Austurglugginn


Austurglugginn - 04.10.2013, Side 2

Austurglugginn - 04.10.2013, Side 2
2 Föstudagur 4. október AUSTUR · GLUGGINN Nýverið lauk endurnýjun á brúnni í Seldal inn af Norðfjarðarsveit. Verkefnið var unnið í samvinnu við Vegagerðina og var fjármagnað með framlögum úr styrkvegasjóði. Í haust verður vegkaflinn frá brúnni og upp á þjóðveg lagfærður og borið í hann. Þessi vegkafli þjónustar sumarbústaðahverfið í Skuggahlíð og eru framkvæmdirnar kærkomnar fyrir allt útivistarfólk, þar sem Seldalur er vinsælt göngusvæði í Norðfjarðarsveit. Senn mun rísa fyrsta íbúðarhúsið sem byggt hefur verið á Vopnafirði síðan 1995, en það er Mælifell ehf. sem mun þar reisa parhús. Verkið hófst formlega í síðustu viku með greftri Steineyjarmanna. Hönnuður húss er Bent Larsen Fróðason og segir á heimasíðu Vopnafjarðarkaupstaðar að sómi verði að húsinu. Húsið er nyrst í bænum og það fyrsta sem komið er að á leið inn í bæinn. Þar segir einnig að táknrætt sé að fyrsta hús er ferðamaðurinn kemur að skuli vera nýbygging – táknrænt fyrir þær sakir að viðspyrna skuli vera orðin að sókn. Magnús Már Þorvaldsson, upplýsinga- og menningarmálafulltrúi á Vopna- firði segir þennan atburð afar gleðilegan. „Þetta er virkilega ánægjulegt. Það er að fjölga hjá okkur og þörf fyrir nýju húsnæði á markaðinn. Hér stefnir allt hægt og bítandi í rétta átt.“ Suðurverk hf. byrjaði um helgina að ýta með jarðýtu frá stafni nýrra Norðfjarðaganga. Guðmundur Björnsson, starfsmaður hjá Hnit, segir verkið vera að síga hægt en örugglega af stað. „Búið er að grafa að mestu leyti ofan af fyrirhuguðum gangamunna Eskifjarðarmegin. Því næst förum við í að hreinsa svæðið og sprengingar geta vonandi hafist snemma í október. Einnig höfum við verið að setja upp vinnubúðirnar sem og skrifstofueiningar.“ Fyrsta íbúðarhúsið sem rís í 18 ár Uppgangur á Vopnafirði „Fyrstu sprengingar geta vonandi hafist í byrjun október“ Endurnýjun brúar í Seldal Sá merkilegi atburður átti sér stað í Njarðvíkurrétt um helgina, að Skúli Andrésson bóndi á Framnesi í Borgarfirði mætti þar í áttugasta skiptið í röð. Skúli er 86 ára gamall og hefur ekki misst úr ár í réttum síðan hann fór í sína fyrstu, sex ára gamall. Af þessu tilefni setti Andrés Björnsson saman þessa vísu: Ekki misst úr réttum í 80 ár Skúli Andrésson var heiðraður í Njarðvíkurrétt um helgina Skúli Andrésson í Njarðvíkurrétt. Ljósm. Andrés Skúlason. Nú skal hylla hraustan mann sem hljóp um fyrir löngu. Í áratugi átta hann ekki misst úr göngu. Satt við segjum þessu frá svona er vert að frétta. Oft menn segja eflaust jjjá af minni ástæðu en þetta. Kveðja frá réttarvinum Það er kunnara en frá þurfi að segja að kommúnistar eru nánast horfnir af jarðríki. Þessi göfuga hugsjón eignaðist foringja, sem fóru sem logi um akur land úr landi og drápu alla þá sem ekki voru kommúnistar. Auðvitað átti þetta að fjölga kommúni- stum, en það gagnstæða gerðist, þeir hurfu nánast alveg. Sama leikinn lék þjóðernissinninn Hitler, þegar hann ætlaði að bjarga heiminum. Útkoman var sú að engin kenning er jafn illa ræmd og nasisminn 1. Fagrar trúarkenningar hafa líka fengið að kenna á þessu, ekki síst kristindómurinn. Þar hafa alltaf verið til einstaklingar, sem vilja útrýma fólki sem ekki játar sama sið. Einn þeirra heitir Anders Behring Breivik. Förum ekki nánar út í það. Múhammeðstrú er sjálfsagt ágætur siður, hef ekki kynnt mér hann til hlítar. Það ofbeldi sem sumir af leiðtogum þeirrar trúar, hlýtur þó að draga úr útbreiðslu hennar. Margir hafa talað um „vorið í Austurlöndum nær“ og vænst aukins lýðræðis í kjölfar byltinga í Túnis, Egyptalandi og Libýu. Fólk áttar sig ekki á því að í öllum þessum löndum beittu uppreisnarmenn skefjalausu ofbeldi, sem nú kemur í bakið á því. Þessi lönd eru að mínu viti ekki á leið til lýðræðis í dag, öðru nær. Hvað við tekur í Sýrlandi að lokinni borgarastyrjöld veit enginn. Það eitt er víst að vopnaður sigur er oftar en ekki siðferðilegur ósigur, og „engin vopnaþjóð er að vísu frjáls og að vanda sker hún sig fyrr á háls en óvin sinn.“(Þ.Vald). Sigurjón Bjarnason Þungir þankar (69) Byltingar éta börnin sín Sláturfélag Austurlands hefur verið tekið til gjaldþrotaskipta en það rak bæði kjötvinnslu og kjöt- og fiskbúð á Egilsstöðum undir vörumerkinu Snæ- fell sem opnuð var í maí síðastliðnum. Sláturfélagið var stofnað árið 2001 en það var samvinnufélag bænda á Austurlandi. Á fréttavef ruv.is segir að íbúar á Egilsstöðum undrist lokun búðarinnar en þar virtist vera mikil velta. Samkvæmt heimildum fréttastofunnar munu meðal annars óhagstæð innkaup og léleg nýting hráefnis hafa orðið fyrirtækinu að falli. Þar segir einnig að stjórn slátur- félagsins hafi látið gera óháða úttekt á rekstrinum og samkvæmt henni þurfti 10-15 milljónir króna til að halda áfram rekstri. Þegar ljóst varð að það fjármagn fengist ekki ákvað stjórnin að setja félagið í þrot. Vonast er til að eignir dugi langleiðina upp í kröfur. Sláturfélag Austurlands gjaldþrota

x

Austurglugginn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Austurglugginn
https://timarit.is/publication/1687

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.