Austurglugginn


Austurglugginn - 13.07.2012, Side 8

Austurglugginn - 13.07.2012, Side 8
8 AUSTUR · GLUGGINN Föstudagur 13. júlí FJARÐABYGGÐ | þú ert á góðum stað fjardabyggd.is StöðvarfjörðurFáskrúðsfjörðurReyðarfjörðurEskifjörðurNeskaupstaðurMjóifjörður Breyting á Aðalskipulagi Fjarðabyggðar 2007-2027 Breyting á vatnsverndarsvæði Fannardals í Norðfirði Bæjarstjórn Fjarðabyggðar samþykkti 11. maí 2012 tillögu að óverulegri breytingu á Aðalskipulagi Fjarðabyggðar 2007-2027 samkvæmt 2. mgr. 36. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Breytingin felst í að mörk brunn- og grannsvæðis við vatnsból við Tandrastaði í Fannardal ná ekki eins langt inn eftir eyrum Norðfjarðarár og áður og brunnsvæði vatnsbólsins liggur allt utan Fannardalsár. Breytingin hefur verið send Skipulagsstofnun til staðfestingar. Þeir sem óska nánari upplýsinga geta snúið sér til skipulagsfulltrúa Fjarðabyggðar. Bæjarstjórinn í Fjarðabyggð Í gær hófst átak í kynningu innlendrar ferða- þjónustu er kallast Ísland er með’etta. Verkefnið er sameiginlegt verkefni allra markaðsstofa lands- ins, Ferðaþjónustu bænda, Höfuðborgarstofu og Ferðamálastofu. Markmið þess er að hvetja Íslendinga til ferðalaga innanlands og kynna fyrir þeim „allar þær stókostlegu upplifanir sem landið hefur upp á að bjóða,” eins og segir í fréttatilkynningu frá aðstandendum verkefnisins. Vefsvæði, undir merkjum átaksins, islandermed- etta.is, hefur verið opnað og „þar gefst lands- mönnum færi á að kynna sér allra handa ævintýri og upplifanir á einstaklega aðgengilegan hátt,” eins og segir í tilkynningunni. Þar segir ennfremur að leita megi á síðunni eftir landshlutum, athöfnum og árstíðum auk þess sem notendur síðunnar geta sent myndir „af fjölbreyttum upplifunum sínum af landinu.” Í tilkynningunni eru íbúar og ferðalangar á Austurlandi sérstaklega hvattir til að taka þátt í þessu verkefni og nýta síðuna til að fá hugmyndir að góðu ferðalagi og til að miðla upplýsingum um upplifanir á Austurlandi. Átak innlendrar ferðaþjónustu hafið: Ísland er með’etta Lagarfljótsormurinn mætir til leiks. Upphafi verkefnisins var fagnað víða um land og í Hallormsstaðaskógi tók Bjarki Sigurðsson, Íslandsmeistari í skógarhöggi, sig til og skapaði eftirmynd af Lagarfljótsorminum úr lerki og verður verkið til sýnis í Atlavík í sumar.

x

Austurglugginn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Austurglugginn
https://timarit.is/publication/1687

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.