Austurglugginn


Austurglugginn - 13.07.2012, Qupperneq 9

Austurglugginn - 13.07.2012, Qupperneq 9
 Föstudagur 13. júlí AUSTUR · GLUGGINN 9 AusturlandsmiðstöðvarMenningar Skaftfell – dagskrá framundan Sýningar í gangi FRÁSAGNASAFNIÐ 2011 - 2012 Söfnunarmiðstöðin Aðalsalur, maí - desember (MIXTAPE) NOTES FROM THE MIDNIGHT MOUNTAIN – FAST DOWNLOAD Ting Cheng Vesturveggur, 6. - 22. júlí Hluti af sumarsýningarröð Skaftfells 2012 REACTION INTERMEDIATE Sýningarnar eru opnar alla daga frá 12:00 – 22:00 og er frítt inn. Umsóknarfrestur fyrir gestavinnustofur Skaftfells á árinu 2013 er 1. september næstkomandi. Skaftfell rekur gestavinnustofur fyrir myndlis- tarmenn í þremur húsum á Seyðisfirði. Um er að ræða vinnustofudvöl í 1 – 6 mánuði. Umsóknareyðublað og frekari upplýsingar má finna á www. skaftfell.is. Sumarsýning Sláturhússins 2012 Að þessu sinni leiða saman list sína feðgarnir þeir Þór Vigfússon og Helgi Þórsson og mæðginin þau Ólöf Birna Blöndal og Sveinn Snorri Sveinsson. Samsýningin Feðgar, Mæðgin er einkar fjölbreytt þar sem blandast saman myndlist, ljóðlist í formi innsetningar, verk sem eru á mörkum þess að vera málverk og skúlptúrar úr margskonar efniviði og fundnum hlutum sem taka breytingum. Á vissan hátt er um að ræða yfirlitssýningu en sum verkana eru sköpuð á staðnum og eldri verk öðlast nýjan svip í óvenjulegu umhverfi sýningar- rýmis Sláturhússins. Nánari upplýsingar meðfylgjandi sýningarskrá, www.slaturhusid.is og á facebook tengdar sýningunni. Stendur til 20. ágúst Opið Mánud. til fimmtud. KL: 17.00 - 22.00 Föstud. til sunnud. KL: 14.00 - 16.00 Sagnabrunnur ehf., í samstarfi við Þórunni Eymundardóttur mynd- listamann, Bjarka Borgþórsson fornleifafræðing og Borgarmynd ehf., hefur lokið gerð gagnvirks korts af Seyðisfirði. Það má finna á vef- slóðinni www.sagnabrunnur.is. Á kortinu eru upplýsingablöðrur og þysja þarf inn til að skoða kortið og blöðrurnar í hærri upplausn. Kortið er hluti af verkefninu Fiskveiðar í strandþorpum í Norður - Atlantshafi. Kortið er hugsað fyrir heima- menn, nemendur og ferðafólk til upplýsingar um strandmenningu og tengingu við nágrannaþjóðir. Í tilkynningu frá Sagnabrunni segir: „Um er að ræða lifandi og fjöl- breyttan vef þar sem finna má ýmsar upplýsingar um byggð og mann- líf í Seyðisfirði með áherslu á sterk tengsl þess við hafið og ströndina. Þar má finna, auk skrifaðs texta, hljóðupptökur með frásögnum af einstökum atburðum, fjölda ljós- mynda og kvikmyndir svo eitthvað sé nefnt.“ Gerð kortsins var fjármögnuð með styrkjum frá AVS - rannsóknarsjóði í sjávarútvegi, Vinnumálastofnun, Menningarráði Austurlands og Brimberg. Í tilkynningunni segir að vonast sé til að styrkir náist til þýð- ingar á textum á kortinu af íslensku á ensku fyrir sumarlok 2012 og að ennfremur sé unnið að fjármögnun gagnvirkra korta af sama meiði í Noregi og Labrador í Kanada. Þann 15. júní var opnuð í „Graphik Werkstatt Neunteufel Kreilinger” sýning á grafíkverkum Ríkharðs Valtingojers myndlistarmanns á Stöðvarfirði. Ríkharður sýndi síðast í Vínarborg árið 1964 og hann var þá nýlega útskrifaður úr Listaakademíunni þar í borg. Á sýn- ingunni eru 28 ný grafíkververk mest  litógrafíur/steinþrykk og einnig nokkrar mezzotintur. Myndefnið er aðallega tengt sjávargróðri úr stöð- firskum fjörum. Að sögn Ríkharðs mættu margir á opnunina en hún mun standa til 13. júlí. Ríkarður tekur oft þátt í alþjóð- legum grafíksýningum og sem stendur á hann verk á sýningunni „World Art Print Annual“ í Sofíu höfuðborg Búlagríu og á „10. Mini Print International“ í Cataques á Spáni. Í Grafíksetrinu á Stöðvarfirði er nú nýlokið námskeiði í litó- grafíu en þátttakendur þar voru sjö íslenskar myndlistarkonur.  Dvöldu þær á Stöðvarfirði í viku og fengu innblástur úr umhverfinu.  Framhaldsnámskeið hefur verið ákveðið og verður það á verkstæði Grafíkfélagsins í Reykjavík í haust. Það er mikil innistæða fyrir brosinu hjá þessum kátu Seyðfirðingum en Huginn hefur ekki tapað leik í þriðju deildinni í sumar og trónir liðið langefst í sínum riðli. Nú síðast sigraði liðið Björninn frá Grafarvogi með miklum yfirburðum eins og sést á stigatöflunni. Stelpurnar á myndinni heita Helena Lind Ólafsdóttir og Elísa Maren Ragnarsdóttir. Gagnvirkt kort af Seyðisfirði: Atlas Seyðisfjörður Gagnvirkt kort af Seyðisf irði. Taplausir og langefstir! Ríkharður Valtingojer sýnir í Vínarborg Grafíklistamaðurinn Ríkharður Valtingojer. Mynd: Einar Bragi

x

Austurglugginn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Austurglugginn
https://timarit.is/publication/1687

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.