Austurglugginn


Austurglugginn - 13.07.2012, Side 11

Austurglugginn - 13.07.2012, Side 11
 Föstudagur 13. júlí AUSTUR · GLUGGINN 11 Eistnaflug að hefjast Þungarokkshátíðin Eistnaflug hefur verið haldin árlega aðra helgina í júlí síðan 2005. Áttunda hátíðin hefst í Hótel Egilsbúð í Neskaupstað í dag og að venju kennir ýmissa grasa. Meðal þekktustu hljómsveita í ár eru Sólstafir, Skálmöld, Dr. Spock en sérstaka athygli vekur endurkoma hljómsveitarinnar Botnleðju en hún hefur verið lítið virk undanfarið. Þá vekur Austurglugginn athygli á heimabandinu norðfirska Oni sem nýtur þess heiðurs að taka þátt í ár en þeir spila á laugar- dag klukkan þrjú. Tvær útisýningar á Eskifirði Vinir Eskifjarðar, í samvinnu við Menningarráð Austurlands, hafa í sumar sett upp tvær útisýningar á Eskifirði og í nágrenni. Sýningin „Ganga um gamlar slóðir“ samanstendur af myndverkum á 6 útisvæðum á Eskifirði. Hinsvegar er um að ræða sýninguna „Hvalstöðin á Svínaskála“ en þetta er úti-ljósmyndasýning og sýnir hvalstöðina og starfsemi hennar á Svínaskála eins og hún var um árið 1900. Á heimasíðu Fjarðabyggðar segir að við uppsetningu sýningarinnar hafi verið grafið niður á hvalbein, járnabrak og hleðslusteina, þannig að búast megi við að talsvert sé um minjar frá tíma hvalveiðanna á svæðinu. Atvinnusýning undirbúin Undirbúningur atvinnulífssýningar sem fram fer 18. og 19. ágúst í Egilsstaðaskóla, er að kom- ast á fullt skrið. Frá þessu er sagt á heimasíðu Fljótsdalshéraðs. Þar kemur einnig fram að alls hafi rúmlega sextíu fyrirtæki og stofnanir stað- fest þátttöku á sýningunni. Sýningin er haldin að frumkvæði atvinnumálanefndar Fljótsdalshéraðs og eru sýnendur fyrirtæki, stofnanir og einstak- lingar í sveitarfélaginu. Markmiðið er að kynna þá þjónustu sem í boði er í sveitarfélaginu og tengja saman íbúa og atvinnulíf. Hljómsveitin Dætur Satans gaf nýverið út sinn annan hljómdisk sem ber heitið Dögun. Austurglugginn átti stutt spjall við Magnús Helgason, gítarleikara og aðallagahöfund hljómsveitarinnar með huggulega nafnið. „Stutta svarið er einfaldlega það að við eigum svo mikið af lögum og við vildum koma því frá okkur,“ segir Magnús aðspurður um tilurð nýju plötunnar en í fyrra kom út platan Myrk nótt sem vakti athygli hjá tónlistarunnendum eystra. „Við erum sífellt að semja og erum reyndar byrjaðir að vinna að næstu plötu sem kemur út einhvern tímann á næsta ári,“ segir hann en systkini hans í hljóm- sveitinni eru Gunnar Ingi Árnason, Sigurður Ingólfsson, Óðinn Gunnar Óðinsson og Þórólfur Stefánsson. Platan Dögun er tekin upp í Stúdíó Benmen á Sauðárkróki en þaðan er Magnús ættaður og reyndar Þórólfur líka. „Þessi nýja plata er miklu meira unnin en sú fyrri,“ segir Magnús. „Við tókum síðustu plötu meira og minna upp „læf“ en yfir þessari nýju lágum við og unnum frá morgni til kvölds enda Þórólfur, sem útsetti plötuna, mikill vinnuhestur og rak okkur áfram.“ Þótt hljómsveitin sé að hluta ættuð frá Skagafirði eru meðlimir hennar dreifðir útum allt land og reyndar rúmlega það því einn er búsettur í Svíþjóð hinir eru á Egilstöðum og í Reykjavík. Magnús segir þetta ekki skapa nein vandamál önnur en þau að það geti reynst erfitt að koma mannskapnum saman til að spila á tónleikum. „Þegar við erum að semja lög og vinna í útsetningum notum við Skype og Facebook,“ segir hann en vitanlega gagnast þessi ágætu forrit ekki við tónleikahald. Platan Dögun með Dætrum Satans fæst m.a. í Húsi handanna og versluninni Vík á Egilsstöðum og í verslun Smekkleysu við Laugaveg í Reykjavík. Vegna útkomu þriðju sólóplötu tónlistarmannsins Jónasar Sigurðssonar, Þar sem himinn ber við haf, hefur hann efnt til tónleikaraðar í félagsheimilinu Fjarðarborg á Borgarfirði eystri. Fyrstu tónleik- arnir voru 7. júlí sl. og hinir síðustu verða 28. júlí. Því er um að ræða sex tónleika á viku í þrjár vikur sem verður að teljast mjög gott tónleikaframboð ef fjöldi íbúa á Borgarfirði er hafður í huga. Og tónlistarveislunni er reyndar hvergi lokið eftir að Jónas lýkur sér af því þá hefst hinn landsþekkta tónlistarhátíð Bræðslan. Nýja platan sem Jónas vinnur að í samvinnu við Lúðrasveit Þorlákshafnar og tónlistarband eldri borgara í bænum, Tóna og Trix, kemur út á haustmánuðum og í tilefni af tónleikaröðinni í Fjarðarborg hefur fyrsta smáskífa plötunnar, Þyrnigerðið, verið gefin út. Allir tónleikarnir hefjast klukkan 21:00. Frítt verður inn nema á þá síðustu. Þá má geta þess að þeir sem ekki sjá sér fært að skjótast á Borgarfjörð geta horft á tónleika á netinu en slóðin er: ustream. tv/channel/fjardarborg Duglegar dætur „Þegar við erum að semja lög og vinna í útsetningum notum við Skype og Facebook“ Sólógjörningur Jónasar Sig á Borgarfirði eystri Átján tónleikar á sama stað á sama tíma í þrjár vikur Jónas Sigurðsson, tónlistarmaður. Dætur Satans stilla sér upp út í sveit nálægt Sauðárkróki.

x

Austurglugginn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Austurglugginn
https://timarit.is/publication/1687

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.