Austurglugginn - 13.07.2012, Side 6
6 AUSTUR · GLUGGINN Föstudagur 13. júlí
Sumarhátíð ÚÍA var haldin um síðustu helgi og að sögn aðstandenda
gekk hún vel. Veðrið lék við þátttakendur og urðu menn að sögn heim-
ildarmanns Austurgluggans „heltannaðir í áhorfendabrekkunni“. Vegna
þátttökuleysis var knattspyrnumótið fellt niður. Þeim mun fleiri horfðu
á frjálsíþróttamótið þar sem þátttaka var mjög góð en um tvö hundruð
keppendur voru skráðir til leiks. Engin alvarleg vandamál komu upp
og segir Gunnar Gunnarsson, formaður ÚÍA, að framkvæmd mótsins
hafi gengið vonum framar. „Við erum með gríðarlega vel þjálfaða sjálf-
boðaliða eftir Unglingalandsmótið í fyrra. Sundmótið tók til dæmis
miklu skemmri tíma en við héldum því menn voru bara svo mikið með
þetta,“ segir Gunnar. Eins og myndirnar sýna var keppt í hinum ýmsu
greinum og augljóst að íþróttastarf á Austurlandi er í miklum blóma um
þessar mundir. Gunnar tók myndirnar, nema annað sé tekið fram, og gaf
Austurglugganum leyfi til að nota þær.
Keppni í strandblaki sem var í Bjarnadal á sunnudeginum. Mynd: Sigríður Þrúður Þórarinsdóttir.
Neistamenn voru framarlega í sundinu og unnu stigabikarinn enn eitt árið. Þeirra keppandi tók forustuna strax í byrjun í sínum
riðli í bringusundi.
Frá keppni í boðhlaupi
Sex lið mættu til keppni í boccia. Úti á Nesi hafði betur gegn Viljanum eftir æsilegan úrslitaleik.