Austurglugginn


Austurglugginn - 04.10.2013, Blaðsíða 15

Austurglugginn - 04.10.2013, Blaðsíða 15
 AUSTUR · GLUGGINN Föstudagur 4. október 15 Fljótsdalshérað, Höttur og UÍA taka saman þátt í Hreyfiviku (Move week) annað árið í röð, vikuna 7.- 13. október. Hreyfivikan er árleg Evrópsk herferð sem hefur það að markmiði að kynna kosti þess að taka virkan þátt í hreyfingu og íþróttum reglulega. Vikan var fyrst haldin í fyrra og einstaklingar, stofnanir og borgir um alla Evrópu tóku þá þátt. Á Íslandi voru haldnir um 30 viðburðir um allt land og þátttakendur skiptu hundruðum. ISCA (International Sport and Culture Association) stendur fyrir vikunni og meginmarkmiðið er að efla samstarf ólíkra hópa með það að markmiði að auka þátttöku almennings í hreyfingu og íþróttum. Á Íslandi er það Ungmennafélag Íslands sem heldur utan um viðburðinn. Framtíðarsýnin er sú að 100 milljónir fleiri Evrópubúa verði orðnir virkir í hreyfingu og íþróttum fyrir árið 2020. Snýst um að fá sem flesta til þess að hreyfa sig Í fyrra tók Fljótsdalshérað þátt í Hreyfiviku í fyrsta sinn, í samvinnu við Hött. Það sama er upp á teningnum í ár, nú með stuðningi UÍA og enn fleiri samtaka og hópa. Sandra María Ásgeirsdóttir, framkvæmdastjóri UÍA hefur í nægu að snúast í tengslum við verkefnið en UÍA hefur stutt verkefnið í gegnum vinnu er varðar upplýsingagjöf til hreyfingarinnar erlendis. „Með vikunni viljum við vekja athygli á kostum þess að taka virkan þátt í hreyfingu og íþróttum reglulega og óskum eftir þátttöku sem flestra. Viðburðirnir þurfa ekki að vera nýir, stórir eða flóknir – alveg eins er hægt að draga fram í dagsljósið sem er í gangi hjá hverjum og einum meðan á vikunni stendur. Í fyrra var Höttur með opna viku og bauð öllum sem vildu kynna sér starf deilda félagsins. Íþróttamiðstöðin bauð frítt í sund einn daginn og árlegt Péturshlaup fór fram svo eitthvað sé nefnt. Málið snýst um að gera það sem er í boði á sviði hreyfingar- og íþrótta aðgengilegt til þess að fá fólk af stað til þess að hreyfa sig og hvetja til virkar þátttöku í hreyfingu og íþróttum reglulega.“ Samfélagið vinnur saman Þeir Davíð Þór Sigurðarson, for- maður Hattar, og Óðinn Gunnar Óðinsson, atvinnu-, menningar- og íþróttafulltrúi Fljótsdalshéraðs, hafa stýrt verkefninu. Verkefnið á Fljótsdalshéraði hefur verið tilnefnt sem eitt af níu áhugaverðustu verkefnum í Evrópu. „Það sem þykir svo sérstakt og áhugavert við okkar verkefni er að heilt samfélag vinnur að hreyfivikunni í sameiningu, þ.e. sveitarfélagið, skólar, íþróttafélög og jafnvel verslanir. Verkefnið okkar verður því nýtt sem gott fordæmi fyrir aðrar þjóðir. ISCA hefur boðið okkur að senda eina manneskju út til Barcelona til að taka þátt í ráðstefnu ISCA sem verður haldin 16. – 19. október og kynna verkefnið. Eftir þá kynningu mun afhending verðlauna eiga sér stað af hálfu ISCA og verður spennandi að sjá hvort að útfærsla hreyfivikunnar á Fljótsdalshéraði verði fyrir valinu. Þetta er bara mikill heiður fyrir sveitarfélagið og þau samtök sem starfa og stuðla að skipulögðu starfi á svæðinu að fá svona eftirtekt.“ segir Davíð Þór Sigurðarson, formaður Hattar. Dagskráin í ár verður mjög góð að sögn Davíðs, en fleiri aðilar og samtök taka þátt í viðburðum sem munu standa yfir í vikunni. Íþróttaálfurinn heimsækir Fljótsdalshérað á laugardeginum og tekur nokkrar æfingar með börnum og fullorðnum. Dagskráin mun verða send inn á öll heimili á Fljótsdalshéraði síðar í vikunni og hægt er að fylgjast nánar með á heimasíðu Fljótsdalshéraðs og Hattar. Verkefnið tilnefnt til verðlauna Fljótsdalshérað, Höttur og UÍA taka þátt í Hreyfiviku Sandra María Ásgeirsdóttir, framkvæmdastjóri ÚÍA býr sig undir Hreyfivikuna. Lonneke van Gastel opnaði sjúkraþjálfunarstöðina Heilsuleiðir ehf. í Níunni á Egilsstöðum í síðustu viku. Til að byrja með verður boðið upp á almenna sjúkraþjálfun, barnasjúkraþjálfun og ungbarnanudd en stefnt er á að fá fleiri greinar heilbrigðisþjónustu til samstarfs í framtíðinni. Lonneke, sem er eigandi og framkvæmdastjóri Heilsuleiða, er sjúkraþjálfari og sérfræðingur í barnasjúkraþjálfun. Hún hefur unnið hjá Heilbrigðisstofnun Austurlands frá árinu 2007 við almenna sjúkraþjálfun og barnasjúkraþjálfun en í þeirri grein er hún eini sérfræðingurinn á Austurlandi. Þá hefur hún unnið með sjúklinga með gigtar- og taugasjúkdóma og unnið við endurhæfingu hjartasjúklinga og hreyfihamlaðra. Langar að stofna bakskóla Lonneke hefur mikla reynslu í meðferð á bak-, háls- og stoðkerfisvandamálum og hefur í hyggju að stofna bakskóla. ,,Hópurinn er stór sem á við bakvandamál að stríða. Bakvandamálin eru komin til vegna þess að fólk vinnur ekki rétt, til dæmis lyftir of þungu eða situr ekki rétt,“ segir Lonneke. Lonneke segir að fólk viti almennt ekki nóg um afleiðingar þess á bak og brjósk ef það beitir sér vitlaust. ,,Fólk þarf fræðslu og leiðbeiningar um hvað getur gerst og hvað það getur gert sjálft til þess að forðast bakvandamál. Alltaf yrði kennt í hópum í bakskólanum, það er gott að fólk hafi stuðning hvert frá öðru. Um er að ræða þrjá til fimm tíma. Fyrsti tíminn færi í fræðslu um bakið, annar í kennslu á réttum vinnustellingum, sá þriðji í æfingar og ráðleggingar varðandi íþróttir og tveir síðustu tímarnir í eftirfylgni.“ Tímapantanir eða nánari upplýsingar er hægt að fá gegnum netfangið lonneke@heilsuleidir.is, í síma 5711917 eða á heimasíðunni heilsuleidir.is Sjúkraþjálfunin Heilsuleiðir opnar á Egilsstöðum Lonneke van Gastel á opnun Heilsuleiða. Ljósm. Austurfrétt/Gunnar.

x

Austurglugginn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Austurglugginn
https://timarit.is/publication/1687

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.