Austurglugginn - 07.08.2015, Síða 8
8 Föstudagur 7. ágúst AUSTUR · GLUGGINN
Samkvæmt venju fór fjölskylduhá-
tíðin Neistaflug fram í Neskaupstað
um verslunarmannahelgina. Þórfríður
Soffía Þórarinsdóttir, skipuleggjandi
hátíðarinnar, segir allt hafa gengið
vel og er ánægð með helgina.
„Stemmingin var mjög góð. Það
skemmtu sér allir vel, hvort sem það
var á daginn eða á kvöldin. Það er
erfitt að velja einn hápunkt, en fyrir
mér er hátíðin einn stór hápunktur
ferðalags sem unnið hefur verið að
í marga mánuði. Viðburðirnir voru
hver öðrum betri, en það verður þó að
viðurkennast að það var ómetanlegt
að fylgjast með fólkinu í brekkunni
þegar Gunni (Gunnar Helgason)
kom á sjúkrabílnum á varðeldinn
á sunnudagskvöldinu, eftir að hafa
boðað forföll um helgina vegna
veikinda. Það er eiginlega ótrúlegt
að hann skuli hafa lagt þetta ferðalag
á sig til að koma og sjá okkur örlítið
þessa helgi, það var virkilega gaman
að sjá hann.
Mig langar að nýta tækifærið og
þakka öllum sem komu að hátíðinni
á einn eða annan hátt, öllum styrkt-
araðilum og bæjarbúum að leggja
hátíðinni lið. Við í nefndinni erum
virkilega þakklát.“
KBS
Ljósm: Kristín Svanhvít
Hávarðsdóttir
Neistaflug
„Fyrir mér er
hátíðin einn stór
hápunktur“