íbúðirnar hefur VHE ýmist byggt frá grunni
eða keypt í smíðum og klárað.
Byggingadeild VHE hefur verið með talsverð
umsvif í álverinu undanfarin tvö ár. VHE byggði við
skautsmiðjuna og sá einnig um að reisa og klæða
kersmiðjuna. Þegar mest var störfuðu þar um 100
manns á vegum VHE að undirverktökum meðtöldum.
Verkið gekk allt samkvæmt áætlun.
Framkvæmdir við nýja afriðilinn, RF - 16, hófust
seinni partinn í vetur. Það er mjög krefjandi verkefni
að því leyti að þarna er háspennusvæði og stöðug
umferð deiglubíla með fljótandi málm, sem ekki er
hægt að beina annað. Þarna hafa verið um 20 manns
á vegum VHE að steypa undirstöður og eldhólf með
gríðarlega miklum járnabindingum. Járnin voru að
miklu leyti beygð hérna að Hrauni 5.
Byggingardeild VHE hefur tekið að sér önnur
stór verkefni á Austurlandi að undanförnu eins og
byggingu Grunnskólans á Egilsstöðum, viðbyggingu
hótels á Hallormsstað og byggingu Snæfellsstofu.
Nú er unnnið við byggingu brúar yfir Ytri - Rjúkandi
á Jökuldal. VHE rekur steypueiningaverksmiðju á
Egilsstöðum sem keypt var af Malarvinnslunni og
þar eru nokkrir starfsmenn staðsettir.
VHE eykur þjónustu sína á Austurlandi
Starfsmenn fyrirtækisins á svæðinu eru orðnir um 165
Verslun VHE að Hrauni 10